Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 30

Læknablaðið - 15.05.1984, Qupperneq 30
136 1984; 70: 136-40 LÆKNABLAÐIÐ FUL ÁRSSKÝRSLA FÉLAGS UNGRA LÆKNA starfsárið 1982-1983 Stjórn Félags ungra lækna starfsárið 1982- 1983 skipuðu eftirtaldir: Formaður: Finnbogi Jakobsson, ritari: Vilhelmína Haraldsdóttir, gjaldkeri: Sveinn Guðmundsson, ráðninga- stjóri: Pórir B. Kolbeinsson, formaður kjara- nefndar: Grímur Sæmundsen, formaður fræðslunefndar: Hannes Stephensen og for- maður utanríksnefndar: Margrét Oddsdóttir. Meðstjórn: Þórólfur Guðnason, Bogi Ander- sen og Sigurður V. Guðjónsson. Stjórnin hélt 21 stjórnarfund á starfsárinu. Haldinn var einn félagsfundur. Gefin voru út tvö fréttabréf. Starfsár þessarar stjórnar hefur einkennst af vinnu bak við tjöldin og umræðum um hin ólíku hagsmunamál FUL. Minni tengsl hafa hins vegar verið við hinn almenna félagsmann og stjórnin ekki rækt þau sem skyldi. 1. Framhaldsmenntunarmál í framhaldi af aðalfundarsamþykkt FUL 1982 stofnaði þáverandi heilbrigðismálaráðherra, Svavar Gestsson, nefnd sem átti að kanna aðstöðu til sérnáms lækna hérlendis og gera tillögur þar um. í nefndinni eru Guðjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir, formaður nefndarinnar, Þorvaldur Veigar Guðmunds- son, formaður Læknafélags íslands, Þorsteinn Svörfuður Stefánsson, fulltrúi læknadeildar, Árni Gunnarsson, skrifstofustjóri mennta- málaráðuneytisins og Finnbogi Jakobsson af hálfu FUL. Mun nefndin að öllum líkindum skila tillögum til ráðherra kringum áramótin. Er það von manna, að þetta verði síðasta nefndin um þessi mál hérlendis, en málið hefur verið til umræðu í um áratug. Fyrir tilstuðlan Þorvaldar Veigars Guð- mundssonar, formanns L.Í., var komið á sam- vinnu milli yfirlækna á lyflæknisdeildum Land- spítala, Borgarspítala og Landakotsspítala um kennslu kandídata, sem lið framhaldsmenntun þeirra. Taldi félagið eðlilegt, að fulltrúar unglækna í þessum stöðum tækju þátt í skipulagningu þessara námsstaða, en ekki félagið sem slíkt. Völdust til þessa Atli Árnason, og Guðmundur Þór Axelsson. 2. Atvinnumál Atvinnumarkaður íslenskra lækna er þrenns konar: a) Vinna á íslandi í eitt til þrjú ár að loknu námi í Háskóla íslands í kandídatsstöðum og/eða »super«kandídatsstöðum. b) Vinna erlendis við sérnám. c) Vinna hér heima að sérnámi læknu. Mikil offramleiðsla hefur verið á læknum á Vesturlöndum hin síðari ár og er nú atvinnu- leysi algengt í mörgum löndum Evrópu. Mikil fjölgun hefur einnig orðið á læknum á Norður- löndum, aðalsérnámssvæðum íslenskra lækna. Hin síðari ár hafa að jafnaði útskrifast um 40 læknakandídatar frá Háskóla íslands og er gert ráð fyrir enn stærri árgöngum næstu árin, en eftir 3-4 ár verði Numerus clausus um 36. Fyrstu vandamál unglækna eru því tvenns konar. í fyrsta lagi að fá kandítatsstöður hér heima og í öðru lagi, að komast í sérnám til útlanda. Til þess að átta sig á fyrri hluta vandamáls- ins, sem einnig tengist ráðningarkerfi félags- ins, var skipaður þriggja manna starfshópur af hálfu stjórnarinnar, sem gerði úttekt á þeim stöðum, sem í boði voru á kandídatsárinu og í framhaldi af því »super«kandítatsstöðum. Varð niðurstaðan sú, að 58 öruggar kandí- datsstöður væru í boði, 9 til 12 óöruggar. Gerir þetta umreiknað u.þ.b. 800 vinnumánuði á ári, en þannig útreikningur gefur sennilega gleggsta mynd af vinnuframboðinu eða vinnu fyrir u.þ.b. 60 kandídata á ári. Auk þessa voru um 40 »super«kandídatsstöður á landinu. Hérlendis væri því vinna að jafnaði fyrir um tvo útskriftarárganga í tvö ár. Vegna almennrar fjölgunar lækna hefur orðið betri mönnun héraðsstaða, sem aftur hefur leitt til þess, að bið hefur verið eftir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.