Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Page 24
Menning
U m s j ó n : K o r m á k u r B r a g a s o n . N e t f a n g k o r m a k u r @ d v . i s
föstudagur 2. febrúar 200724 Menning DV
Pabbinn
Bjarni
Haukur
Þórsson,
sem sló eft-
irminnilega
í gegn með
Hellisbú-
anum fyr-
ir nokkr-
um árum,
er kominn
aftur á svið með bráðfyndinn
gamanleik um pabbahlutverk-
ið. Bjarni vekur upp nokkr-
ar skemmtilegar spurningar
og varpar gamansömu ljósi á
ýmsar aðstæður sem pabb-
inn finnur sig í á meðgöngu,
kringum fæðingu og fyrstu árin
sem uppalandi. Árangurinn
af samstarfi hans og Sigurð-
ar Sigurjónssonar leikstjóra er
vel tímasett og hröð atburða-
rás, sem vekur mikla kátínu hjá
áhorfendum, kannski sér í lagi
hjá kvenþjóðinni. Vafalítið eitt
af kassastykkjum ársins.
HHHHH
Misery
Enn eitt leikhús hefur bæst
í leikhúsflóruna í Reykja-
vík. Á NASA er nú til sýning-
ar leikgerð Simons Moore á
sögu hrollvekjumeistarans
Stephens King, Misery. Verkið
er í stíl enskra kammerverka
með hurð, en leikararnir eru
þó nánast allan tímann á svið-
inu. Að ósekju hefði mátt gera
frjálslegri tilraunir með stílinn
og kafa dýpra í persónurnar
en verkið líður engu að síður
hnökralaust áfram. Það er ekki
á hverjum degi að nýtt leikhús
lítur dagsins ljós en ástæða er
til að óska Stúdíói 4 til ham-
ingju með framtakið og bjartr-
ar framtíðar.
HHHHH
LeikListar-
gagnrýni
Egill fær góðar viðtökur í Þýskalandi
Ljóðabók Stuðmannsins Egils Ólafssonar, Kysstu kysstu steininn,
fær mjög góðar viðtökur í Þýskalandi, en bókin kom samtímis út
fyrir jólin á þýsku og íslensku. Þetta er fyrsta ljóðabók Egils, sem
fengist hefur við ljóðagerð samhliða lagasmíðum og textagerð í
gegnum árin. Það er hinn óþreytandi umboðsmaður Stuðmanna,
rithöfundurinn Claudia Koestler, sem þýddi ljóðin yfir á þýsku.
Íslendingar þekkja allir Regn-
boga Rúríar, sem stendur við Leifs-
stöð á Keflavíkurflugvelli og er fyr-
ir löngu orðið eitt af kennileitum
landsins, eða Fyssu, vatnslistaverk-
ið í Grasagarðinum. Vatn og regn-
bogar eru gjarnan viðfangsefni
hennar og hluti af birtingarformum
þeirrar hugmyndafræði sem hún
hefur fengist við í list sinni. Rúrí er
án efa í hópi okkar merkustu mynd-
listarmanna síðustu áratugi, í verk-
um hennar skarast mörg svið sam-
tímalistarinnar og þau spegla meðal
annars skýra sýn hennar á félagsleg-
an og pólitískan veruleika manns og
náttúru.
„Það mætti segja að ég sé að
kanna tilvist mannsins í alheimin-
um, gjarnan með fókus á hverful-
leikann, tímann og afstæði hans og
þau gildi sem eru við lýði í samfé-
laginu hverju sinni. Ef einhver seg-
ir að verk mín séu pólitísk er það
kannski vegna þess að ég staldra
stundum við smáatriði, og þá meina
ég í alheimslegu samhengi, eða af-
mörkuð svið og beini þá sjónum að
þeim þannig að þau fá samfélags-
lega merkingu,“ segir Rúrí.
Rætur í konseptlistinni
„Ég er gjarnan að vinna að ein-
hvers konar hugmyndafræði enda á
ég rætur í konseptlistinni, sem var
mjög sterk á þeim árum þegar ég
var að byrja, en ég er líka að fást við
skrásetningu og þessi sýning endur-
speglar kannski þau vinnubrögð og
er eins konar skrásetning á verkum
mínum. Það er náttúrulega stiklað á
stóru þannig að þetta er ekki yfirlits-
sýning í eiginlegri merkingu en það
má sjá að ýmislegt endurtekur sig
eins og spírall eða bylgja sem skell-
ur á okkur aftur og aftur.“
Stór verk
„Jú, ég hef gert nokkur stór verk,
en kannski frekar hugmyndafræði-
lega stór. Það er samt þannig að þó
að ég fái mikið pláss á þessari sýn-
ingu í Gerðubergi hefði verið erfitt
að koma mörgum af mínum verk-
um fyrir. Ég hef reyndar fengist við
alls kyns listform og margt af því
sem ég hef gert er nokkuð pláss-
frekt,“ segir Rúrí.
