Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 68

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 68
412 LÆKNABLAÐIÐ nefndarinnar á þeirri forsendu, að ekki sé um jafngilt nám að ræða í greininni í löndunum tveim. Svipuð ágreiningsmál eru vel þekkt á hinum Norðurlöndunum og kannski ekki að undra, þar eð löndin hafa fjarlægst nokkuð hvert annað m.t.t. fyrirkomulags sérfræðinámsins síðan 1976 þegar ákvæðin um gagnkvæm sérfræðiréttindi voru staðfest þar. Til að komast hjá árekstrum af þessu tagi og einkum þó til að freista þess að samræma betur sérnámið, er starfandi nefnd (NKLV) á vegum landlækna Norðurlandanna og eiga læknafélögin aukaaðild að henni. Er full ástæða til að hvetja ísland til virkari þátttöku í störfum nefndarinnar en verið hefur. Að lokum má geta þess, að samstarfið innan sérfræðinefndar, svo og við forseta læknadeildar hefur verið með ágætum og tvímælalaust hefur bein aðild L.í. að nefndinni verið breyting til bóta miðað við fyrri skipan þessara mála. NEFND TIL AÐ META STARFSEMI ÍSLENSKRA SJÚKRAHÚSA Samkvæmt 3. gr. reglugerðar um veitingu lækningaleyfis og sérfræðileyfa skal L.í. tilnefna einn fulltrúa i nefnd til að meta starfsemi íslenskra sjúkrahúsa. Fulltrúi L.í. í þessari nefnd er Gunnar Sigurðsson en auk hans eiga sæti í nefndinni Baldur Fr. Sigfússon, dósent, fulltrúi læknadeildar Háskóla íslands og jafnframt formaður nefndarinnar, og Ólafur Örn Arnarson, yfirlæknir, fulltrúi Landssambands sjúkrahúsa. Nefndin vinnur nú að upplýsingasöfnun um sjúkrahúsdeildir þær, sem óska þess, að nám aðstoðarlækna á viðkomandi deild verði viðurkennt sem hluti af sérfræðinámi í viðkomandi sérfræðigrein. Yfirlæknum þeirra sjúkrahúsdeilda, sem til greina koma, verður sent bréf, þar sem óskað er eftir greinargerð um starfsemi deildarinnar. Þessum upplýsingum verður væntanlega safnað á næstu mánuðum. ÚTGÁFUMÁL Læknablaðið og Fréttabréf komu út reglulega á síðasta ári. Tveir nýir menn tóku sæti í ritstjórn Læknablaðsins, þeir Sigurður Guðmundsson og Vilhjálmur Rafnsson. Mikið efni berst blaðinu og er biðtími greina í Læknablaðið nú um sex mánuðir. Fjárhagur útgáfunnar er allgóður, þrátt fyrir að tekjur af auglýsingum hafi verið nokkru minni síðasta ár en oft áður. Auglýsingatekjur hafa hins vegar aukist aftur á þessu ári. Útgáfa íðorðasafns lækna heldur áfram. Komnir eru út stafkaflarnir A til E og verður haldið áfram á sama hátt, uns síðasti bókstafurinn verður kominn út á árinu 1989. Bendir allt til þess, að það takist, þar sem nú er verið að byrja að orðtaka stafkaflann S. I orðanefndina bættist á árinu Eyjólfur Þ. Haraldsson. Starfsmaður orðanefndar og ritstjóri íðorðasafnsins er Magnús Snædal, cand. mag. Starfsmenn Læknablaðsins eru þau Birna Þórðardóttir og Jóhannes Tómasson. Hefur þeim verið búinn góður vinnustaður í húsnæði því, sem áður var fundarherbergi læknafélaganna. Hefur útgáfustarfsemin þar með fengið fastan samastað. HÓPTRYGGING LÆKNA Nú eru 168 læknar aðilar að hóptryggingunni, þar af 129 með alla þrjá þætti tryggingarinnar. Bótafjárhæðir og iðgjöld eru nú þessi: Bætur (kr.) Ársiðgiald (kr.) Líftrygging 3.200.000 22.300 örorkutrygging 3.600.000 18.300 V eikindatrygging 95.900 á mánuði (9 mánaða biðtími) 14.800 Veikindatrygging 95.900 á mánuði (1 mánaðar biðtími) 24.300 Hægt er að vera aðili að einum eða fleiri þáttum tryggingarinnar. Líftryggingabætur lækka um 4% fyrir hvert ár umfram 50. Tryggingaraðild lýkur við 65 ára aldur. LÍFEYRISSJÓÐUR LÆKNA Á árinu 1986 voru veitt 128 lán úr sjóðnum að fjárhæð samtals kr. 48.615.000. Hafa lánveitingar ekki verið svo fáar í mörg ár. Vísitölutryggð verðbréf voru keypt af ríkissjóði fyrir 37.000.000 og önnur skuldabréf voru keypt fyrir 55.000.000. Iðgjöld sjóðfélaga voru um 70.000.000, sem er u.þ.b. 49% hækkun frá árinu áður. Makalífeyrir var greiddur 12 ekkjum og ekklum, en barnalífeyrir með 8 börnum. Ellilífeyris nutu 7 læknar og 1 örorkulífeyris. Á árinu 1986 voru hámarkslán á bilinu 300-700 þúsund kr., sem er óbreytt frá fyrra ári. Lánin eru til 15 ára, bundin lánskjaravísitölu og með 6-7% ársvöxtum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.