Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ 1987; 73: 365-7
365
Þorsteinn Gíslason, Ólafur Örn Arnarson
SAMSETNING NÝRNASTEINA
Uppgjör frá Landakoti
INNGANGUR
Greining á samsetningu nýrnasteina er
mikilvægur þáttur í meðferð sjúklinga, sem þá
mynda. Slík greining á sér langa sögu (1). Árið
1776 sýndi Scheele fram á, að blöðrusteinar þeirra
tíma voru flestir myndaðir úr þvagsýru. Þegar
aðferðir við efnagreiningu urðu fullkomnari,
fundust mörg fleiri efni í steinum frá þvagfærum.
Margar aðferðir hafa verið notaðar við
sundurgreiningu steinanna. í fyrstu var stuðst við
efnafræðilegar greiningar, en þær hafa verið á
undanhaldi síðustu ár. Nú kjósa flestar
rannsóknarstofur að nota aðferðir, sem greina
sundur mismunandi kristallabyggingu steinanna
(2).
Nýrnasteinar eru afleiðing margra sjúkdóma.
Undirstaða þess að greina þessa sjúkdóma í
sundur, er að þekkja samsetningu steinanna.
Steinar vegna langvarandi þvagfærasýkinga, eru
til dæmis af allt annarri gerð, en þeir steinar, sem
eru afleiðingar af brengluðum kalkbúskap.
Helztu gerðir nýrnasteina og orsakir þeirra eru
skráðar í meðfylgjandi lista. (Sjá töfluna).
Undanfarin ár höfum við á Landakotsspítala sent
til greiningar alla nýrnasteina, sem náðst hafa frá
sjúklingum okkar. Blöðrusteinar og steinar, sem
myndast í blöðruhálskirtli, hafa allt annan
Frá St. Jósefsspítala, Landakoti, Reykjavík.
Barst 18/03/1987. Samþykkt 05/05/1987.
uppruna og verður ekki gerð grein fyrir þeim hér.
Við höfum nú farið yfir niðurstöður þessara
greininga og birtast þær hér á eftir. Einnig verður
leitast við að bera niðurstöður okkar saman við
erlendar rannsóknir af sama toga.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Safnað var saman nýrnasteinum frá árslokum
1982 til ársloka 1986 (mynd 1). Steinarnir voru
Tafla I. Steingerðir og orsakir Þeirra.
Kalsíumoxalatsteinar Aukinn kalsíumútskilnaður af ýmsum orsökum.
Kalsíumfosfatsteinar Aukinn kalsíum útskilnaður. Basískt þvag.
Struvísteinar Þvagfærasýking með þvagefniskljúfandi bakteríum.
Þvagsýrusteinar Aukinn þvagsýruútskilnaður.
Systínsteinar Arfgeng systínmiga
Xanþinsteinar Xanþínmiga vegna skorts á xanþínoxidasa.
2,8-díhýdroxý- adeninsteinar Skortur á adenín- fosfóríbósýltransferasa.
Mynd 1. Fjöldi greininga á ári.
Mynd 2. Kynjaskifling.