Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Qupperneq 32
„D-riðill er mjög athyglisverður
og þarna er þetta upp á líf og dauða,“
sagði Árni en Spánverjar eru ríkjandi
heimsmeistarar í handbolta.
„Spánverjar, Tékkar og Egypt-
ar koma til með berjast um þetta
en Katarar eru ekki eins sterkir og
koma til með að tapa öllum sínum
leikjum þarna. Hin þrjú liðin eru öll
líkleg og þessi riðill og E-riðill eru
athyglisverðustu riðlarnir í þessari
keppni,“ sagði Árni og bætti við að
hann teldi Spánverja sigurstrang-
legasta í D-riðli.
„Ég held að Spánverjar vinni
þennan riðil og síðan verður hörku-
barátta milli Tékka og Egypta. Það
var margt skemmtilegt í leik Tékk-
anna á móti Íslandi um síðustu
helgi, þeir eru með hörkuskyttur
en maður veit ekki alveg um styrk
Egyptanna.
Þannig að þetta verður held
ég rosaleg barátta um annað sæt-
ið og ég held að Egyptarnir komi
til með að vinna Tékkana og kom-
ist áfram. Egyptar eru með marga
hörkumenn og það er skemmtileg-
ur handbolti sem þeir spila. Það
mikill hraði í þeim og kraftur. Þó að
Tékkarnir hafi verið skemmtilegir
hérna heima, með frábæran mark-
mann og góðar skyttur, þá held
ég samt sem áður að Egyptarn-
ir eigi eftir að skilja þá eftir,“ sagði
Árni.
Spánverjar eru með lið í fremstu
röð en Árni hafði þó ekki trú á því
að þeir færu með sigur af hólmi
í þessari keppni. „Það er ákveðin
hefð hjá þeim að klúðra málunum
þegar mest á reynir. Ég held að þeir
vinni þennan riðil nokkuð sann-
færandi en síðan gætu þeir lent
í vandræðum í milliriðlinum og
sennilega spila þeir um sæti fimm
til átta.“
föstudagur 19. janúar 200732 Sport DV
C-riðiLL
H m í þ ý s k a l a n d i 2007
Þýskaland
Pólland
brasilía
argentína
Hér er leikið:
Max-schmeling-Halle (Berlín)
tekur um 10 þúsund manns í sæti og
er mest notuð sem heimavöllur
liðsins alba Berlin í körfubolta.
fylgist Með:
florian kehrmann
(Þýskaland)
samherji Loga og Ásgeirs
hjá Lemgo í Þýskalandi. Einn
besti hægri hornamaður í heimi. 29
ára gamall leikmaður sem hefur
skorað 649 mörk í 180 landsleikjum.
stefan kretzschmar
(Þýskaland)
skemmtilegur hornamað-
ur sem leikur með
Magdeburg. Mjög litríkur og
skemmtilegur vinstri hornamaður
sem vel er skreyttur húðflúrum og
eyrnalokkum. Hefur spilað 218
landsleiki og skorað í þeim 821 mark.
leikirnir:
föstudagur 19. janúar
KL. 16.30 Þýskal. - Brasilía ___ - ___
laugardagur 20. janúar
KL. 18.30 Pólland - argent. ___ - ___
sunnudagur 21. janúar
KL. 14.30 Brasilía - Pólland ___ - ___
KL. 16.30 argent. - Þýskal. ___ - ___
Mánudagur 22. janúar
KL. 16.00 Þýskal. - Pólland ___ - ___
KL. 18.30 Brasilía. - argent. ___ - ___
lokastaða:
1. sæti: ________________ stig: ___
2. sæti: ________________ stig: ___
3. sæti: ________________ stig: ___
4. sæti: ________________ stig: ___
gerry Weber stadion (Halle)
tekur um 12 þúsund manns í sæti en
frægur tennisgrasvöllur er utan á
höllinni og er þar haldið gerry
Weber-tennismótið.
d-riðiLL
H m í þ ý s k a l a n d i 2007
sPánn
tékkland
egyPtaland
katar
Hér er leikið:
aWd-dome (Bremen)
tekur um 9 þúsund manns í sæti og
er stærsta íþróttahöllin í Bremen.
