Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 18

Læknablaðið - 15.12.1987, Blaðsíða 18
428 LÆKNABLAÐIÐ Er áætlað að alkóhól sé orsök háþrýstings í allt að 10% tilfella í þeim löndum þar sem alkóhólneysla er mest og því algengasta tegund af »læknanlegum háþrýstingi.« Ekki er vitað með hvaða hætti alkóhól veldur hækkuðum blóðþrýstingi. Meðferð án lyfja. Af framangreindu sést að ná má nokkrum árangri í meðferð háþrýstings án lyfja og er tímabært að nýta sér þetta. Rétt er að ráðleggja öllum sem hafa háþrýsting (essential hypertension) eftirfarandi: 1. Megrast ef um offitu er að ræða með því að daga úr heildar hitaeininganeyslunni. 2. Takmarka neyslu á matarsalti. 3. Draga úr neyslu á mettaðri fitu. 4. Nota áfenga drykki í hófi. 5. Stunda líkamsrækt (göngu, skokk, sund). 6. Vinna gegn streitu. Læknir sjúklings verður að gefa sér góðan tíma til að útskýra gildi og framkvæmd fyrrgreindra atriða. Sé um vægan háþrýsting að ræða eru engin lyf gefin fyrstu fjórar til átta vikurnar, en blóðþrýstingur mældur á tveggja vikna fresti. Kemur þá i ljós hvort meðferð án lyfja reynist fullnægjandi. Búast má við verulegri lækkun á blóðþrýstingi hjá 40 til 50% þeirra sem fylgja vel framangreindum lífsreglum og nokkrum árangri hjá 10 til 20% allra þeirra sem hafa dýastólu 90 til 104 mmHg. Fylgjast þarf reglulega með blóðþrýstingi, jafnt hjá þeim sem ekki nota lyf og hinum, á þriggja til fjögurra mánaða fresti, því að búast má við að blóðþrýstingur hækki aftur í sumum tilfellum. Ætla má að þeir sem þurfa á lyfjameðferð að halda komist af með minni skammt takist þeim að halda framangreindar reglur. Draga þarf úr lyfjaskömmtum hjá þeim sem svara vel meðferð og láta smátt og smátt á það reyna hvort blóðþrýstingur helst eðlilegur. Snorri Páll Sorrason HEIMILDIR 1. MacMahon SW et al. Obesity, alcohol consumption and blood pressure in Australian men and women: The National Heart Foundation of Australia Risk Factor Prevalence Study. J Hypertension 1984; 2: 85-91. 2. McGregor GA. Dietary sodium and potassium intake and blood pressure. Lancet 1983; 1: 750-2. 3. Kaplan NM. Theraphy for Mild Hypertension. Toward a more balanced view. JAMA 1983; 249: 365-7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.