Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Side 6
„Þeir reyndu að kúga út úr mér fimm-
tíu þúsund krónur og ég átti að leggja
þær inn á tiltekinn reikning,“ segir
Arnmundur Kr. Jónasson en honum
var vikið frá störfum hjá KFUM þar
sem hann gegndi svokölluðu leið-
togahlutverki. Hann segir að dreng-
irnir beri á hann rangar sakargiftir og
viðmælandinn, sem hann taldi vera
stúlku, hafi ekki sagst vera fjórtán
ára. Hann segist aldrei hafa talað við
smákrakka, eins og hann orðar það,
á MSN-spjallforritinu, þar sem meint
brot á að hafa átt sér stað.
Umdeild heimasíða
Atvikið kom upp fyrir viku þeg-
ar tveir menn, þeir Birgir Fannar
Pétursson og Gísli Steinar Jóhann-
esson, lögðu tálbeitu fyrir menn á
einkamal.is. Þar sögðust þeir vera
fjórtán og þrettán ára stúlkur í gegn-
um spjallforritið MSN. Mennirnir
sem virðast hafa gleypt við beitunni
sýndu kynferðislega tilburði í gegnum
vefmyndavél. Birgir og Gísli birtu svo
þær myndir á heimasíðu sinni ásamt
nöfnum, aldri og í einu tilfelli síma-
númeri. Uppátækið hefur vakið gríð-
arlega athygli vegna þess að Kompás
hefur í síðustu tveimur þáttum sín-
um gert slíkt hið sama. Lögreglunni
er ekki heimilt að notast við tálbeitur
og því óljóst hvort hægt er að ákæra
menn fyrir athæfið.
Með banvænan taugasjúkdóm
„Ég er með MND sem er tauga-
hrörnunarsjúkdómur,“ segir Arn-
mundur sem var staddur í Svíþjóð
vegna rannsókna á sjúkdómnum
þegar viðtalið var tekið við hann.
Hann segir það ekki á sig leggjandi að
vera sakaður um slíkt á meðan hann
heyi dauðastríð. Hann segir það ófor-
svaranlegt að menn skuli taka lögin
svona í eigin hendur og birta mynd-
ir af fólki án nokkurra sannana eða
rökstuðnings. Nafn hans verði seint
hreinsað af slíkum áburði og því vill
hann fara með málið alla leið í dóms-
kerfinu. Hann segir myndirnar fals-
aðar enda sjáist ekki í kynfæri hans
og andlit á sömu mynd. Arnmundur
segir að myndirnar geti verið af hverj-
um sem er.
Vikið úr KFUM
Æskulýðsfulltrúinn Ragnar Snær
Karlsson hjá KFUM segir að Arn-
mundi hafi verið vikið frá störfum um
leið og málið kom upp. „Vinnureglan
hjá okkur er sú að ef upp kemur vafi er
mönnum umsvifalaust vikið úr starfi
á meðan málið er rannsakað,“ segir
hann.
Aðspurður hvort Arnmundur
muni fá starf aftur verði hann sýkn-
aður segir Ragnar að því sé ómögu-
legt að svara. „Það veltur á því hvers
eðlis niðurstaðan verður,“ segir hann
og bendir á að ef eitthvað misjafnt
kemur upp þrátt fyrir sýknu fái hann
ekki starf aftur. Ragnar ítrekar þó að
ómögulegt sé að svara slíkri spurn-
ingu eins og málið stendur í dag.
Kúgaði ekki
Birgir Fannar Pétursson, annar
þeirra sem setti sig í samband við
mennina, segir myndirnar af Arn-
mundi hafa verið teknar í byrjun jan-
úar þegar Birgir Fannar villti á sér
heimildir og sagðist vera fjórtán ára
stúlka. Hann segir af og frá að reynt
hafi verið að kúga fé af Arnmundi en
vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið
þar sem rannsókn þess sé í höndum
lögreglu.
