Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2007, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2007, Qupperneq 17
DV Sport þriðjudagur 6. mars 2007 17 Hvað gerist á anfield? aftur. Fyrir leikinn hefðum við fagnað jafntefli en sigur var góður bónus.“ Chelsea í lykilstöðu „Það eru engar líkur á að John Terry spili á móti Porto,“ sagði José Morinho. „Terry er mikilvægari en úr- slit í fótboltaleik og við munum ekki taka neina áhættu,“ sagði portúgalski þjálfarinn. Fyrri leiknum lauk með jafntefli 1-1 í Portúgal og eru því Chel- sea menn í lykilstöðu með marki skor- uðu á útivelli. Porto verður án Jose Bosingwa og Lucho Gonzalez vegna meiðsla. Báðir meiddust í leik við Braga á laugardag- inn. Jesualdo Ferreira hefur þó ekki gefið upp alla von um að leikmenn- irnir muni spila en hann mun væntan- lega nota Marek Cech og Lucas Mar- eque í staðinn fyrir þá félaga. Porto hefur slegið út ensk lið í keppninni en hefur aldrei unnið á enskri grundu. Þetta verður jafnframt hundraðasti leikur Porto í Meistaradeildinni. „Við fengum ekki þá hvíld sem við vildum í leiknum á móti Braga. Við gát- um ekki sparað neina krafta því gæðin í Braga liðinu eru mikil. Ég á von á erf- iðum leik hér í London þar sem hrað- inn verður allsráðandi,“ sagði þjálfari Porto Jesualdo Ferreira. Lyon taplaust í 18 heimaleikjum Lyon fær Roma í heimsókn þar sem þeir hafa ekki tapað í 18 síðustu leikjum. Jeremy Toulalan er í leik- banni í leiknum en hann var einn af ellefu leikmönnum sem fengu gula spjaldið frá Mike Riley í fyrri leiknum. Lyon hefur komist í undanúrslit síð- astliðin þrjú tímabil og verður róður- inn þungur fyrir Francesco Totti og fé- laga í Roma. Hins vegar nægir þeim að skora til að vera komnir í algjöra lyk- ilstöðu. Alou Diarra miðjumaður Lyon skrifaði næstum undir samning við Roma en hætti við á síðustu stundu og samdi við Lyon. Hann segir að Lyon verði að vera þolinmóðir. „Að vinna Meistaradeildina er markmið fyrir okkur. Við verðum að vera þolinmóðir á morgun (í dag) en við höfum gæðin til að komast áfram. Roma eru með nokkra fljóta leikmenn og eru mjög stöðugir í sínum leik. Við megum alls ekki fá á okkur mark, því þá þurfum við að skora tvö. Fyrr en síðar munum við fá færi og þá verðum við að nýta þau.“ Aðspurður um hvað beri að var- ast í leik Roma segir Diarra að þeir verði að stoppa Francesco Totti. „Hann er góður leikmaður með mikla tækni. Hann veit hvar hann á að staðsetja sig á vellin- um og er með góðar ákvarðan- ir inná vellinum. Við verðum að fylgjast vel með honum, því ef hann kemst ekki í boltann eru Roma ekki það góðir.“ Skorar Zlatan Zlatan Ibrahimovic Svíinn magn- aði í liði Inter Milan hefur skorað 12 mörk í Seríu A á ítalíu. Hann hef- ur hins vegar ekki enn fundið net- möskvana í Meistaradeildinni og finnst mörgum nóg um. Hann verð- ur væntanlega í framlínunni ásamt Hernan Crespo en Adriano er lítilega meiddur og ekki búist við að hann byrji leikinn. Roberto Mancini þjálf- ari sagði að hans lið hefði gæðin til að fara áfram. „Það yrði synd ef við féllum úr keppni. Við höfum alla getu til að standa okkur vel í Meistaradeildinni.“ Vicente leikmaður Valenciu segist ekki hræðast Inter. „Við þurfum ekki að óttast Inter, þeir eru gott lið en þetta eru leikirnir sem við erum bestir í. Við erum með forskot í einvíginu en við þurfum að vinna á Mestalla og kom- ast áfram.“ Valencia vann Celta frá Vigo 1-0, óverð- skulað sögðu margir. „Celta lék varnarsinnað en það verður allt ann- að uppá teningnum á móti Inter. Þeir munu koma hingað til að sækja. Við virðum Inter en við höfum trú á okkur og ég er sannfærður um að við munum kom- ast áfram.“ benni@dv.is Rijkaard þjálfari Barcelona Frank rijkaard segist vita hvað býður hans á anfield Valencia Við þurfum ekki að óttast inter, þeir eru gott lið en þetta eru leikirnir sem við erum bestir í. Mikilvægt mark markið sem andri shevchenko skoraði í Portúgal gæti vegið þungt.Barátta framundan roma bíður erfitt verkefni á heimavelli Lyon. leikirnir í kvöld CheLSea - PoRto n Liðin hafa mæst þrisvar í Evrópukeppni. n Porto hefur leikið 19 sinnum á Englandi og aðeins unnið fjórum sinnum (4-7-8). n Chelsea hefur alltaf komist í 16 liða úrslit í meistaradeildinni. n Chelsea eru eitt af þremur liðum sem hefur alltaf komist upp úr riðlinum. n Hin eru real madrid og Nantes. n Chelsea hefur unnið þrjá síðustu leiki á heimavelli í meistaradeildinni. n Liðið hefur