Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 20
Baugsmálið og afdrif ákæra í því gef- ur til kynna að gildandi löggjöf sé ekki nægilega skýr þegar kemur að því að greina á milli hvað stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja mega og mega ekki gera. Þar má tiltaka sérstaklega hlutafélagalög og lög um ársreikn- inga. Starfsumhverfi fyrirtækja hefur gjörbreyst hin síðari ár en lögin hafa ekki tekið jafn miklum breytingum. Lögspekingur sem DV ræddi við sagði að lögregla gæti átt í vandræð- um með að greina hvaða gjörðir séu refsiverðar og hverjar ekki. Hann sagði málið færa heim sanninn um nauð- syn þess að endurskoða gildandi lög- gjöf um starfsemi á fjárlagamarkaði, sérstaklega með tilliti til refsiheimilda og mats á refsiþörf. Þetta gæti meðal annars leitt til þess að rannsókn yrði ekki nægilega afmörkuð eða yrði víð- tækari en nauðsyn sé til, án þess þó að hægt væri að fullyrða um að þetta ætti við í Baugsmálinu, sagði viðmæl- andinn sem baðst undan því að koma fram undir nafni. Þegar Bjarni Benediktsson, for- maður allsherjarnefndar Alþingis, var spurður álits á þessu sagðist hann ekki hafa kynnt sér málið og því ekki vilja tjá sig um það. Heljarréttarhöld í uppsiglingu Baugsmálið hefur undið gríðar- lega upp á sig frá því lögregla gerði húsleit í höfuðstöðvum Baugs 28. ág- úst 2002. Ákæruliðirnir urðu enda margir þegar ákæra var birt tæpum þremur árum síðar. Enginn þeirra hefur þó leitt til sakfellingar, 32 var vísað frá og 8 leiddu til sýknudóma. Fjórir sýknudómanna, þeir sem sneru að bókhaldslögum, voru kveðnir upp vegna þess að ekki þótti skýrt að lög hefðu verið brotin. Ekki væri hægt að sanna að lánin sem saksóknari taldi að hefði verið svikist um að geta í bókhaldi væru yfirhöfuð lán. Öðrum ákæruliðum var öllum vísað frá þar sem verknaðalýsingu var ábótavant og brot eða heimfærsla refsiákvæða ekki í samræmi við verknaðarlýsingu eða jafnvel í mótsögn við hana. Nú er ef til vill viðamesti hluti Baugsmálsins fram undan. Annar hluti hefst 12. mars þegar 18 af 19 ákæruliðum í endurákæru setts sak- sóknara verða teknir til efnislegrar umfjöllunar (þeim fyrsta, sem sneri að kaupum á 10/11 búðunum, var vís- að frá dómi). Þar sæta ákæru Jón Ás- geir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson, sem voru kærðir upphaflega, og Jón Gerald Sullenberger sem var ákærð- ur fyrsta sinni þegar endurákæran var gefin út. Viðbúið er að málsmeðferð- in taki langan tíma. Vitnin gætu orðið 120 talsins og mikið magn skjala ligg- ur fyrir. Þá er búið að panta sal 101, stærsta sal Héraðsdóms Reykjavíkur, frá níu til fimm alla virka daga frá 12. febrúar og út marsmánuð. Þetta eru alls 34 dagar og 272 klukkutímar sem er búið að bóka en eftir á að koma í ljós hvort nýta þurfi allan tímann. Eftir stendur svo skattrannsókn á hendur fimm af upphaflegu sex sak- borningunum. Sú rannsókn var færð undir stjórn Rúnars Guðjónssonar, sýslumanns í Reykjavík, eftir að Hæstiréttur dæmdi Harald Johann- essen ríkislögreglustjóra vanhæfan vegna fyrri ummæla hans um Baugs- mál. Eðlilegur tími „Ég held að þetta mál hafi, miðað við stærðina, fengið svipaðan máls- meðferðartíma og þekkist í mörg- um öðrum málum,“ segir Jón H.B. Snorrason, sem stýrði rannsókninni. Jón segir mörg mál hafa verið jafn- föstudagur 2. febrúar 200720 Fréttir DV Jón ÁsgEir JóHannEsson forstjóri baugs var ákærður fyrir fjárdrátt, umboðssvik, tollsvik og brot á ýmsum lögum sem varða hlutafélaga- rekstur og bókhald. eftir að 32 ákæruliðum var vísað frá í Hæstarétti var hann ákærður á ný fyrir fjársvik, ólög- legar lánveitingar og bókhaldssvik. Hann var sýknaður af tollsvikaákæru. Ákæru vegna Vöruveltunnar sem rak 10/11 var vísað frá. sætir skattrannsókn. Kristín JóHannEsdóttir upphaflega var Kristín ákærð fyrir fjárdrátt í tengsl- um við viðskipti við fyrirtæki Jóns geralds sullenberger og thee Viking. Hún var líka ákærð fyrir tollsvik vegna innflutnings á bíl. Hæsti- réttur sýknaði hana