Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 67

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 67
LÆKNABLAÐIÐ 411 Um var að ræða áfrýjun á úrskurði nefndarinnar frá 5. mars 1985. Úrskurðurinn var staðfestur með 4 atkvæðum gegn einu. STARFSMATSNEFND Starfsmatsnefnd hélt 5 fundi á árinu 1986 og 3 fundi á árinu 1987. Hún lagði á þessum fundum mat á starfsaldur 28 sérfræðinga og ákvað launastig 61 aðstoðarlæknis. Nefndin var stofnuð árið 1966 í framhaldi af fyrstu heildarkjarasamningum lausráðinna sjúkrahúslækna. Hún starfaði í fyrstu á vegum L.R. en síðar á vegum L.í. Með nýjum samningum nú í vor voru teknar upp nýjar starfsaldursreglur fyrir sjúkahúslækna, sem miðast við kandidatsár, bæði að því er snertir sérfræðinga og aðstoðarlækna. Reglur þessar tóku gildi 1. júlí sl. Af þessum sökum er hlutverki nefndarinnar Iokið, og hélt hún sinn síðasta fund 22. mai sl. Enda þótt starfsemi nefndarinnar hafi ekki farið hátt, hefur hún verið mjög veigamikill þáttur í kjaramálum lækna. Þess má geta, að Eggert Jóhannsson sat í nefndinni alla tíð og síðustu árin sem formaður. Nefninni eru hér með þökkuð giftudrjúg störf í þágu lækna. ÁRÓÐURSNEFND UM HEILSUSAMLEGRA LÍFERNI Nefndin hélt allmarga fundi og ákvað að taka fyrir áróður gegn reykingum. Vænlegast þótti að beina spjótum að þeim hópi, sem ekki hefur enn hafið reykingar og kynntu nefndarmenn sér það starf, sem farið hefur fram á vegum Krabbameinsfélags íslands í skólum landsins í þá veru. Ljóst þykir, að veruleg fræðsla um skaðsemi reykinga er á boðstólum innan skólakerfisins upp að 9. bekk, og var ákveðið að taka þann hóp fyrir og gefa þessum upplýsingum aukið vægi, með því að læknar færu sjálfir og kynntu þetta efni fyrir nemendum. Ákveðið var að taka saman mjög stuttan fræðslupóst og gefa síðan góðan tíma fyrir umræður og fyrirspurnir. Óformlega var haft samband við menntamálaráðuneyti, heilbrigðismálaráðuneyti og Krabbameinsfélag íslands og var mjög góður hljómgrunnur hjá öllum þessum aðilum fyrir hugmyndinni. Nefndarmenn prufukeyrðu síðan þetta efni í 9. bekk í Laugalækjaskóla í Reykjavík, og má segja, að undirtektir nemenda og eins kennara hafi verið mjög jákvæðar, og fengum við jákvæða gagnrýni á þetta efni. Ákveðið var að fínpússa fræðsluefnið, útbúa nokkrar glærur og bækling og ganga endanlega frá þessu fyrir áramót, þannig að það verði aðgengilegt öðrum til afnota fyrir næsta vor. SÉRFRÆÐINEFND LÆKNADEILDAR Þann 1. júlí 1986 öðlaðist gildi ný reglugerð um veitingu lækningaleyfis og sérfræðileyfa, þar sem m.a. er að finna svohljóðandi ákvæði um sérfræðinefnd: »Læknadeild skipar 3 Iækna til að fara yfir og úrskurða um umsóknir til sérfræðileyfis. Skal einn vera úr hópi kennara deildarinnar og er hann formaður nefndarinnar, annar skal tilnefndur af L.í. og sá þiðji er forstöðumaður kennslu í þeirri grein, sem til umfjöllunar er hverju sinni. Við afgreiðslu umsókna skal, þegar við á, fulltrúi viðkomandi sérgreinafélags boðaður á fund nefndarinnar. Fulltrúar læknadeildar og L.Í. skulu skipaðir til 4 ára. Þeir annast fyrir hönd læknadeildar túlkun og endurskoðun reglugerðarinnar í samráði við stjórn og sérgreinafélög L.í. Ennfremur skulu þessir aðilar fylgjast með þróun framhaldsnáms og reglna um sérfræðiviðurkenningu í nágrannalöndum. Komi upp ágreiningur í nefndinni skal skjóta honum undir úrskurð læknadeildar.« Auk forstöðumanns viðkomandi kennslugreinar hverju sinni eru í nefndinni Helgi Valdimarsson, prófessor, fulltrúi læknadeildar og Viðar Hjartarson frá Læknafélagi íslands. Varamenn eru Gunnar Þór Jónsson, prófessor, og Ólafur Þ. Jónsson. Segja má, að starf nefndarinnar sé enn að mótast, enda er hún ekki nema rúmlega ársgömul. Reglugerðin gerir ráð fyrir nánara samstarfi við sérgreinafélögin en áður var og hafa nokkur þeirra lagt nefndinni lið, t.d. þegar borist hafa umsóknir um sérfræðileyfi í öðrum greinum en þeim, sem taldar eru upp í reglugerð. Af og til berast fyrirspurnir frá læknum í sérnámi eða þeim, sem hyggja á sérnám, og reynir nefndin að svara þeim eftir bestu getu. ísland er aðili að samningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað lækna, þar sem kveðið er á um, að ríkisborgarar samningsríkjanna, sem fengið hafa leyfi til að kalla sig sérfræðinga í einhverju ríkjanna, eigi rétt á sama leyfi í hinum samningsríkjunum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Á liðnu ári hefur komið upp ágreiningur milli sérfræðinefndar og nokkurra íslenskra lækna, sem hlotið hafa sérfræðileyfi í einu samningsríkjanna og sótt um íslenskt leyfi á grundvelli áðurnefnds samnings, en fengið synjun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.