Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Qupperneq 66
Helgarblað DV
Hljómsveitin Steed Lord var á lista DV yfir þær hljómsveitir sem
eru líklegar til stórræða á árinu. Um þessar mundir er bandið í
upptökum og stefnir á að gefa út plötu næsta sumar. Einnig hefur
það ráðið til sín umboðsmanninn Róbert Aron Magnússon sem
segir að kynningartónleikaferðalag í Evrópu og Bandaríkjunum
sé yfirvofandi.
Taka upp plöTu
og spila víða
Eftir tónleikaferð Sigur Rósar um
landið síðastliðið sumar, spurðist
það út að hljómsveitin væri að
vinna að veglegum dvd-disk sem
líta myndi dagsins ljós í vetur.
Marga aðdáendur er farið að
lengja eftir fréttum af útgáfunni,
en hljómplötufyrirtækið
Smekkleysa vill lítið gefa upp.
Samkvæmt Ásmundi Jónssyni,
framkvæmdastjóra Smekkleysu
stendur vinna við diskinn ennþá
yfir og því er ljóst að aðdáendur
þurfa að bíða í nokkra mánuði í
viðbót og svo gæti jafnvel farið
að diskurinn kæmi ekki út fyrr en
í lok þessa árs.
Vinna
stendur yfir
Gettu betur að taka á siG mynd
Spurningakeppni framhaldsskól-
anna er komin vel á veg og er farið
að skýrast hvaða átta skólar munu
mætast í sjónvarpssal. Þeir skólar
sem hafa tryggt sér sæti meðal átta
efstu eru Fjölbrautaskólinn í
Garðabæ, Menntaskólinn við
Hamrahlíð, Menntaskólinn við
Sund, Verzlunarskóli Íslands,
Menntaskólinn á Egilsstöðum og
Menntaskólinn í Reykjavík. Í
gærkvöldi áttust svo við annars
vegar Menntaskólinn á Akureyri og
Flensborgarskólinn og hins vegar
Hraðbraut og Menntaskólinn í
Kópavogi um tvö síðustu sætin í
sjónvarpskeppninni.
Frábær á tónleikum
Elli eða AC Bananas og Svala taka sig vel út á sviði.
Það eru alls konar hlutir í gangi, núna erum við á fullu að taka upp ný lög,“ segir söngkon-an Svala Björgvinsdóttir. Hún
ásamt hljómsveit sinni Steed Lord
stefnir á að gefa út plötu næsta sum-
ar. Hróður hljómsveitarinnar hefur
aukist mikið síðustu misseri. Hús-
fyllir er á næstum öllum tónleikum
sveitarinnar og æ fleiri bætast í að-
dáendahópinn með hverjum deg-
inum. Ásamt Svölu í hljómsveitinni
eru kærastinn hennar Einar Egils-
son og bræður hans, þeir Erlend-
ur og Egill. Tónlist sveitarinnar er
fersk, nokkurs konar bræðingur af
house-tónlist, elektró og crunk með
smá skvettu af rappi. Undanfarið
hefur fjöldinn allur af tónleikahöld-
urum og erlendum blaðamönnum
sett sig í samband við sveitina, en
til þess að sinna eftirspurninni réð
Steed Lord til sín umboðsmanninn
Róbert Aron Magnússon, sem er
betur þekktur sem Robbi rapp.
Tónleikaferðalag í vændum
„Það er verið að skoða alla val-
möguleika og allt er enn á vinnslu-
stigi, en á döfinni er að skella sér í
smá kynningartónleikaferðalag um
Evrópu og Bandaríkin,“ segir Róbert
Aron, sem er staddur í London við
nám um þessar mundir. Róbert seg-
ir að það komi á óvart hve mikil eft-
irspurn sé eftir bandinu á ótrúleg-
ustu stöðum en hann ítrekar að ekki
verði bitið á hvaða agn sem er. Mikið
af fyrirspurnum úr tískuheiminum
hafa borist og segir Róbert að það sé
kjörmarkaður fyrir hljómsveitina.
„Það er bara mikilvægt að velja
þá staði sem henta okkur, segja ekki
já við öllu, heldur tryggja að við
séum að spila á réttum stað á rétt-
um tíma,“ segir Róbert og bætir við
að tveir staðir í Rússlandi hafi nú
þegar haft samband með nokkuð
spennandi tilboð.
Leiðandi í „nu-rave“ æðinu
Heimasíðan thecoolhunter.net
sem nýtur mikilla vinsælda fjall-
aði nýlega um Steed Lord. Nýtt æði
geisar nú í Bretlandi, „nu-rave“ en
það er vísun í „rave“-partíin sem
vinsæl voru í upphafi tíunda áratug-
arins. Thecoolhunter segir að Steed
Lord beri höfuð og herðar yfir önn-
ur bönd, sem spili „rave“-væna tón-
list, en bönd á borð við The Klaxons,
Shitdisco og Hadouken eru nefnd.
Þá hafa fleiri miðlar fjallað um
bandið, meðal annars Alien magaz-
ine, BPM og Electronic beats.
dori@dv.is
Steed Lord Með eigin stíl, sem er flottur
og öðruvísi.
Róbert Aron Magnússon, umboðs-
maður sveitarinnar
Segir að mikið sé spurt um bandið,
en að ekki verði stokkið á hvaða
tækifæri sem er.