„Við munum jafnframt rannsaka
hvort hann hafi orðið uppvís að slík-
um glæp um leið og við rannsökum
málið,“ segir Friðrik Smári Björgvins-
son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík,
um kæru Arnmundar. Friðrik Smári
segist ekki muna eftir að menn hafi
kært fyrir svipað mál áður. Allt að tíu
ára fangelsi getur legið við brotum
þar sem rangar sakir eru bornar á ein-
stakling eða hafi brot verið ætlað til
þess að menn hljóti velferðarmissi.
föstudagur 2. febrúar 20076 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Dagfari og Geir Haarde
Dagfari hefur lengi verið að-
dáandi Geirs Haarde, sem og svo
margra annarra stjórnmálamanna.
Dagfari er ekki aðdáandi allra stjórn-
málamanna, ekki úrtölumannanna.
Helgi Hjörvar er kannski ágætur, en
hann fyllir ekki hóp átrúnaðargoða
Dagfara. Endalaust þras og þrætur
um fátækt barna á Íslandi er að verða
hvimleitt. Helgi fær greinilega seint
nóg af þrasinu.
Þess vegna varð það Dagfara mikil
huggun að heyra til forsætisráðherr-
ans á dögunum, þegar hann talaði af
þekkingu, yfirsýn og meðfæddri yfir-
vegun um fullyrðingar Helga og nið-
urstöður úr einhverri skýrslu, sem
ráðherrann og hans fólk vann reynd-
ar, en auðvitað er það rétt að niður-
staða skýrslu forsætisráðuneytis-
ins er ekki endilega rétt og segir ekki
endilega sannleikann.
Það verður að skoða málið frá öll-
um hliðum, það gerir Geir og Dag-
fari er sama sinnis. Dagfari vill ekki
skella fram niðurstöðum úr skýrslu
sem Geir og hans fólk gerðu eins og
það sé hinni eini og sanni sannleik-
ur. Rétt er að hinkra aðeins og skoða
málin áður en fallið er í þá gryfju að
fullyrða eitt og annað, jafnvel að óat-
huguðu máli.
Hvað er fátækt? Er ekki rétt að
byrja að skoða það? Hver getur sagt
hvað fátækt er? Ekki Dagfari, en er þó
nokkuð viss um hver hin andlega fá-
tækt er, en ekki meira um það, eins
og maðurinn sagði. Sumir þingmenn
mega hugsa sinn gang, en nú er Dag-
fari kominn á hálari braut en til stóð.
Kjarni málsins
er þessi að mati
Dagfara; á Alþingi
er hópur fólks sem
ekki skilur og ekki
veit hvað fátækt er.
Þess vegna er ver-
ið að eyða tíma
manna eins og
Geirs Haarde og
annarra upptek-
inna manna í þras
um eitthvað sem ekki er. Minnugur
sannleikans í orðum Davíðs Odds-
sonar bendir Dagfari á að það er ekki
merki um fátækt þó að fólk streymi
að hjálparstofnunum til að fá ókeyp-
is mat og aðrar nauðsynjar. Það seg-
ir það eitt, eins og Davíð benti á, að
þar sem er hægt að fá hluti gefins,
þar verður eftirspurn. Ekki er síður
vit í því þegar Geir Haarde bendir á
að fátæktin á Íslandi sé ekki alvarleg,
hægt sé að finna meiri fátækt í sum-
um öðrum löndum. Forsætisráð-
herra er Dagfara að skapi, hann kann
trikkið; svo skal böl bæta að benda á
eitthvað annað.
dagfari
„Þeir reyndu að kúga út
úr mér fimmtíu þúsund
krónur og ég átti að
leggja þær inn á tiltek-
inn reikning,“
„Ég hafna þessum ásökunum alfarið,“ segir Arnmundur Kr. Jón-
asson en mynd af honum var birt á heimasíðunni 123.is/barna-
perrar.is í síðustu viku. Fullyrt var að Arnmundur hefði berað sig
í þeirri trú að hann væri að tala við fjórtán ára stúlku. Arnmundur
hefur kært málið og tiltekur í kæru að piltarnir sem halda úti síð-
unni hafi reynt að kúga út úr honum fé vegna myndanna. Birgir
Fannar Pétursson, annar forsvarsmanna síðunnar, neitar alfarið
að svo hafi verið.
