Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 54
Menning Nýlistasafnið opnaði um síðustu helgi fyrstu stóru einkasýningu listamannsins Kolbeins Huga Höskuldssonar, Still drinking about you, sem fjallar á fordómalausan hátt um sjúkan hugarheim fíkilsins. Kolbeinn flutti ásamt samleigjendum sínum og vinum Elvari og Jóni Pálmari inn í Nýlistasafnið þann 13. janúar og mun dvelja þar til 31. janúar eða á meðan sýningin stendur. Óhljóðatvíeykið Snatan Últra kemur fram
á opnuninni en laugardagana 20. og 27. janúar verða sérstakar uppákomur kl. 21.
Ég drekk enn vegna þín
U m s j ó n : K o r m á k u r B r a g a s o n . N e t f a n g k o r m a k u r @ d v . i s
tónlist Íslenska óperan heldur upp á 25 ára afmæli óperusýninga í Gamla
bíói um þessar mundir og af því tilefni eru hafnar æfingar á óper-
unni Flagari í framsókn eftir Igor Stravinsky en óperan verður frumsýnd þann 9.
febrúar. Leikstjóri er Halldór E. Laxness og hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky.
föstudagur 19. janúar 200754 Helgarblað DV
Garðar Cortes átti frumkvæðið
að því að stofnuð yrði eiginleg óp
era á Íslandi 1978. Fyrsta verk Óp
erunnar var I Pagliacci eftir Leonc
avallo sem var flutt í Háskólabíói á
vormánuðum 1979. Eftir það gerð
ust hlutirnir hratt og þegar Íslenska
óperan fékk veglegt fjárframlag við
fráfall hjónanna Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða Kristjánssonar kaup
manns gat Styrktarfélag Íslensku
óperunnar fest kaup á á Gamla bíói
við Ingólfsstræti þar sem Íslenska
óperan hefur verið rekin síðan.
„Óperan er sjálfseignarstofnun
og gerir þjónustusamning við rík
ið. Núverandi samningur, sem hef
ur gilt frá áramótum 2005–6, trygg
ir óperunni 175 milljónir á ári í
þrjú ár. Við höfum reyndar svolitlar
áhyggjur af verðlagsþróuninni því
samningurinn tryggir ekki að henni
verði fylgt. Mikil gróska í sönglífi
þjóðarinnar undanfarin ár og fag
legar framfarir hafa orðið til þess að
meiri væntingar eru gerðar til Óp
erunnar. Sýningarnar verða dýrari
og meira í þær lagt þrátt fyrir að öll
aðstaða sé af skornum skammti og
plássleysi mikið. Það er líka löngu
viðurkennt að aðstaða fyrir óperu
gesti þurfi að vera betri. Við lifum
þó enn á sjarma Gamla bíós þó að
við lítum með tilhlökkun til þess að
Kópavogsbúar geri alvöru úr því að
reisa óperuhús,“ segir Bjarni Daní
elsson óperustjóri.
Metnaðarfull dagskrá
Við skuldbindum okkur til að
vera með tvö meginverkefni á ári
en engu að síður leggjum við mik
ið upp úr því að vera með samfellda
dagskrá. Verkefnaskráin er komin
út fyrir árið og skipulagn
ing næsta árs svo gott sem
klár. Þá verðum við með
frumsýningar á Íslandi á
óperum eftir Strauss og
Händel auk þess að flytja
óperuna Powder on Her
Face eftir ungan breskan höfund
Thomas Adés og svo nýja íslenska
óperu í fullri lengd en núna er það
sem sagt Flagarinn sem stendur
fyrir dyrum.“
Afmælissýning með
Stravinsky
Óperan Flagari í framsókn (The
Rake´s Progress) eftir Igor Strav
insky var frumsýnd í Feneyjum árið
1951 og byggir á átta litógrafíum
eftir William Hogarth frá árunum
1733–1735 sem lýsa falli hins unga
Toms Rakewell. Texti óperunnar
er eftir breska ljóðskáldið William
H. Auden og Chester Kallmann en
Flagari í framsókn er talin ein vin
sælasta ópera sem samin hefur ver
ið eftir daga Puccinis. Þetta er, eins
og gildir um svo margar óperur sem
settar eru upp á Íslandi, í fyrsta sinn
sem verkið er sett upp hér á landi.
Verkið er sextugasta verkefni óp
erunnar þannig að segja má að af
mælið sé tvöfalt.
Gamansamur harmleikur
Óperan hefst þar sem aðalhetj
an Tom Rakewell er um það bil að
trúlofast Anne Trulove þrátt fyrir
að faðir hennar hafi áhyggjur af því
hvernig Tom ætli að sjá fyrir henni.
Þá birtist Nick Shadow, sem tjá
ir honum að hann hafi erft allmik
il auðæfi eftir óþekktan frænda og
býðst til að gerast þjónn hans. Tom
bítur á agnið en vegferð hans liggur
eftir það til glötunar þar sem freist
arinn í líki Nicks kynnir hann fyr
ir heimsins löstum og sífellt hallar
undan fæti. En Anne hættir aldrei
að elska hann og að lokum finn
ur hún hann á geðveikrahæli þar
sem hann heldur sig vera Adonis
og hana Venus. Hún syngur hann í
svefn og yfirgefur hann síðan hljóð
lega. Þegar hann verður var við að
hún er farin þá deyr hann.
