Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 46
föstudagur 19. janúar 200746 Sport DV H m í þ ýs k a l a n d i 2007 Hreiðari Guðmundssyni líkar vel lífið fyrir norðan en eftir að hafa leikið með Gróttu og ÍR ákvað hann að söðla um og leikur nú með Akureyri. Birkir Ívar Guðmundsson, leikmaður Lübbecke í Þýskalandi, er aðalmarkvörð- ur íslenska landsliðsins í handbolta. Birk- ir Ívar er á sínu fyrsta tímabili í Þýskalandi, en hann gekk í raðir Lübbecke frá Haukum síðasta sumar. „Það er bara tilhlökkun í mannskapn- um, stutt í mót og ég held að allir hlakki bara mikið til að byrja,“ sagði Birkir Ívar og bætti við að það væri ekki erfitt að þjappa hópnum saman. „Þetta eru allt mjög skemmtilegir strák- ar sem hafa spilað saman lengi og það er góður andi í þessum hóp.“ Birkir Ívar segist kunna vel við sig í Þýskalandi. „Ég kann bara vel við mig þarna. Þetta hefur gengið alveg eftir mínu plani, það var alveg vitað mál að ég kæmi ekki fullundirbúinn í þetta í fyrsta leik og ég gerði mér engar vonir um það. Ég var ákveðinn í að bæta mig jafnt og þétt og læra inn á deildina fyrstu mánuð- ina. Það hefur gengið eftir og ég hef ver- ið að verja mjög vel. Í heildina er ég með um 35 prósent markvörslu og meira en það ef maður tekur bara nóvember og desember.“ Birkir Ívar segist hafa bætt sig töluvert sem markvörður eftir reynsluna í þýsku úrvalsdeildinni. „Ég tel mig hafa bætt mig. Ég hef líka lært inn á töluvert öðruvísi handbolta en er spilaður hér heima. Flest- ir leikmenn eru stærri og sterkari og eru með betri skot fyrir utan. Það er kannski það sem íslenskan handbolta hefur skort, að læra inn á þannig skot. Maður fær þau aldrei á sig hérna heima, hvorki í leikjum né á æfingum. Þó svo að ég hafi bætt mig þá held ég líka að það sem ég hafði fyrir hafi kannski breyst,“ sagði Birkir Ívar. Íslenskir markverðir hafa oft verið gagnrýndir fyrir frammistöðu sína á stór- mótum og Birkir Ívar sagðist alveg finna fyrir þeirri gagnrýni. „Mér hefur oft fund- ist þetta vera eitthvað haldreipi bæði þjálf- ara og fjölmiðla, það er búið að búa til ein- hverja afsökun fyrir fram sem ég hef aldrei almennilega skilið. Ef maður kemur með afsökun fyrir því að vera lélegur þá er mað- ur yfirleitt lélegur. Við erum með frábært sóknarlið, okk- ar höfuðverkur liggur meira í varnarleik og markverðir eru hluti af varnarleiknum. Ef vörnin er góð þá yfirleitt fylgir góð mar- kvarsla með.“ dagur@dv.is Stefni alltaf hærra Hreiðar Guðmundsson markvörður Akur- eyrar verður í eldlínunni á HM í Þýskalandi. Hann hefur glímt við erfið meiðsli undanfar- in ár, meðal annars fengið brjósklos í bakið og brotið bátsbein í hendinni, sem héldu honum utan vallar í hartnær fimm mánuði. „Bakið er fínt, en ég missti töluvert úr þeg- ar ég braut bátsbeinið. Það er reyndar bara 60% gróið, en ég held að það grói ekkert meira. Það var grætt í mig bein úr mjöðminni og svo er þetta fest saman með skrúfum.“ Af þessum sökum þarf Hreiðar að spila með hlíf á hendinni og hann býst við að vera með hana út þetta tímabil. „Ég þori ekkert að prófa að æfa og spila án þess að vera með hlífina, tala nú ekki um núna þegar HM er að hefjast,“ seg- ir hann og glottir. Hreiðar ólst upp í Reykjavík og spilaði með Gróttu og ÍR. Hann ákvað að söðla um og leika með KA (nú Akureyri) veturinn 2005– 2006 og líkar lífið vel á Akureyri. „Þetta er mjög fínt þarna fyrir norðan, núna er ég bara í handbolta eftir að ég hætti sem einkaþjálfari. Ég var orðinn alltof þungur þegar leikjaálagið var orðið eins og það var og ákvað að einbeita mér bara að handboltanum. Svo byrjar mað- ur bara að vinna eftir HM.“ Hreiðar segist ætla að reyna að standa sig í Þýskalandi enda sé þetta kjörið tæki- færi til að auglýsa sjálfan sig fyrir fram- an fullt af umboðsmönnum sem verða væntanlega á völlunum. „Stemming- in í hópnum er mjög góð eins og alltaf. Það er hressilega tekist á á æfingum en eftir þær eru allir vinir og húmorinn fer upp. Ég ætla mér að nýta tækifærið þeg- ar það kemur og standa mig, byggja ofan á það sem ég gerði í mótinu í Danmörku og síðan í leikjunum við Tékka. Maður stefnir alltaf einni tröppu ofar. Það verða væntanlega fjölmargir umboðsmenn á völlunum og maður verður bara að nýta tækifærið.“ Hreiðar stefnir leynt og ljóst á at- vinnumennskuna en segist ekki ætla að stökkva á hvaða tilboð sem er. „Mað- ur verður að velja vel. Ekki stökkva bara út til þess eins að geta sagt, ég er orðinn atvinnumaður. Það sést best á strákun- um sem eru að koma heim eftir hálft ár í atvinnumennsku. Maður verður að hugsa þetta mjög vel,“ segir þessi geð- þekki markvörður að lokum. benni@dv.is Birkir Ívar Guðmundsson telur að gagnrýni á íslenska markverði sé oft og tíðum ósanngjörn Hef bætt mig töluvert

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.