Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 58
föstudagur 19. janúar 200758 Helgarblað DV
É
g þekki það af eig-
in raun hversu miklu
máli hver króna skipt-
ir,“ segir Bergvin sem
þáði hjálp Eyjabúa
fyrir nokkrum árum
til að geta keypt tölvu
og hjálpartæki. Þá var Bergvin fimmt-
án ára og orðinn blindur af völdum
víruss sem lagðist á augu hans.
Saga Bergvins Oddssonar er saga
fótboltaunnanda sem heillaðist
snemma af stjórnmálum. Hann bar
út Alþýðublaðið í Vestmannaeyjum
og eftirlætissjónvarpsefnið hans voru
útsendingar frá Alþingi.
„Ég er þrælpólitískur,“ segir hann.
„Þegar ég var í 10. bekk í grunnskóla
hringdi ég í Össur Skarphéðins-
son og spurði hvort ég mætti koma í
starfskynningu á Alþingi. Í framhaldi
af því bauð Össur mér á landsfund
Samfylkingarinnar síðar þann vetur.
Í fyrra vann ég mikið í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík, Grindavík
og Vestmannaeyjum og skellti mér
svo sjálfur í framboð fyrir Suðurkjör-
dæmið. Það er hins vegar afskaplega
lítil hætta á að ég fari á þing í haust.
Ekki nema þeir fimmtán sem eru
fyrir framan mig á listanum annað-
hvort hætti við eða deyi!“ segir hann
og skellihlær. „Ég tilkynnti reyndar á
fundi Samfylkingarinnar í haust að
ég ætlaði að verða forsætisráðherra
árið 2031, fyrsti blindi forsætisráð-
herra veraldar.“
Þjóðin útvegar brandarana
Hlátur og gleði einkenna þennan
strák sem frá unga aldri kom fram á
skemmtunum í grunnskólanum í Eyj-
um með uppistand. Nú hefur hann
skráð sig í keppnina Fyndnasti mað-
ur Íslands sem haldin verður í febrú-
ar.
„Góður uppistandari þarf að
kunna að dansa á línunni,“ svarar
hann aðspurður. „Fína línan er sú að
geta verið fyndinn án þess að særa.
Ég verð aldrei uppiskroppa með
efni, því íslenska þjóðin kemur með
línurnar á færibandi í tengslum við
blindu mína!“ segir hann og segir af
því tilefni eina sögu.
„Þegar ég var sautján ára ákvað
ég að skella mér norður og vera
með uppistand hjá Menntaskólan-
um á Akureyri. Mamma fékk nátt-
úrulega næstum taugaáfall þegar ég
sagði henni að blindi sonurinn ætl-
aði aleinn með flugvél! Flugfreyjunni
var kunnugt um að ég væri blindur,
þannig að um leið og ég var sestur í
2B kom hún og bauðst til að spenna
á mig sætisbeltið og sagði mér hátt
og skýrt frá öllum öryggisreglunum.
Hún hefur auðvitað vitað sem var, að
blindur maður heyrir ekki, og þess
vegna hefði ég ekki getað heyrt hvað
hún sagði í hljóðnemann tveimur
mínútum síðar!“ Hann fær hressilegt
hláturskast svo undir tekur í íbúð-
inni. „Þetta er svona svipað og þeg-
ar heyrnarlausir koma að selja happ-
drættismiða og fólk nánast kallar:
„No, thank you!“
Mamma hans Auður Finnboga-
dóttir er í heimsókn hjá syninum. Þeg-
ar Bergvin bregður sér í módelstörf
með ljósmyndaranum spyr ég móð-
urina hvort gleðin sé þessum strák
eðlislæg eða hvort þetta sé vörn.
„Hann er alltaf í góðu skapi,“ seg-
ir hún án umhugsunar. „Þegar hann
blindaðist missti hann aldrei móð-
inn og það var hann sem hvatti okk-
ur foreldrana og studdi. Mér fannst
veröldin hrynja þegar úrskurðurinn
kom. Við vorum stödd á augnspítala í
London þegar hann blindaðist alveg,
en þangað vorum við send þar sem
læknar á Íslandi vissu ekki hvernig
bregðast skyldi við.“
„Ég sé aldrei sætustu
stelpurnar“
Ástæða blindunnar er vírusinn
herpes simplex I. Bergvin hafði fyrst
kennt meins í vinstra auga þegar
hann var þrettán ára og missti fljót-
lega sjón á því. Þessi strákur sem
hafði alla tíð verið orkubolti og keppt
í handbolta og fótbolta lét ekki deigan
síga og hélt íþróttaiðkuninni áfram.
Tveimur árum síðar lagðist vírusinn
á hægra augað með þeim afleiðing-
um að hann varð alveg blindur.
„Fólk með 50% sjón á öðru
Ætlar að verðafyrsti blindi forsÆtisráðherrann
Það kyngdi niður snjó
og veðurguðirnir voru
ekki í sem bestu skapi.
En hann var aftur á
móti í skínandi góðu
skapi ungi maðurinn
sem stóð við bensín-
stöð Atlantsolíu á
Höfðanum og seldi
salernispappír. Hann
var að safna fyrir fjöl-
skyldu Nóna Snæs,
sem lamaðist eftir
bílslys á Suðurlands-
vegi 2. desember.
Bergvin Oddsson
lætur sig allt varða.
Heldur húmornum „Líkurnar á að fá þennan vírus í augun eru
jafnmiklar og á að vinna tvisvar í Víkingalottóinu í sama mánuði.“