Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2007, Page 35
FÖSTUDAGUR 2. FebRúAR 2007DV Sport 35
við bæði með byrjendur og svokallað-
an framhaldshóp og þar er fólk á aldr-
inum sextán og upp í þrjátíu og fimm
ára. Í þessum hópi eru um fjörutíu ið-
kendur og við erum því með um 150
iðkendur í heildina. Það voru villtustu
draumar mínir þegar við byrjuðum að
ná 100 iðkendum en nú erum við að
setja markið í 200.
Það eru alls ekki allir sem vilja fara
í hringinn og boxa. Ég er alveg ga-
pandi yfir því hvað það eru margir af
þessum unglingum hérna sem vilja
fara í hringinn og boxa. Úr unglinga-
hópnum er ég með átján skráða kepp-
endur og það kemur mér verulega á
óvart. Það sýnir mér samt að það er
talsverður hópur sem vill ekki keppa,“
sagði Guðjón.
Íslandsmót í mars
Guðjón Vilhelm er yfirþjálfari fé-
lagsins en honum til aðstoðar með
eldri hópinn er Letti sem Guðjón læt-
ur vel af. Guðjón sagði að von væri á
fleiri þjálfurum til félagsins þar sem
félagið hygðist auka við sig og taka inn
yngri krakka. „Við sjáum fyrir okkur að
fara niður í sex ára. Við byrjuðum
með átta ára á síðasta ári og það
gefur mjög góða raun og við telj-
um okkur alveg eiga erindi nið-
ur í sex ára.“
Guðjón sagði að hnefa-
leikafélög á landinu
séu mjög samstíga í
starfi sínu. „Staðan
er þannig núna að
það eru félög í Vest-
mannaeyjum, á Akranesi, í Hafnar-
firði og tvö í Reykjavík og allir ákváðu
að fara að ganga í takt og byggja íþrótt-
ina upp saman. Hnefaleikanefnd ÍSÍ
skipaði forsvarsmenn allra þessara fé-
laga og við höfum markvisst verið að
byggja þetta upp.
Fyrsta Íslandsmótið var haldið í
fyrra og það fór mjög vel fram og var
mjög vel heppnað. Það var svo ákveð-
ið á fimmtudaginn að halda ann-
að Íslandsmót 31. mars og við erum
að sækja um að fá að halda það hér í
Reykjanesbæ í þessu húsi,“ sagði Guð-
jón og bætti við að hnefaleikar séu í
stöðugri framþróun hér á landi.
„Fyrir tveimur vikum var hnefa-
leikamaður í Vestmannaeyjum valinn
íþróttamaður Vestmannaeyja. Það er
í fyrsta skipti sem bæjarfélag útnefnir
hnefaleikamann íþróttamann ársins
og sýnir það að þessi íþrótt stendur vel
annars staðar en bara í Reykjavík og
Reykjanesbæ. Við búum að því hérna
í Reykjanesbæ að eiga mjög góðan
efnivið og mjög góðan grunn og það
þarf að virkja þessi börn í eitthvað já-
kvætt. Það er líka orðið tímabært að
lesa um eitthvað annað í blöðunum
á mánudögum en borgarastríð hér í
Reykjanesbæ,“ sagði Guðjón á léttum
nótum.
Það var greinilegt á máli Guðjóns
að markmið íslenskra boxara er sett
hátt. „Við hér í Reykjanesbæ erum
með skýr markmið og ætlum okkur
í fremstu röð. Við teljum að fyrst við
erum komin með þessa aðstöðu og
höfum farið svona langt niður í aldri
þá eru ekki mjög ár í að við förum að
landa boxurum sem útskrifaðri afurð.
Þetta eru strákar sem eiga fullt erindi
í það besta sem gerist í Evrópu. Það
kæmi mér ekki á óvart að á næstu
árum myndum við sjá einhverja at-
vinnumenn verða til hérna, allavega
í Reykjanesbæ og gott ef ekki á fleiri
stöðum á landinu.
Það er metnaður á öllum stöðum,
eins og hér, og ég er alveg klár
á því að við eigum eft-
ir að sjá marga góða
hluti gerast. 17.
febrúar tökum við
á móti 15 hnefa-
leikamönnum frá
Írlandi og það
verður örugg-
lega sögulegur
dagur hjá okkur.
