Læknablaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 46
390
LÆKNABLAÐIÐ
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi
hjúkrunarsforstjóri og hjúkrunarfræðingur, einn
meinatæknir, símavörður sem jafnframt annast
sjúkraskrár og tveir ritarar. Með því að samnýta
aðstöðuna á sjúkrahúsinu og heilsugæslustöðinni
er hægt að koma við ýmissi hagræðingu.
Við sjúkrahúsið starfa hjúkrunarforstjóri, sex
hjúkrunarfræðingar, ljósmóðir sem einnig sinnir
mæðravernd á heilsugæslustöðinni, fjórir til sex
sjúkraliðar auk ófaglærðra starfsmanna.
MIKIL ÞÖRF ER Á ÞJÓNUSTUÍBÚÐUM
FYRIR ALDRAÐA
Egilsstaðir eru miðsvæðis í víðlendu
landbúnaðarhéraði og segir það til sín á
sjúkrahúsinu. Oft er nauðsynlegt að taka inn
sjúklinga einfaldlega vegna þess að þeir eiga ekki
í önnur hús að venda. Þannig liggja félagslegar
aðstæður og einstæðingsskapur oft til
grundvallar innlögnum. Margt af þessu gamla
fólki er gjörsamlega eignalaust. Það á ef til vill
verðlausa jörð með verðlausum húsum og er
slyppt og snautt þegar það flyst af jörðinni að
loknu ævistarfi. Þetta gamla fólk passar
einfaldlega ekki inn í rikjandi eignafyrirkomulag.
Erfitt er að koma við heimahjúkrun og
heimilishjálp í héraðinu, en við sjúkrahúsið eru
nokkrar leiguíbúðir, sem hrepparnir á Héraði
hafa fjármagnað, og eru þær ætlaðar gömlu
fólki. Þessar íbúðir eru einungis fyrir sjálfbjarga
fólk enda er ekki innangengt í þær frá
sjúkrahúsinu. Að vetrinum er gengið úr þeim
beint útí skafl.
ÞJÓNUSTUSVÆÐI EGILSSTAÐALÆKNA
Egilsstaðalæknishérað er víðfeðmt. Niður á
Borgarfjörð eru um 70 km. Þangað er um fjallveg
að fara og yfir Njarðvíkurskriður, sem mörgum
þykja ógnvekjandi. Upp á Möðrudal eru 100 km.
Norðan megin Lagarfljóts er ysti hreppur Hlíð og
þangað eru um 60 km og fyrir innan Egilsstaði
klofnar Fljótsdalurinn í tvennt.
Þetta er ekkert smá svæði sem læknar verða að
þjónusta hvenær sem er sólarhringsins. Á jóladag
fyrir tveimur árum fór Gunnsteinn til dæmis í
sjúkravitjun norður á Möðrudal, um 100 km leið.
Þar við bætist að vegir eru slæmir og stundum
lenda læknar í allt að sólarhringsvitjunum.
Auk framangreindra svæða eru öræfin að opnast
fyrir aukinni umferð. Vegur hefur verið opnaður
upp í Kverkfjöll. Á þessum slóðum hafa orðið
slys, menn villst og læknar þurft að fara með
björgunarsveitum. Eru þá ótaldir veiðimenn sem
talsvert eru á ferð um hreindýraslóðir og
veiðivötn.
SAMSKIPTI VIÐ SÉRFRÆÐINGA
Sérfræðiaðstoðar þarf að leita annars staðar. Það
er um 2ja klst. akstur niður á Norðfjörð og ekki
alltaf greiðfært. Nokkur fjöldi sjúklinga er
sendur til Akureyrar og þeim hefur fjölgað í og
með eflingu Fjórðungssjúkrahússins þar.
Ein verstu tilfelli sem upp koma eru konur sem
þarfnast bráðs keisaraskurðar, þær verður að
senda í burtu í skyndi. Hægt er að koma þeim til
Akureyrar og á skurðarborð á einni klukkustund
og fyrr á Neskaupstað ef fært er í lofti.
Hvort sem mönnum líkar betur eða verr, verður
hins vegar að játa að Egilsstaðir eru á áhrifasvæði
Reykjavíkur og tilheyra upptökusvæði
Reykjavíkursjúkrahúsanna. Það skiptir miklu að
flugvöllurinn á Egilsstöðum sé í góðu lagi én því
Gunnsteinn Stefánsson, Stefán Þórarinsson og Þórður G. Ólafsson. (Ljósm. Örn Bjarnason).