Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Qupperneq 72
föstudagur 19. janúar 200772 Helgarblað DV
Hreimur flytur lagið draumur í keppninni á
morgun. „formið á laginu er mjög óhefðbundið
miðað við Eurovision. útsetningin er mun líkari
hefðbundnu robbie Williams-lagi heldur en
hefðbundnu Eurovision-lagi. Lagið byggist ekki
upp á erindum og kraftmiklum viðlögum, frekar
er notast við mjög epískan fiðlukafla til þess að
gefa því kraft. textinn er einnig mjög fallegur og
það var ástæðan fyrir því að ég tók þetta lag,“
segir Hreimur og heldur áfram: „Þetta er
náttúrulega Eurovison og lög geta aldrei verið
annað en dálítið geld þegar maður þarf að
beygja sig undir einhvern tíma. flest lögin eru
samin og svo eru þau klippt niður í 2:55–3:10.
flest popplög eru þrjár og hálf til fjórar mínútur
að lengd en þessi lög verða að vera styttri.
7 Sími: 900-2007
Draumur
Lag: sveinn rúnar sigurðsson Texti: Kristján
Hreinsson Flytjandi: Hreimur Heimisson
Matthías Matthíasson, betur þekktur sem Matti í
Pöpunum er flytjandi lagsins Húsin hafa augu.
„Þetta er svona nett kántrí í smá Eagles-stíl, með
fallega rödduðu viðlagi. Þetta er bara lítið og
sætt lag. Viðlagið greip mig allavega strax og
mér þykir það ágætis viðmið að 10 mínútum
eftir að ég hlustaði á lagið í fyrsta sinn þá mundi
ég viðlagið. Mér finnst það mikilvægt að lögin
séu grípandi. annars hefur mér fundist að fólk
gleymi því að þetta er lagasamkeppni, en ekki
söngvarakeppni. fólk kýs bara vinsælasta
söngvarann og það er ekki það sem Eurovison á
að ganga út á. Þeir sem klæða sig í skrímslabún-
ing vinna, en það ætla ég ekki að gera. Ég ætla
að vera ósköp venjulegur söngvari með
kassagítar.“
8 Sími: 900-2008
Húsin HaFa augu
Lag: Þormar Ingimarsson Texti: Kristján Hreinsson
Flytandi: Matthías Matthíasson, Pétur örn
guðmundsson og Einar Þór jóhannsson
Bergþór smári flytur frumsamið lag, Þú gafst mér
allt. Bergþór smári starfar bæði sem verkfræð-
ingur og gítarkennari í tónsölum í Kópavogi.
„Þetta er svona gítarpopp, gítar, bassi og
trommur,“ segir Bergþór smári flytjandi og
höfundur lagsins. „Ég hef spilað mikinn blús í
gegnum tíðina og þetta lag er ekki alveg í þeirri
kategóríu, en það eru samt greinileg áhrif. Ég var
svo sem ekkert að rembast við að vera ó-
Eurovisonlegur, ég gerði þetta bara eins og ég vil
hafa það. Það er bara gaman að fá tækifæri til
þess að spila á svona stóru kvöldi.“
6 Sími: 900-2006
Þú gaFsT mér aLLT
Lag og texti: Bergþór smári
Flytjandi: Bergþór smári
skagamaðurinn finnur jóhannsson sem flytur
lagið allt eða ekki neitt, starfar utan tónlistar-
innar sem vaktmaður á Víðinesi á Kjalarnesi.
„Ætli megi ekki flokka þetta sem gamaldags
rokk. Ég er náttúrulega gamall í hettunni og hef
spilað töluvert í hljómsveitum í gegnum tíðina,“
segir finnur sem meðal annars lék með
hljómsveitinni tíbrá á árum áður. „Við erum
aðeins að brjóta upp formið á þessu, ég myndi
ekki beint kalla þetta týpískt Eurovison-lag, en
það verður rosalega gaman að taka þátt.“
4 Sími: 900-2004
aLLT eða ekki neiTT
Lag: torfi Ólafsson, Eðvarð Lárusson, Þorkell
Olgeirsson
Texti: Þorkell Olgeirsson
Flytjandi: finnur jóhannsson
„Þetta er bara nútímalegt og hressandi kántrí-
popplag,“ segir sigurjón Brink flytjandi lagsins
Áfram, en hann fékk meðal annars jóhannes
Ásbjörnsson þess að leggja sér lið við textagerð.