Mynd af fyrrverandi leiðtoga hjá KFUM Arnmundi Jónassyni var birt á vefsíðu og þar full-
yrt að hann hefði haft uppi kynferðislega tilburði í þeirri trú að hann væri að ræða við fjór-
tán ára stúlku. Arnmundur neitar ásökunum og segir piltana hafa reynt að kúga sig.
VAlUr grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Sakar heima-
SíðuSmiði um
fjárkúgun
Trylltur tölvufíkill
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu var fengin til að hemja
unglingspilt í kjölfar ósættis um
tölvunotkun. Atvikið átti sér
stað í heimahúsi í Hafnarfirði
og hafði drengurinn tryllst þeg-
ar foreldrar hans tóku af hon-
um nettengingu. Fannst þeim
greinilega nóg komið af tölvu-
notkun drengsins. Við það tryllt-
ist unglingurinn, fékk útrás á
innanstokksmunum og fengu
foreldrarnir ekki við neitt ráðið.
Lögreglan þurfti að brjóta niður
hurð til að komast að drengnum
og róa hann niður. Þetta er ann-
að tilfellið á stuttum tíma þar
sem þarf að fá aðstoð lögreglu til
leysa deilur af þessum toga.
fangelsi fyrir
ölvunarakstur
Kona var dæmd í þriggja
mánaða fangelsi í Hæstarétti í
gær fyrir ölvun við akstur. Hún
hafði einu sinni áður verið
dæmd fyrir að aka svipt ökurétt-
indum. Við ákvörðun refsingar
hennar var litið til þessa og þess
að hún ók tvisvar svipt ökurétti
og er nú í fjórða sinni sakfelld
fyrir ölvun við akstur. Konan hélt
því fram að hún hefði eingöngu
drukkið tvo pilsnera og því ekki
verið ölvuð, en blóðsýni sýndu
annað.
Birgir Fannar Péturs-
son annar forsvarsmaður
heimasíðunnar hafnar
ásökunum arnmundar
um að hann hafi reynt að
kúga fé út úr honum.
netníðingar umræðan hefur verið
hávær um þær hættur sem leynast á
netinu og eru foreldrar hvattir til þess að
fylgjast með netnotkun barna sinna.
123.is/barnaperrar.is Heimasíðan birti
myndir af meintum kynferðisafbrota-
mönnum en mennirnir sem héldu henni
úti hafa verið kærðir fyrir rangar
sakargiftir.
200 milljónir í
umferðareftirlit
Stjórnvöld ætla að verja rúm-
um 200 milljónum króna í að
auka umferðareftirlit um land
allt næstu tvö árin. Gengið hef-
ur verið frá samningum milli
ríkislögreglustjóraembættisins,
Vegagerðarinnar og Umferðar-
stofu um eftirlitið.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra sagði við undir-
ritun samningsins í gær að þetta
væri tímamótasamningur og
hrein viðbót við aðrar aðgerð-
ir. Kaupa á 32 ratsjártæki með
myndavélum, 16 myndavélar til
hraðaeftirlits og 11 öndunarsýn-
amæla.
Enn einn sterkur
janúarmánuður
Hlutabréf í úrvalsvísitölu
Kauphallarinnar hækkuðu um
tíu prósent að verðmæti í jan-
úar. Ef framhald yrði á þess-
um vexti myndu bréfin meira
en þrefaldast í verði á einu
ári. Ólíklegt er þó að svo verði
enda hefur hækkunin síðustu
ár verið meiri í janúar en það
sem eftir lifir árs samkvæmt
samantekt greiningardeild-
ar Landsbankans. Gangi spá
greiningardeildar Landsbank-
ans eftir hækka hlutabréf um
20 til 25 prósent á árinu.