Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 2
Starfssvæði Þróunarfélags Keflavík- urflugvallar ehf., C-svæði varnar- svæðisins sem tekið var í borgara- leg not fyrir tveimur vikum, er inni á sameiginlegu aðalskipulagi með flugvallarsvæðinu og sérstöku ör- yggissvæði. Þar hefur aldrei verið gert deiliskipulag eins og íslensk lög kveða á um, enda var svæðið í um- sjón Bandaríkjamanna til skamms tíma. Þar sem ekki er deiliskipulag má ekki byggja eða breyta nema með sérstökum undanþágum. Heildarendurskoðun á aðalskipulagi Reykjanesbær er að hefjast handa við heildarendurskoðun á aðalskipu- lagi sveitarfélagsins, þar með á hluta varnarsvæðisins, að sögn Viðars Más Aðalsteinssonar, forstöðumanns umhverfis- og skipulagssviðs. Innan sveitarmarka Reykjanesbæjar falla velflest íbúðarhús á vellinum og aðr- ar byggingar á starfssvæði Þróunar- félagsins. Aðalskipulagið verður lík- lega ekki tilbúið fyrr en eftir tvö ár, að sögn Viðars, og það þarf að liggja fyr- ir til þess að hægt sé að vinna deili- skipulag eftir því. Til þess að hefjast megi handa fyrir þann tíma verð- ur að gera grenndarkynningu og fá undanþágu byggingarnefndar sveit- arfélagsins. Í aðalskipulaginu verður meðal annars gert ráð fyrir breyting- um á vegum og götum til að tengja vallarbyggðina við aðra byggð á svæðinu og eins er reiknað með að byggðin geti stækkað. Ekki byggð eftir íslenskum reglum Að sögn Kjartans Eiríksson- ar,framkvæmdastjóra er talsverður hluti af húsunum á svæðinu byggð- ur í kringum 1950 en flest húsin hafa verið tekin algjörlega í gegn. Fáar ný- byggingar risu á varnarsvæðinu síð- ustu árin sem varnarliðið var þar en þeim mun meira var gert upp og endurnýjað. Húsin eru hins veg- ar hvorki byggð né gerð upp eftir ís- lenskum stöðlum eða reglugerðum. Nú liggur fyrir að skoða hvert hús, hvar misræmi sé, miðað við íslensk- ar reglur. Allar raflagnir líklega endurnýjaðar Kjartan treysti sér ekki til að giska á hversu mikil vinna væri fyrir hönd- um í að breyta húsum en sagðist sjálfur efast um að miklu þyrfti að breyta. Þeir staðlar sem Bandaríkja- menn miði við séu í sumum tilfell- um strangari en íslenskar byggingar- reglugerðir, til dæmis í brunavörnum. Hins vegar lægi fyrir að endurnýja allar raflagnir, þar sem rafmagn í húsunum er eftir bandarísku kerfi, sem hefur aðra spennu en gerist og gengur í íslensk- um húsum. Fleiri en kakkalakkar á kreiki Húsin á varnarsvæðinu eru ekki öll tóm og dauð. Ýmsir undirverktakar sem unnu fyrir varnarliðið, Flugmálastjórn og Rat- sjárstofnun hafa þar enn að- stöðu sem þeir nýta eins og ekkert hafi í skorist. Auk þess er Penninn kominn með ritfangalager og dreif- ingarmiðstöð inni á varnarsvæðinu, þar sem vinna 25 manns. Kjartan bíður eftir niðurstöðum úr könnun á því hvernig skipulagsmálin fara en vonast til að geta boðið fleiri nýjum fyrirtækjum inn á starfssvæði Þróun- arfélagsins, ef ekki komi upp óvæntar hindranir. Hann segist hafa fengið erindi og hug- myndir frá aðilum sem vilja nýta húsnæði til lengri eða skemmri tíma og vonast til að geta tekið hluta af húsunum á vellinum í notkun á næstu dög- um eða vikum, þó að heildarmynd framtíð- arvarnarsvæðisins verði ekki ljós fyrr en seinna. föstudagur 26. janúar 20072 Fréttir DV Háleitar vonir um framtíð varnarsvæðisins gætu verið fjarlægari en almenningur hef- ur gert sér grein fyrir. Bandaríkjamenn höguðu varnarsvæðinu eftir eigin höfði og nú þarf að laga þorpið á Miðnesheiði að hérlendum reglugerðum. Ekki byggt Eftir íslEnskum rEglum Vinstri grænir auka fylgið Vinstrihreyfingin – grænt framboð eykur fylgi sitt einn flokka samkvæmt nýjum Þjóð- arpúlsi Capacent. Flokkur- inn mælist nú með 21 prósents fylgi en hafði 19 prósent í síð- asta Þjóðarpúlsi. Samfylkingin lækkar úr 24 prósentum í 22 og Frjálslyndi flokkurinn fer úr 11 prósenta fylgi í 9 prósent. Framsóknarflokkur mælist með 9 prósenta fylgi og Sjálf- stæðisflokkur 37 prósent. Sam- kvæmt þessu er ríkisstjórnin fall- in. Það sést jafnframt á stuðningi við ríkisstjórnina, 49 prósent segjast fylgjandi henni en und- anfarið hafa 52 til 56 prósent aðspurðra lýst yfir stuðningi við stjórnina. Hæstiréttur mildaði í gær dóm héraðsdóms yfir manni á fimmtugs- aldri, sem áreitti þrjár stúlkur og hafði í vörslu sinni á þriðja hundr- að klámfenginna mynda af börnum. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í tveggja ára fangelsi en Hæstirétt- ur mildaði dóminn í 18 mánuði, að teknu tilliti til svipaðra mála. Maður- inn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunum sem hann áreitti samtals tvær milljónir, auk þess sem hann var dæmdur til að greiða tveimur til viðbótar 200 þúsund hvorri, fyrir að hafa tekið myndir af annarri nakinni og mynd af hinni hafði hann skeytt saman við klámmynd. Yngsta stúlkan fimm ára Stúlkurnar voru allar vinkon- ur dætra hans. Sú yngsta var aðeins fimm ára þegar dæmdi lét hana fróa sér á nýársdagsmorgun árið 1999 og tók myndir af því. Bar hann fyrir dómi að hann hafi viljað refsa stúlk- unni og losna við hana en hún var heimagangur í húsi hans. Aðra vin- konu dóttur sinnar leitaði hann á þegar hún fór í útilegu með fjöl- skyldu mannsins árinu áður. Þessi eldri brot komust hins vegar ekki upp fyrr en maðurinn leitaði á þriðju vinkonu dóttur sinnar, þegar hún gisti á heimilinu, í mars árið 2005. Stúlkurnar hafa allar sótt tíma hjá sálfræðingum sem staðfesta að brot- in hafi haft varanleg áhrif á tilfinn- ingalíf þeirra. Varnarsvæðið er ekki byggt samkvæmt íslenskum byggingar- reglugerðum og þar hefur aldrei verið gert deiliskipulag. Gríðar- leg skipulags- og eftirlitsvinna er fram undan áður en hægt verð- ur að taka svæðið í notkun. Hæstiréttur mildaði dóminn fjögur ár fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavík- ur dæmdi karlmann í fjögurra ára fangelsi í gær fyr- ir nauðgun og líkamsmeið- ingar. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 1,2 milljónir í miskabætur. Karlmaðurinn réðst á konuna í september á síðasta ári og hlaut hún talsverða áverka af. Barnaníðingur dæmdur fyrir ofbeldi gegn þremur stúlkum: Varnarsvæðið Ekki liggur fyrir hversu mikið ber í milli bandarísku húsanna og íslenskra reglna. grunur um íkveikju Lögreglan í Keflavík handtók mann í gær sem grunaður er um að hafa kveikt í íbúðarhúsi við Kirkjuteig í Keflavík fyrr um dag- inn. Enginn var í húsinu þegar eldsins varð vart og náðu Bruna- varnir Suðurnesja fljótt tökum á eldinum. Efri hæð hússins er nær ónýt og miklar reyk- skemmdir eru á neðri hæðinni. Hæstiréttur dómur mannsins var mildaður í Hæstarétti til samræmis við svipuð mál. , e Þrír lentu út af Þrír ökumenn misstu stjórn á bílum sínum og lentu utan veg- ar á Holtavörðuheiði og nærri Hafnarfjalli í gær og þurftu á lið- sinni lögreglu að halda. Meiðsl urðu þó minniháttar en nokk- urt tjón á bílum. Hálka gerði ökumönnum erfitt fyrir. Einn ökumannanna slapp ómeidd- ur þegar bíll hans valt á Holta- vörðuheiði. Annar slapp ekki al- veg jafn vel skömmu áður þegar hann missti stjórn á bíl sínum, einnig á Holtavörðuheiði, og endaði utan vegar. Meiðsl hans voru þó smávægileg. Sömu sögu er að segja af manni sem fór út af veginum við Sporholt og togn- aði í baki. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Þyngri dómur – lægri bætur Hæstiréttur dæmdi í gær mann á þrítugsaldri í 15 mánaða fangelsi fyrir að nýta sér ölvun og svefn- drunga konu til að hafa samræði við hana án sam- þykkis hennar. Hæstirétt- ur þyngdi dóm héraðsdóms sem hafði dæmt hann í árs fangelsi. Hins vegar lækkaði Hæstiréttur skaðabætur til konunnar úr einni milljón í 700 þúsund. HERDÍS SIGURGRÍMSDÓTTIR blaðamaður skrifar: herdis@dv.is Framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins Kjartan Eiríksson er bjartsýnn þrátt fyrir skipulagsleysið. Fengu þriðja hvern styrk Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins hefur fengið nær þriðja hvern styrk sem AVS- rannsóknasjóður í sjávar- útvegi hefur veitt frá fyrstu úthlutun úr sjóðnum árið 2004.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.