„jói dustaði rykið af skáldagáfunni og ég held að
þetta lag geti vakið athygli, uppskriftin er ekki
beint Eurovision, en þetta er samt sem áður nett
stuðlag og ég er viss um að þetta muni ekki fara
fram hjá neinum. Eftir að símakosningin var
innleidd þá opnaðist keppnin upp á gátt. Það er
ekki lengur nein ákveðin Eurovison-stefna, til
dæmis var lagið sem vann í fyrra mjög lítið í anda
við Eurovision-formúluna.
5 Sími: 900-2005
ÁFram
Lag: sigurjón Brink og Bryndís sunna Valdimarsdóttir
Texti: Bryndís sunna Valdimarsdóttir og jóhannes
Ásbjörnsson
Flytjandi: sigurjón Brink
snorri snorrason stóð uppi sem sigurvegari í
Idol-stjörnuleit í fyrra. Í keppninni í ár flytur
snorri lagið Orðin komu aldrei. „Ég myndi lýsa
þessu sem rólegri ástarballöðu, það kannski slag-
ar upp í kraftballöðu, en þó er ekkert glysrokk í
því. Það er heldur ekkert sérstaklega mikill
Eurovison-keimur af laginu, enda þarf það ekki
alltaf að vera. Ég er nokkuð bjartsýnn á þetta og
tel að það eigi jafnmikla möguleika á að komast í
úrslit og hin lögin sem keppa á morgun. Ég veit
svo sem ekkert hvort þjóðin mun endilega
standa jafnvel með mér eins og í Idolinu, enda
eru fleiri Idol-stjörnur en ég að keppa.
2 Sími: 900-2002
Orðin kOmu aLDrei
Lag: Óskar guðnason
Texti: Kristján Hreinsson
Flytjandi: snorri snorrason
aðalheiður Ólafsdóttir syngur lagið Enginn eins
og þú. Heiða segir lagið skera sig nokkuð úr. „Þetta
er mjög fallegt lag sem ég syng, jafnframt er
útsetningin mjög sérstök. Í laginu er nefnilega
bara drengjakvintett og söngur, það kemur
ofboðslega fallega út og svona hefur örugglega
ekki sést í Eurovision-forkeppninni áður, mér líður
allavega rosalega vel þegar ég syng þetta lag og
ég gat ekki sagt nei þegar það barst í mínar
hendur,“ segir hún. „Ég er rosalega spennt fyrir
keppninni, enda finnst mér Eurovision vera
skemmtileg keppni og það eru mjög skemmtileg
fjölskyldukvöld í vændum. Það er náttúrulega
alveg frábært að á næstu vikum munum við fá að
heyra 24 ný íslensk lög.“
3 Sími: 900-2003
enginn eins Og Þú
Lag: roland Hartwell
Texti: stefán Hilmarsson
Flytjandi: aðalheiður Ólafsdóttir
söngkonan unga Bríet sunna, segist upphaflega
ekki hafa ætlað að taka þátt í forkeppninni. „Ég var
búin að fá tilboð um að syngja nokkur lög, en svo
leist mér bara svo rosalega vel á þetta lag að ég
bara varð að vera með,“ segir Bríet sunna um lagið
Blómabörn sem hún flytur í keppninni annað
kvöld. „Þetta er hress ballaða, svona hálfgert
hippalag því textinn í því fjallar um frið á jörð. Ég
held að þetta lag eigi ágæta möguleika, þetta er
ekki Eurovision-klisja, heldur er þetta bara gleði
og gaman.“
Bríet segist ekki óttast samkeppnina frá hinum
Idol-stjörnunum. „Ég veit ekkert hvernig mér á
eftir að ganga, en vonandi næ ég að vinna snorra
í þetta sinn,“ segir hún hlæjandi.
1 Sími: 900-2001
BLómaBörn
Lag: trausti Bjarnason
Texti: Magnús Þór sigmundsson
Flytjandi: Bríet sunna Valdemarsdóttir
Fyrsta undanúrslitakvöldið í söngvakeppni sjónvarpsins fer fram
í beinni útsendingu á morgun, en þá munu átta keppendur stíga
á stokk. DV heyrði hljóðið í flytjendunum og spjallaði við þá um
lögin sem þeir syngja. Flestir voru sammála um að þeir hefðu
eitthvað nýtt fram að færa sem ekki heyrist oft í eurovision.
Ekki týpískEurovision-lög