Við ætlum að vera
með mót niður
í átta
ára
og
ég reikna með að vera með að minnsta
kosti 30 bardaga þennan dag. Það
verður líklega bara þétt dagskrá hér
frá klukkan tvö til sex og síðan aftur
klukkan átta um kvöldið þar sem við
verðum með þá erlendu keppend-
ur sem koma. Það verður rosalega
skemmtilegt,“ sagði Guðjón en mótið
mun bera heitið Reykjanes vs. Dublin
og Guðjón bætti við að ætlunin væri
að kenna Dublinarbúum mannasiði.
Stefnt á ólympískt gull
Guðjón sagði einnig að markmið
íslenskra boxara væri ekki eingöngu
bundið við mót hér á landi. „Það var
einn boxari frá Íslandi sem keppti á
Evrópumeistaramóti í ólympískum
hnefaleikum í fyrra, Stefán Breiðfjörð
frá Hafnarfirði, og það var út af fyrir sig
mjög stórt skref. Þar var hann einfald-
lega kominn í hóp þeirra bestu í Evr-
ópu og það er fyrsta skrefið. Næst er
að koma einhverjum í úrslit í Evrópu-
meistaramóti og svo er bara að koma
manni á ólympíuleika. Þar næst er
bara að ná í medalíu á ólympíuleikum
og lengra komumst við ekki. Við ætl-
um að taka gullið þar.
Það hefur verið draumur minn frá
því að ég byrjaði að þjálfa árið 1998 og
ég ætla að vona að ég hafi það af að sjá
það. Ég er líka alveg klár á því að hér á
Íslandi eru efni í mjög góða atvinnu-
boxara þannig að framtíðin er mjög
björt,“ sagði Guðjón, sem dæmdi um
síðustu helgi á atvinnumannamóti
í Svíþjóð, en það var fyrsta atvinnu-
hnefaleikamótið þar í landi frá árinu
1970.
„Ég fékk þann heiður að dæma alla
bardagana, ellefu talsins, ásamt einum
stigadómara frá Danmörku sem var
með mér en hann hefur meðal ann-
ars dæmt bardaga hjá Mohammad
Ali. 68 ára gamall dómari sem er einn
sá besti í heiminum. Þetta var mjög
skemmtilegt og gaman að sjá atvinnu-
hnefaleika komna aftur á kortið í Sví-
þjóð því það eru 40 ár síðan þeir áttu
heimsmeistara í þungavigt, Ingimar
Johannsson.“
Hnefaleikar voru aftur leyfð-
ir hér á Íslandi árið 2002 og því
ljóst að gríðarleg vakning hef-
ur verið í íþróttinni í Reykja-
nesbæ. „Framtíðin er björt og
ég er rosalega bjartsýnn. Sér-
staklega ef að bæjaryfirvöld
halda áfram að styðja okkur eins
og þau hafa gert hingað til og
halda áfram að styðja okkur jafnt
við aðrar íþróttagreinar hér í
bæ, þá hef ég engar áhyggjur
af því að þessi íþrótta-
grein þroskist ekki
áfram,“ sagði
Guðjón Vil-
helm að lok-
um.
dagur@dv.is
BoxBylting í ReykjanesBæ
„Það þarf að virkja þessi börn í eitt-
hvað jákvætt. Það er líka orðið tíma-
bært að lesa um eitthvað annað í
blöðunum á mánudögum en borg-
arastríð hér í Reykjanesbæ.“
Púðinn barinn Þessar stelpur tóku
vel á því á æfingunni í vikunni og
boxpúðinn fékk það óþvegið.
DVMynd/Stefán
Góður efniviður Þessir rokkarar
voru að sjálfsögðu mættir til að taka
á því. Hver veit nema þeir muni ná
langt í framtíðinni. DVMynd/Stefán
Hraðar hendur Það þarf að hafa snerpuna
í lagi í hnefaleikum og það vantaði ekkert
upp á hana hjá þessum kappa.
DVMynd/Stefán
Guðjón Vilhelm er yfirþjálfari hjá
Hnefaleikafélagi Reykjaness. Hann
telur framtíð hnefaleikanna vera
bjarta hér á landi. DVMynd/Stefán