Læknablaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 34
IBUMETIN'
(Ibuprofenum INN)
verkar fljótt
-ódýrt í notkun
IBUMETIN 200 mg 100 stk. 285,20 ISK
IBUMETIN 400 mg 30 stk. 201,98 ISK
100 stk. 592,86 ISK
IBUMETIN 600 mg 30 stk. 292,52 ISK
100 stk. 768,27 ISK
Ibumetin (ibuprofenum)
Ábendingar: Gigtsjúkdómar er valda
verkjum, sérstaklega bólgusjukdómar.
Tíðaverkir.
Frábendingar: Gætið varúðar við sár-
sjúkdóm, alicylsýruofnæmi, lifrar- og
nýrnabilun. Einnig viö blæðingatilhneig-
ingar, þar sem ibuprofen hindrar blóð-
flögusamloðun og lengir blæðingartim-
ann.
Skammtastærðir: Skammtar einstak-
lingsbundnir. Verkjastillandi áhrif nást
með 800-1200 mg daglega i 3-4
skömmtum. Til þess að ná bólgueyðandi
áhrifum parf allt að 1800 mg á sólarhring í
3-4 skömmtum. Skammtinn er hægt að
auka i 3200 mg á sólarhring, en þáaðeins
um stuttan tima (4-6 vikur). Skammta-
stærð vió tíðaverkjum er 400 mg á 6-8
klst. fresti eftir þörfum.
Hámarksskammtur: Sjá (framangreint).
Barnaskammtar: Ibuprofen á ekki að
nota fyrir börn, þar sem ekki hefur fengist
nægileg reynsla.
Aukaverkanir: Meltingarfæri: Verkir, ó-
gleði, uppköst, niðurgangur. Greint hefur
verið frá svæsnum blæðingum frá melt-
ingarfærum. Miðtaugakerfi: Höfuðverk-
ur, svimi, suða fyrir eyrum eru algeng, en
væg einkenni.
Blóð: Greint hefur verið frá einstaka
sjúklingi með fækkun á blóðflögum, kyr-
ningum, kyrningahrapi og blóðkorna-
hrapi. Ofnæmisviðbrögð eru sjaldgæf.
Lýst er timabundnum sjóntruflunum.
Einnig kemur fyrir truflun á þvaglátum.
Milliverkanir: Milliverkanir ibuprofen og
annarra lyfja hafa sjaldan verið greindar.
Hætta er á aukinni virkni storkuminnk-
andi lyfja, sykursýkislyfja og fenýtíóns.
Eitranir og meðferð þeirra: Einkenni
ennþá lítt kunn. Banvænn skammtur
óþekktur 12-16 g ibuprofen hafa valdið
meðvitundarleysi. Meðferð: Innlögn á
sjúkrahús við alvarleg einkenni.
iAILlí'líiISID IBIBmiM (%
KOBENHAVN DANMARK V__S
04.84.