af þeirri ákæru í síðustu viku og lýsti hún þá yfir fullnaðar- sigri. öðrum ákæruliðum gegn henni var vísað frá og hún ekki endurákærð. sætir skattrannsókn. rúnar guðJónsson sýslumaðurinn í reykjavík var settur yfir rannsóknina á meintum skattsvikum fimm sakborninga í baugsmálinu eftir að Hæstiréttur úrskurðaði Harald Johann- essen ríkislögreglustjóra vanhæfan. sigurður tómas magnússon settur saksóknari eftir að ríkislögreglu- stjóri og hans undirmenn sögðu sig frá málinu og ríkissaksóknari áleit sig van- hæfan til að fara með málið. sigurður tómas hefur endurákært í hluta þeirra ákæruliða sem vísað var frá og stýrði mál- flutningi vegna þeirra sex sem áfram var réttað um og sýknudómur féll í fyrir rúmri viku síðan. Jón H.B. snorrason Yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóraembættisins stýrði rannsókn- inni í baugsmálinu og gaf út upphaf- legu ákærurnar 40. Hann fór frá málinu þegar Hæstiréttur vísaði 32 ákæruliðum frá dómi. Hann fór í nýtt starf um síðustu áramót og er núna saksóknari og aðstoð- arlögreglustjóri hjá höfuðborgarlögregl- unni. Haraldur JoHannEssEn ríkislögreglustjóri og æðsti yfirmaður efna- hagsbrotadeildar meðan á rannsókn baugs- mála stóð og upphaflega ákæran kom fram. Hæstiréttur úrskurðaði hann í ársbyrjun van- hæfan til að stýra skattrannsókn gegn fimm einstaklingum sem tengjast baugsmálinu vegna ummæla hans um að hægt væri að halda því fram með rökum að embættið væri of „involverað“ í málið. Jón gErald sullEnBErgEr upphaf málsins má rekja til deilna Jóns geralds, eiganda Nordica, við baugsmenn vegna viðskipta þeirra. Hann gekk á fund lög- reglu og kærði stjórnendur baugs. rannsókn leiddi til ákæru á hendur sex manns. Jón gerald var ekki ákærður fyrr en á síðasta ári þegar settur saksóknari gaf út nýjar ákærur, þá fyrir aðstoð við fölsun bókhalds vegna viðskipta baugs og Nordica. styrmir gunnarsson Hlutaðist til um að Jón steinar gunnlaugsson tæki að sér mál Jóns geralds. ræddi við Kjartan gunnarsson, þáverandi fram- kvæmdastjóra sjálfstæðisflokksins, og Jón steinar um mán- aðamótin maí/júní 2002 um að Jón steinar tæki málið að sér. sá einnig til þess að skjöl yrðu þýdd á ensku fyrir Jón gerald. ræddi við Jónínu um skjöl sem fóru til skattrannsóknastjóra. Jónína BEnEdiKtsdóttir Hafði milligöngu um að mál Jóns geralds færi til lögreglu. ræddi málið við styrmi gunnarsson og lagði mikla áherslu á að kært væri í málinu. sóttist eftir aðkomu davíðs Oddssonar, þáverandi forsæt- isráðherra að málinu. Kom skjölum til skattrannsóknastjóra. ekkert varð af ákæru og sagði skattrannsóknastjóri í fréttablaðinu í sept- ember 2005 að athugun hefði ekki leitt nein skattalagabrot í ljós. Upphaflegir Sakborningar rannSakendUr og SækjendUr ÁKærð/ur í fyrstu ÁKæru BaugsmÁla ÓSkýr lög og of margir ákærUliðir Baugsmálið kann að hafa orðið viðameira en ástæða er til vegna þess að lögin eru ekki nægilega skýr, segir lögspekingur. Búið er að panta dómsal til að rétta í málinu alla virka daga í rúman einn og hálfan mánuð. JóHannEs Jónsson Var ákærður fyrir fjárdrátt, umboðssvik vegna viðskipta við fyrirtæki Jóns geralds sullenberger, thee Viking og Vöruvelt- unnar og tollsvik og rangfærslu skjala vegna innflutnings á bíl. Hann var sýkn- aður í Héraðsdómi reykjavíkur af ákæru vegna bílsins og þeim dómi ekki áfrýjað. öðrum ákæruliðum var vísað frá og hann ekki ákærður í endurákæru setts saksókn- ara. sætir skattrannsókn. mætt til þingfestingar upphaflegu ákærurnar 40 voru þingfestar í Héraðsdómi reykjavíkur 17. ágúst 2005. tveimur mánuðum síðar hafði öllum nema átta verið vísað frá dómi. Ný ákæra með nítján liðum var gefin út í apríl í fyrra og verða 18 liðanna teknir fyrir í þessum mánuði og þeim næsta. „Svona margir liðir verða dálítið til að flækja málið.“ BrynJólfur Þór guðmundsson blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is ÁKærð/ur í EndurÁKæru BaugsmÁla sætir sKattrannsóKn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.