Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 42
388 LÆKNABLAÐIÐ þess ef fram heldur sem horfir, að félagið muni nú halda vöku sinni svo fremi Guð gefi að því auðnist að eiga vökumenn innan sinna vébanda framvegis. Verkefnin verða trúlega ekki síður margvísleg en þau hafa verið og munu þau öll krefjast einhverra úrlausna. Má því segja að við séum ánægðir með félagsstarfsemina að öðru leyti en því að okkur finnst almennu fundirnir mættu vera eitthvað oftar. ÁHUGAMANNA- OG SÉRFRÆÐINGAFÉLÖG UM GEÐLÆKNINGAR Ekki er hægt að láta hér staðar numið án þess að minnast með fáum orðum einnig á önnur félög geðlækninga. Hér nota ég orðið geðlækningar sem safnheiti geðlækninga almennt. Fyrsta og elsta áhugamannafélagið er Geðvernd sem dr. Helgi Tómasson stofnaði og hefur síðan starfað óslitið. Nýjasta myndarlega átak Geðverndar til geðlækninga er áfangastaður sem reistur var og rekinn er í Kópavogi. Æskilegt verður að telja að svona rík áhersla var lögð á störf Geðverndar til að fyrirbyggja geðsjúkdóma í áraraðir áður en tímabært varð að stofna til geðlæknafélags sérfræðinga. Fyrir 25 árum kom svo Geðlæknafélagið sem fyrr segir og það er því næsta félag geðlækninga í röðinni. Margir félagar í því hafa jafnframt verið félagar í Geðvernd. Síðan stofnuðum við sjö geðlæknar og meðlimir í hinum tveimur fyrri félögum ásamt einum barnalækni annað félag áhugamanna um geðlækningar, Félag til að efla sálkönnun á íslandi, 3. febrúar 1977. í stjórn voru kosin Helga Hannesdóttir ritari, Halldór Hansen gjaldkeri og Esra S. Pétursson formaður. Félagsfundir voru mjög vel sóttir og jókst félagatalan ört og komst hæst í 16. Lögð var áhersla á fræðslu og þjálfunarfundi með lestrarnámskeiðum, fyrirlestrum og hóphandleiðslu. Félagið stofnaði skóla í sállækningum haustið 1979. Var hann allrækilega undirbúinn og rekinn í ein tvö til þrjú ár en svo reyndist ekki vera starfsgrundvöllur til lengra framhalds um þær mundir. Olli það okkur nokkrum vonbrigðum en síðan hefur félagið haldið áfram fyrri iðju sinni og höfum við nú undanfarið verið að kynna okkur allrækilega kenningar Kohuts og Lacans okkur til fróðleiks og ánægju. Annað sérfræðingafélag geðlækna, Barnageðlæknafélag íslands var svo stofnað 3. maí 1980 eftir langan aðdraganda með því að nokkrir tilvonandi félagar undir forystu Páls Ásgeirssonar hittust mánaðarlega til að ræða um barnageðlæknisfræði og uppeldisvandamál. Aðalhvatamaður og fyrsti formaður félagsins var Helga Hannesdóttir barnageðlæknir en Páll Ásgeirsson yfirlæknir barnageðdeildar Landspítalans hefur einnig verið mjög virkur og mikill hvatamaður í öllum þessum félögum. Nú eru félagarnir átta og hefur félagið haldið gagnmerkt og fjölsótt málþing sem Páll stýrði ásamt Jules Bemporad prófessor frá Harvard háskóla um mismunandi skoðanir á þróunarferli barna. Þessi fjögur félög um geðlækningar, Geðvernd, Geðlæknafélag íslands, Félag til að efla sálkönnun á íslandi og Barnageðlæknafélagið hafa lengst af unnið saman sem sjálfstæð félög, óháð hvert öðru í sátt og friði hvert við annað og án þess að seilast til yfirráða hvert yfir öðru og hefur ekki að öðru leyti borið á klofningsviðleitni eða misklíð eða annars konar systkinaríg á milli þeirra, sem mér er kunnugt um, þó skiptar skoðanir hafi verið ræddar um ónauðsynleg formsatriði og niðurröðun. Við væntum þess og óskum að okkur auðnist að halda þennan frið. Um félagið Geðhjálp, sem ætlað er fyrst og fremst fyrir geðsjúka og aðstandendur og velvildarmenn þeirra, gegnir eðlilega nokkuð öðru máli. Það hefur, líkt og önnur sjálfshjálparfélög, markað sér vissa afstöðu gagnvart geðlækningum og aðildarfélögum þess. Óhjákvæmilega hefur gætt þar nokkurs tvískinnungs, sem hefur þó sem betur fer ekki verið harðsnúinn. Nokkrir félagar úr Geðlæknafélaginu hafa flutt erindi fyrir Geðhjálp að beiðni formanns þess, frú Hope Knutson og hefur okkur verið ágætlega tekið á fundum þeirra, sem eru yfirleitt mjög vel sóttir. Félagið leggur mikla áherslu á trú á æðri mátt, nokkuð svipað því sem gert er hjá öðrum sjálfshjálparfélögum svo sem Góðtemplurum, AA og SÁÁ og telja þau sig hafa öll sótt mikinn styrk í trú sína á æðri mátt. Enda teljum við ýmsir að órofið og beint samband sé ætíð á milli raunsjálfs og æðri máttar, svo fremi magnaður frumkvíði ásamt fylgifiskum hans, svo sem eigingirni, hroka, fíkn, efagirni og vantrú, rjúfi ekki það samband. Ég vil að lokum leyfa mér að þakka félögum Geðlæknafélags íslands fyrir störf þeirra í þágu félagsins og þeirra sjúklinga sem því er ætlað að þjóna. Okkur er hollt, að ég held, að brjóta odd af oflæti okkar með því að minna hæfilega oft á það að við erum þjónar þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.