Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 2

Læknablaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 2
TÖFLUR: G 03 A B 03. Hver pakkning inniheldur 6 Ijósbrúnar töflur, 5 hvltar töflur og 10 gular töflur. Hver Ijósbrún tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 50 míkróg, Ethinylestradiolum INN 30 mikróg. Hver hvít tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 75 mikróg, Ethinylestradiolum INN 40 mikróg. Hver gul tafla inniheldur: Levon- orgestrelum INN 0,125 mg, Ethinylestradiolum INN 30 míkróg. Eiginlelkar: Getnaöarvarnalyf, blanda af östrógen/prógestógen í breytilegu hlutfalli eftir tíðahringnum. Hindrar egglos, breytir leghálsslími þannig, aö sæöisfrumur komast siður í gegn og breytir einnig legbolsslimhúö þannig, að frjóvgað egg getur siður búið um sig. Frá- sogast vel, helmingunartími 24—26 klst. Umbrotið i lifur. Ábendingar: Getnaöarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum meö æðabólgur i fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnaö. Tiöatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverk- ur, mígreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) i fæðingarvegi, útferö, milliblæðing, smáblæðing, eymsli i brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stlflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás i bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvild. Varúð: Konum, sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukavérkunum af notkun getnaöarvarnataflna, en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rifampicin geta hins vegar minnkaö virkni getnaðarvarnataflna, sóu þau gefin samtimis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstööur mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastæröir: Ein tafla daglega frá og með 1. degi tiðablæð- inga í 21 dag samfleytt. Fyrst eru teknar 6 Ijósbrúnar töflur, þá 5 hvítar og síöan 10 gular töflur. Síðan er 7 daga hlé, áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áöur. Pakkningar: 21 stk. (þynnupakkað); 21 stk. (þynnupakkað) x 3. Hverri pakkningu lyfsins skal fylgja íslenskur leiðarvisir með leiðbeiningum um notkun lyfsins og varnaðarorð. Triquilar -nú öruggari inntaka Pakkning mest notuðu þriggjafasa P-pillunnar á íslandi er orðin: -auðveldari -handhægari -einfaldari Þannig er farið að: Losaðu hringlaga límmiðann. Festu hann á miðjuna á framhliö Triquilar spjaldsins þannig að réttur byrjunardagur nemi viö rauða byrjunarreitinn. SCHERING AS Fjeldhammervej 8 DK-2610 Radovre StEFÁN ThORARENSEN hf. Síöumúli 32

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.