Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Síða 17
Fundur í miðborginni
Á 3ju og 4ðu hæð Iðu-hússins eru tveir fallegir
salir. Stærri salurinn tekur allt að 150 manns
og minni salurinn 120 manns. Allur aðbúnaður
og tæknibúnaður er fyrsta flokks; þráðlaus kerfi,
nettengingar og aðstaða fyrir starfsfólk svo
eitthvað sé nefnt.
Lídó er glæsilegur salur á horni Ingólfsstræti og
Hallveigarstíg. Salurinn tekur allt að 400 manns í
sæti og hentar frábærlega fyrir funda- og ráðstefnu-
hald.
Veisluþjónusta okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar
og spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fag-
mönnum. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, enda
eru kjörorð okkar: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okkar á www.veislukompaniid.is
eða hringdu í síma 517 5020 og við lögum okkur
að þínum þörfum.
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er
ekki síður mikilvæg en fyrsta flokks aðbúnaður
og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra
staðsetningu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega
sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og
fyrirtaks veisluþjónustu.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Stofna félög í Hollandi
Til skoðunar hjá stjórnvöldum
„Við erum að fara yfir þessi
mál,“ segir Baldur Guðlaugsson,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu.
Hann segir ástæðurnar tvær.
Annars vegar er verið að skoða
tillögur nefndar um alþjóðlega
fjármálastarfsemi á Íslandi sem
skilaði tillögum um breytingar á
íslensku lagaumhverfi á síðasta
ári. Hin ástæðan er sú að eftir að
nefndin skilaði af sér bárust fréttir
af tilflutningi eignarhluta til Hol-
lands. Þar vísar Baldur til FL Group
en stjórnendur félagsins tiltóku að
ástæðan fyrir stofnun eignarhalds-
félags í Hollandi væri til að nýta
skattahagræðið sem það hefði í för
með sér.
Fulltrúar nokkurra ráðuneyta
skoða þetta núna, meðal annars þá
hugmynd að fella niður skattlagn-
ingu á söluhagnaði lögaðila. Baldur
segir þetta í skoðun en of snemmt
að segja til um hvaða breytingar
verði gerðar á lögum.
milljarð króna í skatta ef það endur-
fjárfestir ekki.
Þessu er öfugt farið í Hollandi, og
reynar víðar, þar sem söluhagnað-
ur er ekki skattlagður. Þar þurfa
fjárfestar ekki að endurfjár-
festa eða fresta skött-
um vegna söluhagn-
aðar heldur geta þeir
snúið sér beint að
því að fjárfesta eða
nýta féð með öðr-
um hætti. Þetta leið-
ir því til þess að ís-
lensku fyrirtækin
eru ekki fyllilega
samkeppnishæf
við erlend fé-
lög að mati endur-
skoðenda og banka-
manna sem DV hefur
rætt við.
Annað sem fjárfestar sjá athuga-
vert við íslenska skattkerfið er að
fyrirtæki sem greiða út arð verða að
halda eftir 10 prósenta staðgreiðslu
af arðgreiðslum, jafnt
til fyrirtækja sem
einstaklinga, þó
að arðgreiðsl-
ur sem fyr-
irtæki fá af
eign sinni í
öðrum fé-
lögum séu
ekki skatt-
skyldar.
Hluti arð-
greiðslna
skilar sér
því ekki fyrr
en mörg-
um mánuð-
um eftir að þær
voru upphaflega
greiddar út. Þessu
komast þeir hjá
sem stofnað hafa fé-
lög í Hollandi.
Milljarðahagnaður
Erfitt getur verið að leggja mat á
hversu mikið félög hagnast við að
stofna dótturfélög í Hollandi. Hluti
ágóðans verður ekki talinn í krón-
um heldur í hagræði þegar kemur að
bókhaldi og þeim skuldbindingum
sem þarf að skrá þar. Önnur atriði
eru áþreifanlegri. Endurskoðendur
sem DV ræddi við sögðu að einstök
fyrirtæki gætu hæglega hagnast um
hundruð milljóna króna á því hag-
ræði sem fylgir dótturfélögum í Hol-
landi. Í heildina næmi hagnaðurinn
því milljörðum króna.
Bara fyrir þá stóru
Minni fjárfestar standa ekki
frammi fyrir sömu möguleikum í
Hollandi og þeir stærri. Endurskoð-
andi sem hefur veitt ráðgjöf á þessu
sviði segir að leggja verði hlutabréf
að verðmæti tugir milljarða króna í
dótturfélagið hollenska ef fyrirtækið
ætlar sér að græða á þessum mögu-
leika, þessari fléttu, eins og sá hinn
sami orðaði það. Gólfið gæti þá verið
við 30 til 40 milljarða króna markið.
Sem dæmi um þetta má nefna Odda-
flug BV, félag Hannesar Smárasonar,
sem er skráð fyrir 47 milljarða króna
hlut í FL Group. Félagið er því yfir
þeim stærðarmörkum sem þarf
til dótturfélagið í Hollandi skili
hagnaði.
Annar endurskoðandi vildi
ekki setja krónutölu á hversu
stóran hlut þyrfti að setja í fé-
lagið en sagði að umsvifin
þyrftu að vera allnokkur til
að rekstrarkostnaður dótt-
urfélagsins í Hollandi æti
ekki upp skattahagræðið.
Það hversu lengi dótturfé-
laginu er haldið gangandi
fer svo eftir því hversu
lengi það er hagkvæmt
fyrir eigendurna.
Baldur Guðlaugsson ráðuneytis-
stjóri Umhverfi fjármálafyrirtækja er
í endurskoðun.
Íslenskt fyrirtæki sem kaupir hlutabréf í öðru félagi fyrir 10 milljarða og
selur síðan fyrir 15 milljarða ætti að greiða 18 prósenta skatta af 5 millj-
arða króna söluhagnaði. Þessu er þó hægt að fresta um tvenn áramót
og með því að endurfjárfesta 5 milljarðana sem eru í hagnað kemst fyr-
irtækið hjá því að greiða skattinn. Selji fyrirtækið hins vegar nýja hlut-
inn verður það að endurfjárfesta til að komast hjá skattgreiðslu.
DV Fréttir
90 milljarðar
Kjalar Invest BV í eigu Ólafs Ólafssonar
er ekki minna en 90 milljarða króna
virði, stærsta eignin er 68 milljarðar í
Kaupþingi banka.