Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ 129 í töflu VII er áætluð tala glákusjúklinga 50 ára og eldri í árslok 1981 byggð á fyrr- nefndum forsendum. Er heildartala áætluð 2304 (1207 karlar og 1097 konur) og heildaral- gengi 50 ára og eldri 43.5 af þúsundi (47.8 karlar og 39.5 konur). Við samanburð á algengi í þessari könnun við algengiskannanir í nágrannalöndum kemur í ljós að algengi hægfara gláku hér á landi er svipað og þar sem algengiskannanir hafa farið fram. Verður nánar skýrt frá því í annarri grein. Einnig verður í sérstakri grein gerður samanburður á algengi gláku í þessari könnun og fyrri könnunum hérlendis. Áætlad algengi hægfara gláku með skerðingu á sjónsviði (GVFD). Með þeirri rannsókn- araðferð, sem beitt var í þessari könnun, er aðeins fengin vitneskja um sjúklinga á gláku- lyfjum og þá, sem gengist hafa undir glákuað- gerð og ekki eru á lyfjum. Rannsóknin gefur ekki til kynna á hvaða stigi sjúkdómurinn er. Þar sem 37 % allra glákusjúklinga, sem komu í leitirnar í þessari könnun hafa verið skoðaðir á göngudeild augndeildar Landa- kotsspítala, má ætla að þeir endurspegli al- mennan augnhag glákusjúklinga á íslandi á könnunartímabilinu. Dreifing glákudeildarsjúk- linga í aldursflokka er svipuð og í þessari könnun, sbr. töflu IV og sömu sögu er að segja um búsetu, sbr. töflu V. Skilgreining hægfara gláku, sem komin er á augljóst (kliniskt) stig er: Stækkuð sjóntaugar- dæld (glaucoma excavatio), sem er randstæð að meira eða minna leyti og sjónsviðsskerð- ing, sem er einkennandi fyrir hægfara gláku (nerve fiber bundle defects). Oftast er hár augnþrýstingur samfara þessum einkennum, en ofanskráð einkenni geta verið til staðar enda þótt augnþrýstingur sé lægri en 20 mm Hg. Einnig að aðrir glákusjúkdómar séu úti- lokaðir. Sé skilgreining gláku miðuð við þessi skilmerki lækka algengistölur glákunnar í þess- ari könnun verulega. Ef tekið er mið af augnhag sjúklinga á glákudeild augndeildar Landakotsspítala, mun heildaralgengi skerðingar á sjónsviði, sem er einkennandi fyrir hægfara gláku (GVFD), vera um 19.1 af þúsundi meðal þeirra sem eru fimmtíu ára og eldri. Áætlað algengi er 3.1 af þúsundi í aldursflokki 50-59 ára, og hækkar línulega frá aldrinum 60-69 ára í 61.5 af þúsundi meðal 80 ára og eldri, sjá 12. mynd og töflu VIII. SUMMARY A compilation of all prescriptions issued on glau- coma medications in Iceland for a six month period (1 September 1981 - 1 March 1982) and hospital records of all operated primary open-angle glau- coma patients not using glaucoma drugs were ana- lysed for the prevalence and distribution of glaucoma in the country. The glaucoma population consisted of 1916 ind- ividuals, (991 males and 925 females) making an overall prevalence of 8.3 per thousand. About 80 % of the patients were on glaucoma medication. Only 2.6 % of the glaucoma population was under 50 years of age. The overall prevalence among 50 years and older was 35.3 per thousand, all having primary open- angle glaucoma. The prevalence increases with age from 5.7 per thousand at age 50 to 59 years, to 107,5 per thousand at age 80 years and older. Rates for males are higher than rates for females and this difference is significant. The rates in regions are highest where ophthalmologists visit the health centers regularly. About 37 per cent of the primary open-angle glaucoma population in Iceland are treated at the Outpatient Glaucoma Clinic, St. Joseph’s Hospital, Reykjavík. Assuming that the glaucoma patients in Iceland have similar eye status as the patients attending the glaucoma clinic the overall prevalence of GVFD (glaucoma visual field defects) is 19.1 per thousand. The prevalence of 50 to 59 years is estimated to be 2.4 per thousand with linear increase from 60-69 year age group, 13,6 per thousand to 71.2 per thousand in the age group 80 years and older. HEIMILDIR 1) Kalin HA et al. The Framingham Eye Study I, II American Journal of Epidemiology 1983; 106: 166-91. 2) Björnsson G. Gláka á göngudeild. Yfirlit yfir glákusjúklinga á göngudeild augndeildar Landa- kotsspítala 1973-1978 Læknablaðið 1979; 65: 229-38. 3) Björnsson G. Augnhagur Borgfirðinga. Lækna- neminn 1978;31:5-18. 4) Björnsson G. The primary glaucoma in Iceland Epidemiological studies. Acta Ophthalmologica, 1967; Supplementum 91. 5) Sveinsson K. Blindir menn á íslandi. Heilbrigt líf 1944;4:5-18. 6) Björnsson G. Blinda á íslandi. Læknablaðið 1954; 38: 65-70. 7) Björnsson G. Prevalence and causes of blindness in Iceland. Am J Ophthalmol 1955; 39: 202-8. 8) Björnsson G. Blindir og sjónskertir. Læknablaðið 1981; Supplementum 12.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.