Einsöngvarar í sýningunni eru
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran,
sem syngur hlutverk Anne Trulove,
unnustu flagarans sem Gunnar
Guðbjörnsson tenór syngur. Freist
arinn, hinn skuggalegi Nick Shad
ow er sunginn af Ágústi Ólafssyni
barítón. Hr. Trulove faðir Anne er
sunginn af Jóhanni Smára Sæv
arssyni bassasöngvara. Ingveldur
Ýr Jónsdóttir messósópran syngur
hlutverk hinnar skeggjuðu Tyrkja
Böbu sem Tom giftist á vegferð
sinni. Sigríður Aðalsteinsdótt
ir messósópran syngur hlutverk
vændishúsaeigandans mömmu
Gæsar og bráðefnilegur ungur ten
ór Eyjólfur Eyjólfsson fer með hlut
verk uppboðshaldarans Sellems.
Það er Axel Hallkell Jóhannesson,
einnig þekktur sem Seli úr Langa
Sela og skuggunum, sem hann
ar leikmynd. Búninga hannar hin
margverðlaunaða Filippía Elísdótt
ir og ljósahönnuður er Björn Berg
steinn Guðmundsson.
Fáar sýningar
Aðsókn í Óperuna er ekki jafn
mikil og áður en hefur þó aukist
síðustu ár. Sjö sýningar eru áform
aðar á Flagara í framsókn en það
gildir einnig um flestar aðrar upp
setningar og uppákomur óperunn
ar á vormisseri að sýningafjölda er
stillt í hóf. „Helsta vandamálið er að
sýningarnar í dag eru dýrari í upp
setningu. Meira er lagt í þær og þar
sem húsið er lítið er tap á hverri
sýningu. Við stillum sýningafjölda í
hóf til að vera innan fjárhagsramma
hússins. Íslenska óperan leggur þó
sitt af mörkum við að ala upp nýja
kynslóð óperuunnenda og óperan
hefur ákveðið að bjóða öllum undir
25 ára 50% afslátt á sýningar eins og
var í fyrra og mun halda því áfram í
framtíðinni,“ segir Freyja Dögg Frí
mannsdóttir, yfirmaður markaðs
sviðs Íslensku óperunnar.
kormakur@dv.is
Jóhann
bæjarlista-
maður
Tónlistarmaðurinn Jóhann
Helgason er bæjarlistamaður
Seltjarnarness 2007. Jóhann
á að baki langan tónlistar
feril og var fyrstur íslenskra
tónlistarmanna til að skrifa
undir höfundarsamning er
lendis. Jóhann hefur búið á
Seltjarnarnesi frá 1981. Mörg
laga hans hafa orðið vinsæl
og þekktast er Söknuður. sem
hefur verið hljóðritað 47 sinn
um á hljómplötur og diska
með mörgum flytjendum.
Aðstandendur sýningarinnar Flagari í framsókn
fjöldi söngvara og 39 manna hljómsveit taka þátt í
sýningunni. Þrátt fyrir fjarveru sinfóníunnar tókst að
manna svo stóra hljómsveit fyrir óperuna.
Bjarni Daníelsson Óperustjórinn horfir
björtum augum til framtíðar Íslensku
óperunnar og telur mikla grósku í íslensku
tónlistarlífi.
Gísli Örn á
shooting star
Evrópska kvikmyndakynning
in, European Film Promot
ion, heldur árlega kynningu á
ungum og efnilegum leikurum
undir fyrirsögninni Shooting
Star og er hún haldin í tengsl
um við kvikmyndahátíðina í
Berlín ár hvert. Gísli Örn Garð
arsson verður fulltrúi Íslands í
ár. Gísli Örn átti stórleik í kvik
myndinni Börnum á síðasta
ári og kemur einnig fram í tví
buramynd Barna, Foreldrum,
sem frumsýnd var um síðustu
helgi. Myndin verður sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Rotter
dam nú um helgina.
stærsta
víkingasafnið
Áform eru uppi í Stokkhólmi
um að byggja þar stærsta vík
ingasafn
Norður
landa og
eiga ferða
menn
að geta
upplifað
víkinga
tímann
á sjálf
um sér.
Danska blaðið BT bendir á
að slíkt safn verði í ógnandi
samkeppni við víkingaskipa
safnið í Hróarskeldu. Sænska
dagblaðið sagði að Víkinga
miðstöðin í Stokkhólmi hefði
áform um að reisa stærstu
menningarbyggingu Norð
urlanda um víkingatímann
og fornminjar frá víkinga
öld. „Safnið verður í miðborg
Stokkhólms af tillitssemi við
túrista í tímaþröng,“ segir Mar
ie Nork fornleifafræðingur.
Verkið er sextugasta verkefni
óperunnar þannig að segja
má að afmælið sé tvöfalt.
hverri sýningu
Tap er á