Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1987, Page 53

Læknablaðið - 15.11.1987, Page 53
LÆKNABLAÐIÐ 397 »Með tilkomu heilsugæslustöðva sköpuðust ný viðhorf í heilbrigðisþjónustu á íslandi. í kjölfarið myndaðist spenna milli heimilislækna annars vegar og sérfræðinga hins vegar, sem byggðist á hugmyndafræðilegum ágreiningi og hagsmunaátökum. En reynsla undanfarinna ára hefur leitt í Ijós, að þessi togstreita dregur úr styrk samtaka okkar og þjónar hvorki hagsmunum okkar né þeirra, sem þjónustunnar njóta. Það er skoðun okkar, að forsenda samstarfs heimilislækna og sérfræðinga sé traust og gagnkvæmur skilningur á verksviði hvors annars. Einnig að þó heilsugæslustöðvar séu aðalstarfsvettvangur heimilislækna, hindrar það hvorki aðgang sérfræðinga að stöðvunum né samstarf þessara aðila um greiningu, meðferð og eftirlit einstakra sjúklinga. Ágreiningi sérfræðinga og heimilislækna þarf að eyða, enda stendur hann í vegi fyrir eðlilegri þróun heilbrigðisþjónustu í landinu. Við óskum eftir stuðningi aðalfundarfulltrúa við ofangreind atriði.« Magni Jónsson og Haukur Þórðarson fögnuðu þessu erindi. Páll Sigurðsson benti á, að núgildandi lög gera ráð fyrir sérfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum. í Reykjavík hafa heilbrigðisyfirvöld í borginni hins vegar vikið þessu málefni frá sér. Haukur Þórðarson lagði til, að þeir, sem vildu, undirrituðu þetta erindi og það væri síðan tilmæli til stjórnar. Undirrituðu 19 fundarmenn erindið. Kjartan Örvar fékk orðið og ræddi um framhaldsnám, sem nú væri í mikilli óvissu. Samband hefði verið haft við norska læknafélagið og lögð fram beiðni frá L.f. og FUL um samstarf að þessu máli en norska læknafélagið hefði hafnað beiðninni. Hann lagði síðan fram eftirfarandi bókun frá FUL: »Með hverju ári verður æ erfiðara fyrir unga lækna að komast í framhaldsnám erlendis, þar sem samkeppni um námsstöður er gífurleg. Það er ljóst, að opna verður nýjar leiðir fyrir framhaldsnám og er Noregur þar ofarlega á blaði. Nýlega hefur norska læknafélagið hafnað beiðni L.í.og FUL um aðstoð við að koma íslenskum læknum að við framhaldsnám í Noregi, en vísað á heilbrigðisyfirvöld í báðum löndum um hugsanlegan samning þar að lútandi. FUL beinir þeim tilmælum til stjórnar L.Í., að hún beiti sér fyrir því, að heilbrigðisyfirvöld á íslandi reyni að ná samkomulagi við norsk stjórnvöld um framhaldsnám þar í landi.« Formaður bar að lokum fram þakkir til fundarmanna, fundarstjóra og fundarritara og sleit fundi. Fundargerð aðalfundarins birtist (lítið eitt stytt) í ágústhefti Læknablaðsins, 6. tbl. 1987 og vísast að öðru leyti til hennar. STJÓRNARFUNDIR Að vetrinum heldur stjórn L.í. formlega fundi vikulega að jafnaði. Á tímabilinu 9. sept. 1986 - 18. ágúst 1987 voru stjórnarfundir 33 talsins. Auk þess voru haldnir tveir fundir sameiginlegir með stjórn L.R. Bókfærð mál voru frá 1-20 á fundi, alls 327 mál á ofangreindu tímabili. Að sjálfsögðu vinna stjórnarmenn að margvíslegum málefnum félagsins á milli funda. FUNDUR STJÓRNAR L.í. MEÐ FULLTRÚUM SVÆÐAFÉLAGA (FORMANNARÁÐSTEFNA) Ofangreindur fundur var haldinn í Domus Medica 4. apríl 1987. Fundinn sóttu fulltrúar allra svæðafélaganna, en alls sátu hann 22. Á fundinum var rætt um afgreiðslu ályktana aðalfundar 1986 og skýrt frá helstu málum, sem stjórnin hafði haft afskipti af frá síðasta aðalfundi. Rætt var um frumvarp til nýrra læknalaga, sem þá lá fyrir Alþingi og sagt frá umfjöllun stjórnar um frumvarpið (sem náði ekki afgreiðslu fyrir þinglok í aprílmánuði sl.). Kjaramál voru til umæðu, og skýrðu formenn samninganefnda stöðuna í samnngamálum. Rætt var um innheimtur fyrir verk unnin skv. gjaldskrá. Tryggingayfirlæknir var gestur fundarins í tilefni þessarar umræðu. Rætt var auk þess um atvinnuhorfur meðal lækna, trúnaðarlæknisstörf, útgáfumál o.fl. mál. Nánar er sagt frá fundinum í ágústhefti Læknablaðsins, 1987. AFGREIÐSLA ÁLYKTANA AÐALFUNDAR 1986 I. Áskorun á ráðherra heilbrigðis- og menntamála og stjórn L.í. um, að komið verði á fót framhaldskennslu í heimilislækningum og um eflingu framhaldskennslu í öðrum greinum var send viðkomandi ráðherrum, landlækni, læknadeild Háskóla íslands, héraðslæknum og læknaráðum deildaskiptra sjúkahúsa. II. Áskorun á læknadeild Háskóla íslands um að vinna að stofnun prófessorsembættis i heimilislækningum o.fl. var send deildinni,

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.