Kallaðist stadthalle Bremen en eftir
að allgemeiner Wirtschaftsdienst
(aWd) varð aðalstyrktaraðili
hallarinnar var nafninu breytt. um
leið var höllin stækkuð úr þrjú
þusund í 10 þúsund manna höll.
fylgist Með:
Jose Hombrados
(Spánn)
Einn besti markvörður í
heiminum í dag og
samherji Ólafs stefánssonar hjá
Ciudad real á spáni. Ef hann kemst í
stuð eiga andstæðingarnir ekki von á
góðu.
filip Jicha (Tékkland)
fór illa með Íslendinga
um síðustu helgi þar sem
þessi samherji Loga
geirssonar og Ásgeirs
Hallgrímssonar skoraði 18 mörk í
leikjunum tveimur. gríðarlega öflug
skytta sem getur unnið leiki fyrir sitt
lið ef sá gállinn er á honum.
leikirnir:
laugardagur 20. janúar
KL. 14.45 tékkland - Katar ___ - ___
KL. 17.00 spánn - Egyptal. ___ - ___
sunnudagur 21. janúar
KL. 14.45 Katar - spánn ___ - ___
KL. 17.00 Egyptal. - tékkl. ___ - ___
Mánudagur 22. janúar
KL. 17.00 Egyptal. - Katar ___ - ___
KL. 19.00 spánn - tékkland ___ - ___
lokastaða:
1. sæti: ________________ stig: ___
2. sæti: ________________ stig: ___
3. sæti: ________________ stig: ___
4. sæti: ________________ stig: ___
Sú regla er höfð við niðurröð-
un á HM í handbolta að eftir að
búið er að draga þrjú lið í hvern rið-
il fá gestgjafarnir að velja sér riðil til
að leika í og það var ekki að ástæðu-
lausu sem Þjóðverjar völdu C-riðil.
Þjóðverjar eru í riðli með Pólverj-
um, Brasilíumönnum og Argentínu-
mönnum og Árni á ekki von á öðru
en heimamenn og Pólverjar fari
uppúr riðlinum. „Ég held að Þjóð-
verjar vinni þennan riðil, Pólverjar
verði í öðru og síðan Argentína og
Brasilía þar á eftir. Þjóðverjar eru á
heimavelli og þetta verður rosalega
skemmtileg keppni vegna þess að
það er mikill áhugi fyrir handbolta
í Þýskalandi. Það verður troðfullt í
höllunum þegar Þjóðverjarnir spila
og það kemur til með að hjálpa þeim
mikið í þessu móti.
Þrátt fyrir að þeir hafi kannski
ekkert verið alltof sannfærandi í æf-
ingaleikjum að undanförnu og ver-
ið svolítið óheppnir með meiðsli,
þá held ég samt sem áður að þeir
séu í nokkuð góðum málum í þess-
ari keppni og komi til með að vinna
þennan riðil.“
Árni bætti því þó við að Pólverj-
ar væru sýnd veiði en ekki gefin.
„Pólverjar eru með hörkulið og þeir
eiga eftir að veita Þjóðverjum harða
keppni. Síðan verður gaman að sjá
Pólverjana í framhaldinu.“
Árni bjóst ekki
við miklu frá Suð-
ur-Ameríkuþjóðunum í riðlinum og
sagði að þær væru nánast uppfylli-
garefni. „Þó að þetta séu hörku þjóð-
ir í fótboltanum eru þær bara í öðr-
um klassa í handbolta.
Það má eiginlega segja
það sama um þenn-
an riðil og A-riðil, að
það er eiginlega al-
veg augljóst hvaða
lið fara áfram,“
sagði Árni.
Þjóðverjar eru í nokkuð
þægilegum riðli á HM og
ljóst er að þeir munu ekki
eiga í erfiðleikum með að
komast í milliriðil.
d-riðill er mjög athyglisverður
d-riðill er gríðarlega
sterkur þar sem þrjár
sterkar þjóðir, spán-
verjar, tékkar og
egyptar, berjast um að
komast í milliriðla.
c-riðill
Þægilegt hjá
heimamönnum
leikreyndasti
maður Þjóðverja
Línumaðurinn öflugi
Christian schwarzer
sækir hér að marki
Króata í úrslitaleik
Ólympíuleikanna í
aþenu 2004 þar sem
Króatar fóru með sigur
af hólmi.
Meistararnir
spánverjar sjást hér
fagna sigri á HM í túnis
fyrir tveimur árum.
d-riðill
árni stefánsson
sPáir í liðin og riðlana