Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Blaðsíða 46
efnið er aðalatriðið en umgjörðin skiptir ekki síður máli, þegar fallega er lagt á borð verður maturinn enn betri,“ segir Ásthildur að lokum. Súpan góða Fyrir 6–10 Soð: l Skeljarnar af humrinum l 4 geirar hvítlaukur, marinn l 1 laukur, saxaður gróft l ½ blaðlaukur, saxaður l 3 gulrætur, saxaðar l 2 dósir tómatar (stewed tomatoes frá Hunt‘s) l 1 dós tómatpuré (Hunt‘s) l 3 msk. humarkraftur (Oscar‘s er alveg ágætt) l 2–3 teningar fiskikraftur (Knorr) l 3–4 l vatn l 2 dl hvítvín l Góð sletta af koníaki l 1 msk. Maldonsalt l Nokkrir góðir snúningar af svörtum pipar l ½ tsk. chillipiparduft l 2 lárviðarlauf l Smjörklípa og smá ólívuolía Súpa: l 400 gr humar í skel, takið humarinn úr skelinni og garndragið. l 400 gr smálúða (sjóðið í 3 mínútur í vatni með salti, piparkornum og lárviðarlaufi, bein- og roðhreinsið) l 400 gr rækja, þorskur eða skelfiskur (endilega blanda mismunandi tegundum) l 2 dósir tómatar (stewed tomatoes frá Hunt‘s) l 1 lítil dós tómatpuré l Humarkraftur og fiskikraftur eftir smekk (Oscar‘s eða Knorr) l Smá meira hvítvín og enn ein slettan af koníaki l 1–2 msk. af Eftirlæti hafmeyjunnar frá Pottagöldrum l 1 búnt af steinselju, saxað (geymið smá til að skreyta með) l Smá pipar og salt l 5 dl rjómi l 3 msk. koníak aðferð Setjið skeljar í poka og lemjið aðeins með kjöt- hamri. Bræðið smjör og olíu í stórum, víðum potti. Steikið grænmetið í smjörinu uns það verður mjúkt. Bætið þá skeljunum út í og steikið áfram við frekar háan hita. Gætið þess að brúna ekki grænmetið. Bætið nú vatninu út í og látið suðuna koma upp. Kryddið. Bætið sigtuðu lúðusoðinu út í. Látið krauma við vægan hita í tæpan klukkutíma eða lengur, eftir því hvort tímahrakið er mikið. Hellið koníaki yfir fiskinn og látið hann marínerast meðan soðið sýður. Sigtið súpusoðið í pott og bætið tómötum og tómatpuré eftir smekk út í. Súpan á að vera fallega rauðbleik. Kryddið og smakkið til og látið súpuna sjóða kröftuglega í um það bil 20 mínútur. Þeytið rjómann og bætið koníaki út í. Setjið þá fiskinn út í súpuna og berið fram með slettu af rjóma ofan á og afganginum af steinseljunni til skrauts. Berið fram strax. Rjóminn er svo borinn fram í skál og setur hver rjóma eftir smekk á sinn disk. Borðið með góðu brauði og smjöri. U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s &Matur vín Espressokaffi Vélin er sett á eldavélarhellu við efsta straum. Þegar suðan kemur upp myndast þrýstingur og vatnið þrýstist upp í gegnum kaffið, þá má slökkva á hellunni. Þegar hættir að krauma í vatninu er kaffið tilbúið í efsta hlutan- um. Hrærið lítillega í nýlöguðu kaffinu og berið fram beint úr vélinni. Kaffið hefur mikil bragðgæði, er nokkuð þykkt og með mikinn og góðan ilm. föStudaGuR 2. fEBRúaR 200746 Helgarblað DV Torres Viña Esmeralda (Spánn) Gullið í þetta skiptið fær Esmeraldan frá Torres. Eitt af flaggskipum Miguels Torres sem er á meðal fremstu víngerðarmanna í heiminum í dag. Kemur frá Penedès-héraðinu á Spáni. Í víninu koma saman tvær skemmtilegar þrúgur en það eru Moscatel og Gewurztraminer og bera þær með sér mikinn þokka sem bersýnilega skín í gegnum bragðið þegar það er smakkað, þurrt og ferskt og kómískt berjabragð. Tilvalið er að notast við uppskriftina hér að ofan með þessu víni en einnig má nota það með austurlenskum mat. Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.190 kr. (Besta tengdamömmuvínið í ár) Cloudy Bay Chardonnay (Nýja-Sjáland) Þið ykkar sem ekki hafið heyrt um eða smakkað þetta vín ættuð að vera áfram í Síberíu eða einhvers staðar því hér kemur flott taktík frá Nýja-Sjálandi. Hér kemst þú hvað næst hreinni fullkomnun í víngerð að mínu mati, sömu gæði og í góðum Búrgúndara, eini munurinn er sá að þú þarft ekki að gefa handlegg eða fótlegg fyrir flöskuna heldur bara 2490 krónur, sem er vel sloppið miðað við gæði. Ávextir, eik, ferskjur, smá pera og greipbragð sem fer með bragð- laukana í leikhús, hreinn unaður í annars klikkaðri tilveru vínekrunnar. Verð í vínbúðum ÁTVR: 2.490 kr. De Martino Chardonnay Legado (Chile) Ég kynntist þessu víni þegar ég var við veiðar í Cameron Lodge í Tierra Del Fuego en þar fylgdi allt vín með veiðileyfunum frá morgni til kvölds. Ég átti svo sem ekki von á neinum sérstökum vínum en annað kom svo sannarlega á daginn. Þetta vín er einstakt, og þá fyrir þær sakir að eikin gefur því dýpt og elegans, mikill og ferskur ilmur af ananas skín fram fyrir sítrusinn, dálítið væld en á beinu brautinni. Flaskan er belgmikil og flott og þú hreinlega átt að eiga svona heima fyrir er gesti ber að garði. Með stórlúðusteik, ljósu kjöti, súpunni hér að ofan, ekki spurning. Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.600 kr. axel ó. skrifar: axelo@visir.is Ásthildur skorar á Guðríði Sig- urðardóttur, starfsmannastjóra Pennans. „Hún er náttúrulega af Snæfellsnesi, eins og aðrar sannar hnallþórur og húsfreyjur. Algjörlega mergjaður kokkur,“ segir Ásthildur um arftaka sinn. Matgæðingur vikunnar er Ásthildur Sturlu-dóttir, verkefnisstjóri hjá Eignarhaldsfélag- inu Portus hf. sem byggir Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík. Krist- rún Lind Birgisdóttir skoraði á hana og sagði hana ótrúlega hæfileika- ríka í eldhúsinu. Ásthildur ætlar að gefa lesendum uppskift að fiskisúpu. „Fiskisúpan úr Ólafshúsi er mik- ið uppáhald í fjölskyldunni og með- al vina minna,“ segir Ásthildur. „Svo vinsæl er súpan að einu sinni stopp- aði flugvél í Hólminum á leið sinni frá Ísafirði til Reykjavíkur, full af far- þegum sem höfðu heyrt af súpunni og vildu gæða sér á henni. Mér finnst óskaplega gaman í eld- húsinu og tel mig nokkuð flinka á því sviði, þó að ég sé ansi löt svona í miðri viku við eldamennskuna. Þá er einfaldara að skreppa í mat til fjöl- skyldunnar eða vina. Munar ekki svo mikið um einn penan munn til! Um helgar, þegar ég fer heim í Ólafshús í Stykkishólmi, tekur húsfreyjan í mér völdin enda er ég með frábæra að- stöðu og útsýni yfir Breiðafjörð sem veitir innblástur við matargerð. Ég er lítið fyrir uppskriftir, þetta er allt svona eftir skapi hverju sinni. Hrá- Ásthildur Sturludóttir eldar vinsæla fiskisúpu MatgæðingurinnNaan-brauð l 200 ml mjólk l 2 msk. sykur l 1 poki þurrger eða 5 tsk. l 600 gr hveiti l 1 tsk. salt l 2 tsk. lyftiduft l 4 msk. olía l 1 dós hreint jógúrt Krydd: l 1 msk. Maldonsalt l 1 msk. indversk kryddblanda l 25 gr smjör l 1–2 hvítlauksrif, smátt söxuð Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 15 mínútur. Blandið síðan hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrt saman við germjólkina. Látið deigið hefast í skál í 1 klst. við stofuhita. Hitið ofninn í 275°C, eða 210–220°C í blástursofni. Skiptið deiginu í 10–12 hluta og hnoðið kúlur úr þeim. fletjið síðan kúlurnar út nokkuð þunnt. Raðið brauðunum á plötu sem er klædd bökunarpappír og bakið þau í 5–7 mínútur. Þið getið líka bakað þau á efri grind á gasgrilli. Bræðið svo smjörið og látið kryddið og hvítlaukinn úti. Þegar brauð er komið úr ofninum er smjörblandan sett ofan á heitt brauðið. Dhal – indverskur linsubaunaréttur l 6 hvítlauksrif l 2 grænir chilli l bútur á stærð við meðalkartöflu af ferskum engifer l 300 gr grænar linsur l góður slatti ólívuolía l 2 tsk. kummin l 1 tsk. gott karrí l 5 grænir kardimommubelgir l 1 lítri grænmetissoð l sítróna l ferskur kóríander l sýrður rjómi Engifer, hvítlaukur og chilli maukað saman, helst í matvinnsluvél. Vel af ólívuolíu hitað á pönnu, mauki bætt út á pönnuna og látið krauma. Hinum kryddunum bætt í, linsurnar skolaðar, settar á pönnuna og steiktar með kryddunum í stutta stund. Grænmetis- seyði bætt út í og allt látið krauma uns linsurnar eru mjög mjúkar. Smakkað til með sjávarsalti og ef til vill fleiru... Sítróna kreist yfir hvern disk. Góð sletta af sýrðum rjóma sett ofan á og ferskum kóríander stráð yfir. eftirsótt súpa Ásthildur segir fiskisúpuna svo vinsæla að einu sinni stoppaði flugvél í Hólminum á leið frá Ísafirði til Reykjavík- ur, full af farþegum sem vildu fá að bragða á henni. Fiskisúpan vinsæla Dv mynD stefán silfur gull Brons
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.