Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1987, Side 35

Læknablaðið - 15.12.1987, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ 1987; 73: 443-7 443 Ragnheiður Guðmundsdóttir UPPHAF SJÚKRALIÐANÁMS Á ÍSLANDI Eftirfarandi er erindi sem höfundur hélt á ráðstefnu Sjúkraliðafélags íslands 1985. Á því ári voru liðin 20 ár frá því að nám sjúkraliða hófst hérlendis en það var gert mögulegt með breytingum á hjúkrunarlögunum á vorþinginu 1965. Erindið er hér birt með smávægilegum breytingum á orðalagi. Á árunum fyrir og eftir 1960 var mikið rætt og ritað um skort á hjúkrunarfólki, ekki einasta á sjúkrahúsum um land allt, heldur alls staðar þar sem hjúkrunar var þörf. Það var ofur eðlilegt að svo væri, þvi að á þessum árum voru í smíðum viðbyggingar við stóru spítalana í Reykjavík, Landakotsspítala og Landspítalans og smíði Borgarspítalans var á lokastigi. í nýbyggingu við Landspítalann var áformað að taka í notkun 225 ný rúm og þegar Borgarspítalinn hæfi starfsemi var búist við, að 220 sjúkrarúm yrðu tekin í notkun í fyrsta áfanga. Þessar tölur er að finna í Lbl. 3. hefti 46. árg. 1962, en upplýsinganefnd L.R., sem kosin var í ársbyrjun 1962 lét m.a. afla þessara og annarra upplýsinga. í sama blaði birtast jafnframt upplýsingar frá þeim Sigríði Bachmann, forstöðukonu Landspítalans, Þorbjörgu Jónsdóttur, skólastjóra Hjúkrunarskólans og Önnu Loftsdóttur, formanni Hjúkrunarfélags íslands um ástand hjúkrunarmála um þær mundir. Fram kemur hjá Sigriði Bachmann, að Landspítalinn geti ekki veitt sjúklingum þá þjónustu, sem talin er æskileg (þrjár klukkustundir á sólarhring hver sjúklingur), en þá eru 64 fastráðnar hjúkrunarkonur við spítalann og 55 hjúkrunarnemar. Hún bætir því við, að þó sé Landspítalinn sennilega best búinn hjúkrunarliði allra sjúkastofnana. Þar segir ennfremur um þörfina á hjúkrunarfólki, að þegar þetta nýja sjúkrarými verði tekið í notkun, muni þurfa 120 til 130 hjúkrunarkonur og 110 nema til viðbótar við það hjúkrunarfólk, sem fyrir er. Á þessum tíma voru að meðaltali útskrifaðar 30 hjúkrunarkonur á ári. Greinargerð þessara hjúkrunarkvenna lýkur með þessum orðum: »Með því að ljúka byggingu Hjúkrunarskólans mætti hins vegar auka afköst hans að miklum mun. Þótt það væri gert, er fyrirsjáanlegur mikill skortur á hjúkrunarliði við sjúkrahús landsins, ef ekki koma til fleiri aðgerðir til úrbóta.« Ég læt hér nægja að vitna til þessara skrifa í Læknablaðinu þó af fleiru sé að taka til dæmis varðandi sjúkrahús og stofnanir utan Reykjavíkur. Þarna er rækilega undirstrikaður skorturinn á hjúkrunarfólki og að hann verði fyrirsjáanlega enn meiri ef ekki koma til fleiri aðgerðir til úrbóta. En það var einmitt þetta. Voru ekki til önnur ráð, sem aðrar þjóðir höfðu reynt til að ráða bót á sams konar vanda í sínum löndum? Meðan ég dvaldi mestan hluta ársins 1962 i Bandaríkjunum, aðallega i Phildelphia og New York til að kynna mér kennslu í lífeðlisfræði við læknaskóla þar, en ég hafði þá verið aukakennari í þessari grein í tæpan áratug við læknadeild Háskóla íslands, kynntist ég, kannski að nokkru fyrir tilviljun, námi og starfi hjúkrunarfólks þar í landi, sem kallað er »practical nurses« sem við höfum kallað sjúkraliða. Mér fannst þetta hjúkrunarnám svo athyglisvert og frásögn ábyrgra aðila af því hvað þetta hjúkrunarfólk gegndi mikilvægu hlutverki í hjúkrun við spítala og aðrar sjúkrastofnanir svo merkilegt, að það varð til þess, að ég ákvað að kynna mér nám og starf þessara »practical nurses« eins vel og mér gæfist tækifæri til. Gerði ég það með það fyrir augum að kynna þetta ábyrgum aðilum hér og öllum almenningi, þegar heim kæmi, ef þetta mætti koma að gagni hér, eins og það hafði augljóslega gert þar í landi. Af þeim umræðum og blaðaskrifum sem ég hafði séð, m.a. greinargerðum í Læknablaðinu, sem vitnað var til, hafði ég aldrei heyrt svo mikið sem minnst á skemmri hjúkrunarmenntun, eins og þá, sem »practical nurses« fengu, til lausnar á þeim skorti hjúkrunarfólks, sem þegar var mikill og

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.