Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 403 tvístrun á endurhæfingarstarfi innan heilbrigðisþjónustunnar. Endurhæfing er að verulegu leyti teymisvinna sem stendur og fellur með því að samstillt verklag náist með samvinnu ýmissa starfsstétta. Á meðal þeirra eru einmitt sjúkraþjálfarar, en einnig, svo að dæmi séu nefnd, iðjuþjálfar, talþjálfar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar auk lækna o.fl. Það gefur auga leið að það þjónar ekki tilgangi endurhæfingar og hagsmunum sjúklinga að kljúfa starfsemina í margar, óháðar starfseiningar. Slíkt myndi fyrst og fremst stuðla að flóknari framkvæmd endurhæfingar, e.t.v. tefla í tvísýnu hlutdeild sjúkraþjálfara í henni og almennt valda glundroða.« Einnig segir í umsögninni: »Að lokum kemur fram í ályktuninni að FÍSÞ telur það til grundvallaratriða að yfirsjúkraþjálfari heyri stjórnunarlega beint undir framkvæmdastjóra/stjórn. Vafi getur leikið á því hvað átt er við og vísast aftur til vöntunar á greinargerð með ályktuninni. Af orðalaginu einu saman má ráða að baksvið þessarar hugmyndar sé hið sama og áður er nefnt, þ.e. að sjúkraþjálfun skuli ekki teljast hluti af endurhæfingarþjónustu heilbrigðisstofnunar og í framhaldi þar af að yfirsjúkraþjálfari hafi ekki yfirmann annan en stjórn viðkomandi stofnunar eða framkvæmdastjóra í umboði hennar. Sé þetta réttur skilningur telur Félag ísl. orku- og endurhæfingarlækna að afleiðing slíks skipulags leiði til hins sama og áður er getið í þessari umsögn, þ.e. tvístrunar á endurhæfingarstarfi innan heilbrigðisþjónustu, sem tvímælalaust myndi hafa í för með sér óheppilegar afleiðingar fyrir sjúklinga og endurhæfingarþjónustuna í heild. Að mati Félags ísl. orku- og endurhæfingarlækna er sjúkraþjálfun liður í læknisfræðilegri endurhæfingu. Um stjórnunarlega og faglega ábyrgð í læknisfræðilegri endurhæfingu gildi hið sama og almennt gildir um læknisfræðilega meðferð. í því sambandi má benda á ákvæði 29. gr. 2. mgr. í lögum um heilbrigðisþjónustu um ábyrgð og verksvið yfirlækna á sjúkahúsum og ákvæði 32. gr. 1. mgr. sömu laga um stöðu og verksvið læknaráða.« Stjórn L.Í. tók undir álit sérgreinafélagsins að öllu leyti og sendi Félagi ísl. sjúkraþjálfara sem og öðrum þeim aðilum, sem ályktunin hafði verið send. 8. Um lífeyrisréttindi fastráðinna lœkna Margir læknar og eftirlifandi makar og börn lækna njóta lífeyris úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Lífeyrisréttindi miðast m.a. við röðun þess starfsheitis, sem viðkomandi bar síðast, í launaflokk. Við breytingar á starfsheitum og röðun þeirra í launflokka koma upp ýmis vandamál til úrlausnar hjá stjórn sjóðsins. Framkvæmdastjóri L.í. hefur í nokkur skipti hitt fulltrúa sjóðsins til að meta, við hvaða launaflokk Iífeyrisréttindi ýmissa Iækna eða maka þeirra og barna skulu miðast. Eru nú flestöll vafatilfelli, er lækna snerta í þessu sambandi, leyst. 9. Sérstök slysatrygging heilsugœslulœkna í framhaldi af munnlegu samkomulagi við samningsgerð fastráðinna lækna á árinu 1985, um auknar bætur til heilsugæslulækna vegna slysa í neyðar- og slysaútköllum, féllst fjármálaráðuneytið á eftirfarandi bótafjárhæðir: Vegna slysa í sjúkrabifreiðum eru dánar- og örorkubætur 6,6 milljónir króna. Bótafjárhæðir í öðrum neyðar- og slysatifellum, sem læknir er kvaddur til vegna starfa síns, eru kr. 2.640.000. Framangreindar fjárhæðir miðast við janúar 1986 og eru til viðbótar öðrum umsömdum bótum í kjarasamningi fastráðinna lækna. KJARAMÁL NÝ SAMNINGSRÉTTARLÖG Fyrsta janúar 1987 gengu í gildi ný lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Nýju lögin fela í sér verulegar breytingar á áður gildandi samningsrétti. Helstu breytingar eru: a) Samningsrétturinn er nú að fullu í höndum viðkomandi stéttarfélags en ekki skiptur í aðalkjarasamningsumboð, sem BHMR fór með, og sérkjarasamningsumboð, sem aðildarfélögin fóru með. BHMR fer því ekki lengur með samningsrétt fyrir aðildarfélögin, nema þau feli bandalaginu hann við gerð einstakra samninga. b) Háskólamenntaðir opinberir starfsmenn fengu með þessum lögum verkfallsrétt í fyrsta sinp og verkfallsréttur annarra starfsmanna var rýmkaður. Þó eru allmiklar takmarkanir á verkfallsheimild hjá mörgum stéttarfélögum þ.m.t. Læknafélagi íslands. Þær eiga að fyrirbyggja neyðar- eða hættuástand.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.