Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1987, Page 49

Læknablaðið - 15.11.1987, Page 49
LÆKNABLAÐIÐ 1987; 73: 393-417 393 ÁRSSKÝRSLA LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS starfsárið 1986-1987 INNGANGUR Ársskýrsla þessi nær til 18. ágúst 1987. Síðasta skýrsla stjórnar nær til 18. júlí 1986, en hún var lögð fram á aðalfundi 22.-23. ágúst 1986. Alls greiddi 761 læknir árgjald árið 1986. Þar af voru 633, sem greiddu fullt árgjald, en 128 hluta árgjalds. Læknar á skrá, komnir yfir sjötugt og/eða hættir störfum, voru 59 í árslok, en þeir greiða ekki árgjöld. Árgjaldið 1986 var kr. 16.000 og hluti svæðafélags þar af kr. 2.000. Innheimt árgjöld samsvöruðu 662 heilum árgjöldum og skiptust þau þannig milli svæðafélaga: Læknafélag Reykjavíkur 525, Læknafélag Vesturlands 24, Læknafélag Vestfjarða 11, Læknafélag Norðvesturlands 13, Læknafélag Akureyrar 50, Læknafélag Norðausturlands 9, Læknafélag Austurlands 14 og Læknafélag Suðurlands 16. Vorið 1987 útskrifuðust 44 kandidatar frá læknadeild Háskóla íslands, en 62 árið áður. Eftirtaldir læknar hafa látist frá síðustu ársskýrslu: Hinrik Thorarensen f. 15.09.93 d. 26.12.86 Jón Sigurðsson f. 29.06.06 d. 28.12.86 Kjartan Jóhannsson f. 19.04.07 d. 07.01.87 Ólafur Jónsson f. 04.09.24 d. 17.08.87 Steingrímur Jónsson f. 23.11.19 d. 02.03.87. AÐALFUNDUR L.í. 1986 Aðalfundur Læknafélags íslands 1986 var haldinn á Sauðárkróki 22. og 23. ágúst. Fundinn sátu eftirtaldir fulltrúar: Frá Læknafélagi Reykjavíkur: Atli Dagbjartsson, Guðmundur I. Eyjólfsson, Halldór Jónsson, Jón H. Alfreðsson, Kristján Baldvinsson, Kjartan Örvar, Ludvig Guðmundsson, Lúðvík Ólafsson, Magni Jónsson, Ólafur Mixa, Pétur Lúðvigsson, Tryggvi Ásmundsson og Þórður Harðarson. Frá Lœknafélagi Vesturlands: Ari Jóhannesson og Sigurbjörn Sveinsson, frá Lœknafélagi Vestfjarða: Samúel J. Samúelsson, frá Lœknafélagi Norðvesturlands: Friðrik J. Friðriksson, frá Lœknafélagi Akureyrar: Brynjólfur Ingvarsson, Halldór Halldórsson, Ólafur H. Oddsson og Sigurður Kr. Pétursson, frá Lœknafélagi Norðausturlands: Ingimar S. Hjálmarsson, frá Lœknafélagi Austurlands: Gunnsteinn Stefánsson, frá Læknafélagi Suðurlands: Pétur Z. Skarphéðinsson, frá F.Í.L.Í.S.: Jón G. Snædal, frá F.Í.L.Í.N.A.: Uggi Agnarsson. Enginn fulltrúi var frá F.Í.L.Í.B. og F.Í.L.Í.Þý. Úr stjórn Læknafélags íslands sátu fundinn: Haukur Þórðarson, formaður, Halldór Steinsen, varaformaður, Kristján Eyjólfsson, ritari, Sveinn Magnússon, gjaldkeri og Gestur Þorgeirsson. Einnig sátu fundinn: Páll Þórðarson, framkvæmdastjóri læknafélaganna, Ragnar H. Guðmundsson, starfsmaður skrifstofu læknafélaganna, og Friðrik Karlsson, framkvæmdastjóri Domus Medica. Gestir voru: Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðismálaráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir, aðstoðarmaður ráðherra, sem sátu fyrri hluta síðari dags aðalfundarins, Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, Ólafur Ólafsson, landlæknir, Ásmundur Brekkan, forseti læknadeildar Háskóla íslands, Þorvaldur Veigar Guðmundsson, fulltrúi Félags yfirlækna, og Stefán Steinsson, fulltrúi F.U.L.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.