Pólitík, tími, afstæði og gildi
„Sýning Rúríar ber nafnið Tími
– afstæði – gildi og er plakat sýn-
ingarinnar samsett mynd af tveim-
ur verka hennar. Annars vegar til-
lögu að endurskoðun íslenska
þjóðbúningsins til að laga hann
að nútímaþjóðfélagsháttum frá
1974 þegar Víetnamstríðið var
sem fyrirferðarmest í umræðunni.
Hins vegar fossi úr myndröðinni
Endangered waters, sem auðvit-
að tengist virkjanamálum hérlend-
is og stöðu vatnsbúskapar jarðar-
innar almennt. Það má því segja að
Rúrí sé alltaf að fást við brennandi
spurningar þó að hún setji þær allt-
af í víðara samhengi. En hér er líka
á ferðinni boðskapur sem kem-
ur til okkar aftur og tengir okkur í
dag til dæmis við Íraksstríðið og
veltir þannig upp spurningum um
þau gildi eða það gildismat sem
við erum að fást við hverju sinni.
Þannig upplifum við líka afstæði
tímans og hverfulleika gildanna,“
segir Harpa Björnsdóttir, listfræð-
ingur og sýningarstjóri.
kormakur@dv.is
í fossum tímans
MyndList
Á morgun verður opnuð í Gerðubergi
sýning þar sem stiklað er á 33 ára
myndlistarferli Rúríar. Í tengslum við
sýninguna fer fram Sjónþing undir
stjórn Laufeyjar Helgadóttur list-
fræðings þar sem kastljósinu er beint
að verkum og ferli listakonunnar.
Regnbogar
tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni reykjavíkur í dag, föstudag.
annars vegar fyrsta sýningin í nýrri
sýningaröð og hins vegar sýning á
vatnslitamyndverkum eftir erró frá
árunum 1981–2006. Nýja sýningaröðin
er tileinkuð yngri kynslóð listamanna
og fyrst til að sýna verk sín í d-salnum
er birta guðjónsdóttir en sýning hennar
ber yfirskriftina einhver verður þar.
„Ég hef verið að vinna með hugtakið
„reflections“, sem er kannski svolítið víð-
ara en speglun á íslensku og vísar líka til
endurspeglunar, samsömunar milli
fólks og til rýmisins sjálfs. Ég hef einnig
verið að fást við tálsýnir, hluti sem
blekkja eða sýnast vera annað en þeir
eru. Ég nota bæði vídeó og
ljósmyndir en sýningin er
unnin sérstaklega fyrir
rýmið í safninu og mætti
kallast staðbundin
innsetning,“ segir birta
guðjónsdóttir myndlistar-
kona. einnig verður opnuð í
Hafnarhúsinu sýning sem
hingað er komin frá París, gleymd
framtíð, en á henni eru 100 vatnslita-
myndir eftir erró, margar hverjar frá
síðustu árum. Myndefni errós er sem
áður fjölbreytt og byggir á klippimynd-
um sem listamaðurinn vinnur upp úr
ýmsum prentmiðlum samtímans,
aðallega myndasögum. „erró hóf að
mála vatnslitamyndir upp
úr 1980 og áferð þessara
mynda er allt önnur en í
olíumálverkinu. Þær eru
bjartari og mjög fágaðar en
þó byggðar á sömu
klippitækni og eldri verk
hans og myndefnið gjarnan svipað.
Vatnslitamyndirnar eru líka minni en
olíumálverkin, flestar af svipaðri stærð,
svona 60x80, og því auðveldari í
flutningi en stóru verkin. Þessar myndir
eru flestar í eigu errós og hafa ekki verið
sýndar hér á landi áður,“ segir Þorbjörg
gunnarsdóttir sýningarstjóri.
Erró og D MyndList
Birta Guðjónsdóttir Listakonan er
fyrst ungra myndlistarmanna sem sýna
verk sín í d-sal Listasafns reykjavíkur í
nýrri sýningaröð safnsins.
Dagur vonar
Borgarleikhúsið hefur í
hyggju að dusta rykið af nokkr-
um eldri íslenskum leikhús-
verkum og kanna hvort þau
þoli dagsljósið enn á ný. Fyrsta
verkið í röðinni er Dagur vonar
eftir Birgi Sigurðsson í leikstjórn
Hilmis Snæs Guðnasonar, sem
er á fjölunum um þessar mund-
ir. Það er óhætt að segja að verk-
ið heldur enn og að tekist hafi
að búa til heilsteypta sýningu.
Leikararnir eru afbragðsgóð-
ir og umgjörðin öll. Leikmynd
Vytautas Narbutas er einkar vel
heppnuð og sama má segja um
tónlist Egils Ólafssonar og efni-
viðurinn á reyndar sérlega vel
heima í þeirri samfélags- og sið-
ferðisumræðu sem á sér stað í
þjóðfélaginu í dag.
HHHHH
Sjónþing
Í tengslum við sýningu rúríar
verður haldið sjónþing í
gerðubergi á morgun, laugardag,
um verk hennar og feril.