einnig haldið hreinu í þeim öllum. n Porto hefur unnið síðustu tvo útileiki. n Porto hefur ekki tapað í síðustu fimm leikjum í meistaradeildinni. n ashley Cole gæti spilað sinn 50. meistaradeildarleik. n didier drogba er markahæsti leikmaður meistaradeildarinnar með 5 mörk. n Luis gonzalez og Lisandro Lopez eru markahæstu leikmenn Porto með 4 mörk. n þetta verður 100. leikur Porto í meistaradeildinni. n Ef Porto tapar verður það 50. tapleikur liðsins. n Porto vann Braga 1-0 á heimavelli í síðustu umferð. n Chelsea vann Portsmouth 2-0 á útivelli. Lyon - RoMa n þetta verður í annað skiptið sem liðin mætast. n mike riley dómari stal senunni í þeim fyrri og veifaði 11 gulum spjöldum. n það er met. n Lyon hefur unnið tvo heimaleiki af sex á móti ítölskum mótherjum (2-3-1). n roma hefur unnið einn og tapað einum á móti frönskum mótherjum í Frakklandi. n síðast spilaði roma í Frakklandi 18. mars 1992 á móti monaco. n þeir töpuðu 1-0. n Lyon hefur gert þrjú jafntefli í röð í meistaradeildinni. n Lyon er ósigrað í sjö síðustu viðureignum í meistaradeildinni. n Lyon hefur ekki tapað í 18 síðustu heimaleikjum í meistaradeildinni. n Lyon er eina ósigraða liðið í keppninni. n roma hefur ekki fengið á sig mark í síðustu tveimur leikjum í meistaradeild- inni. n Hatem Ben arfa mun halda upp á 20 ára afmælið á morgun. n rodrigo Tadei gerir enn betur og heldur upp á 27 ára afmælið í dag. n roma gerði jafntefli við ascoli 1-1 í síðasta deildarleik sínum á laugardag. n Lyon vann st. Etienne 3-1 á útivelli. VaLenCIa - InteR MILan n Liðin haf mæst níu sinnum. inter hefur unnið þrisvar, Valencia tvisvar og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli. n stærsti ósigur Valencia í Evrópukeppni var gegn inter 5-1 á mestalla. n inter skoraði fæst mörk allra liða sem komust áfram í 16 liða úrslit. n þeir skoruðu aðeins 5 mörk. n inter hefur ekki tapað í fimm síðustu leikjum í meistaradeildinni. n Valencia skoraði 12 mörk í riðla- keppninni. n aðeins real madrid skoraði fleiri mörk, eða 14. n Valencia hefur unnið síðustu 5 leiki á heimavelli í meistaradeildinni. n þeir hafa haldið hreinu í síðustu tveimur. n maicon og raúl albiol eru einu leikmenn liðanna sem hafa spilað allar mínúturnar í meistaradeildinni. n inter vann Livorno 1-2 á laugardag og er lang efst í ítölsku deildinni. n Valencia vann Celta Vigo 1-0 og er í þriðja sæti í spænsku deildinni. Bjarni Þór Viðarsson mun snúa aftur til Everton eftir að hafa leikið fyr- ir lið Bournemouth í ensku 2. deild- inni í kvöld gegn Blackpool. Bjarni er á nítjánda aldursári en Everton lánaði hann til Bournemouth þar sem hann hefur spilað síðustu vikur. Hann stóð sig mjög vel með liðinu og náði að skora en það mark kom gegn Oldham í lok febrúarmánaðar. „Það hefur verið tekin ákvörðun um að ég snúi aftur en framlengi ekki lánsdvöl mína hjá Bournemouth. Ég talaði við aðstoðarþjálfara Everton og var þessi ákvörðun tekin. Þar spil- aði inn í að það er mikið um meiðsli í herbúðum Everton,“ sagði Bjarni Þór í samtali við DV í gær. Um síðustu helgi spilaði Bjarni allan leikinn fyrir Bournemouth þegar liðið vann gífur- lega mikilvægan 2-0 sigur á liði Donc- aster sem er í efri hluta deildarinnar. „Ég mun gera mitt allra besta og reyna að sjá til þess að ég kveðji lið- ið með sigurleik,“ sagði Bjarni en lið Bournemouth er nú í nítjánda sæti af 24 liðum en það verður hlutskipti fjögurra neðstu liðanna að falla. „Þetta er farið að líta aðeins betur út hjá liðinu núna og mikilvægt að ná að rífa sig upp úr fallsæti. Það er talsverður akstur frá Liver- pool þar sem Bjarni er búsettur og til Bournemouth þar sem hann hefur gist á hóteli meðan hann hefur leik- ið fyrir liðið. Everton hefur vegnað vel í ensku úrvalsdeildinni það sem af er og situr í sjötta sætinu. Talsverð meiðsli hafa þó herjað á leikmanna- hóp liðsins að undanförnu og um helgina kom til að mynda í ljós að Tim Cahill mun ekki leika meira á Bjarni Þór Viðarsson aftur á leið til Everton: Leikur sinn síðasta leik fyrir Bournemouth þessu tímabili. Cahill leikur einmitt sem miðjumaður líkt og Bjarni Þór og væri gaman að sjá Íslendinginn unga fá tækifæri með aðalliði Evert- on á þessu tímabili en hann hefur nokkrum sinnum komist í aðalhóp liðsins í úrvalsdeildinni en ekki enn fengið að spreyta sig. elvargeir@dv.is Bjarni Þór mynd tekin í æfingaleik hjá aðalliði Everton gegn Bury.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.