Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 60
vín- egar og oreganó í lít- illi skál. Kryddið með salti og pipar eftir smekk. Hrærið saman eggjum og vatni og blandið saman. Setjið brauð- mylsnu á einn disk og hveiti á annan. Takið eggaldinsneiðar og leggið létt í hveitið, svo í eggið og svo í brauð- mylsnuna og þekið vel með henni. Setjið á bökunarplötuna og dreif- ið olíublöndunni yfir. Látið standa í 15 mínútur, bakið þar til sneiðarnar eru brúnar og mjúkar á báð- um hliðum. Snúið við nokkr- um sinnum og bakið samtals í 35 mínútur. Kælið á bökun- arplötunni. Raðið á stórt fat eða bretti sneiðum af tómati, basillauf- um, gúrku (langsum), skinku, eggaldinum og mozzarella. Fatið verður litríkt og girni- legt og þannig staðsett að all- ir geta náð í eins og af hlað- borði. Ristið pítubrauðið þegar 5 mínútur eru í borð- hald eða jafnt og þétt á meðan fólk raðar sam- an pítunum sínum. U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s &Matur vín Vínspeki Oft getur reynst erfitt að velja vín með mat en þegar kemur að þorranum: bjór og snafs, bjór og snafs og já, meiri bjór og snafs. Hér neðst á síðunni kem ég með þrjár úrvalstegundir af bjór sem mér persónulega finnst tóna best á þorranum. Ein íslensk, ein dönsk og ein spænsk. Megir þú, lesandi góður, eiga ánægjulegan þorra. Skál! föStudagur 19. janúar 200760 Helgarblað DV Þ orbjörg Helga Vigfús- dóttir er matgæðingur vikunnar, en Inga Lind Karlsdóttir skoraði á hana í síðasta blaði. Þor- björg er borgarfulltrúi og formaður leikskólaráðs Reykjavík- ur. „Þessi uppskrift varð til í Banda- ríkjunum þegar ég var þar í námi. Við söknuðum svolítið íslensku pít- unnar og loksins fundum við brauð sem hentaði. Það vantaði náttúru- lega þessa sérstöku pítusósu sem er til hérna á Íslandi, en ég og vin- kona mín fundum upp þessa góðu sósu,“ segir Þorbjörg og segist fá vatn í munninn þegar hún rifjar upp upp- skriftina. InnIhald l 8–10 pítubrauð l ferskur basil (heill pakki) l 2 pokar ferskur mozzarella l Ein gúrka, 6–8 tómatar l Lúxusskinka, salami eða hráskinka l 1–2 eggaldin (fer eftir stærð) l ¼ bolli ólífuolía l ¼ bolli balsamik vínegar l 1½ msk. oreganó (þurrt) l 2 egg l Hveiti l 2 msk. vatn l Brauðmylsna (breadcrumbs) SóSa l 1 bolli jógúrt án bragðefna eða aB mjólk l ½ bolli létt mæj- ónes (mæli með lífrænt ræktuðu mæjónesi í Hagkaupum) l Lítil krukka af tapenade eða ristuð- um paprikum eftir smekk l ½ bolli saxaður, ferskur basil l 1 hvítlauksgeiri aðferð Hrærið saman jógúrt, mæjónesi, tapenade eða ristuðum paprikum, basil og hvítlauk í með- alstóra skál og bland- ið vel saman. Krydd- ið með salti og pipar eftir smekk. Setjið plast yfir og kælið. Hitið ofninn að 220° gráðum. Smyrjið eldfast mót eða bök- unarplötu með olíu og skerið eggald- in þvert í tæplega 1 sm þykkar sneið- ar. Hrærið saman ólífuolíu, balsamik Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir býr til pítur: Matgæðingurinn Egils þorrabjórinn 5,6% Hér er um að ræða alíslenskan þorrabjór sem unninn er úr íslensku byggi. Þetta er ein þeirra hugmynda sem við Íslendingar getum verið stoltir af en bruggmeistarar ölgerðarinnar hafa náð gæðastaðli erlendra fyrirmynda sinna og gott betur. Þessi bjór er 3-4 vikur í lögun og með þýska festival-bragðið. Hann er gullinbrúnn, mildur en þéttur, smákryddaður vökvi sem hreinlega gæti laðað að þýska ferðamenn einn og sér. Eingöngu seldur í 33 cl flöskum sem eru frekar látlausar en segja ekkert. Persónulega mæli ég með að hann sé ekki of kaldur við drykkju. Verð í vínbúðum ÁTVR: 194 kr. Estrella Damm 5,4% Einn af aðalstyrktaraðilum boltafélagsins Barcelona, vinsælasti bjór Spánar, kemur hér með beinu flugi á Saga Class og inn á þorraborð landsmanna, læti og froða, kætir með goða. djúpgylltur með appelsínutón, malti og humlum, geri, smá karamellu og málmi! frískandi öl, millitónað í bragði með góðu jafnvægi í sykri, sýru og remmu, með góðu nefi finnur þú apríkósukeim í lokin. Eingöngu seldur í 50 cl dósum, flott merki, góður litur. Bestur borinn fram við 5-7°C. Verð í vínbúðum ÁTVR: 200 kr. Faxe-Ceres 5,6% Það skyldi þó ekki vera í tengslum við þorrann að danir verði hér fyrir valinu, varla, mér hefur aldrei líkað við tungumálið þeirra enda ætla ég ekki að fjalla um það hér. Þeir kunna ýmislegt fyrir sér og þegar velja á bjór til drykkjar þá sækir þorsti minn þangað í svölun. faxe-Ceres, skartgripagylling, mildur kryddaður keimur sem heldur jafnvægi alla leið að vörum, hann er vínlegur mjöður og uppfyllir allar þær kröfur sem hörðustu bjórdrykkjumenn gera til lagerbjóra í þessum styrkleikaflokki. Smartar umbúðir, mættu segja meira. drekkist ískaldur. Verð í vínbúð ÁTVR: 50 cl 199 krónur, 33 cl 139 krónur (kemur í sniðugri ferðatösku með 12 dósum) en frá og með 1. febrúar verður þessi mjöður á 119 krónur sem ætti að kæta neytendur um þorrann. Upp- stúfur að hætti ömmu uppstúfur fyrir 4, en oft er talað um hann sem 14. jólasveininn sem kemur á þorranum og loðir vel með öllu súrmetinu. l ½ l mjólk l 50 g smjör l 50 g hveiti l ¼ bolli sykur l 1 msk. salt aðferð: Bræðið smjörið í potti, hrærið hveitinu saman við, hellið mjólkinni út í og hrærið vel saman á meðan suðan kemur upp. Látið malla í örfáar mínútur og passið upp á að brenni ekki við botninn. Bragðbæt- ið með salti og sykri og bætið við ef með þarf. axel ó. skrifar: axelo@visir.is Þorbjörg skorar á Kristrúnu Lind Birg- isdóttur sem er nýr- áðin aðstoðarmaður samgönguráðherra. Rófu- stappa ungmeyjarinnar l rófur (skrældar og skornar í bita) l Salt l Sykur aðferð: Setjið rófurnar í volgt vatn, sjóðið rólega þar til þær eru mjúkar í gegn, sigtið þær þá vel og þerrið. Merjið þær í skál, kryddið með salti og sykri, blandið svo örlitlum uppstúf saman við og bragðlaukarnir fara af stað. Bera má stöppuna fram hvort sem er heita eða kalda. Saknaði DV mynd Stefán íslenskupítunnar gull silfur Brons

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.