Læknablaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 4
ENALAPRIL
GEGN HÁÞRÝSTINGI
OG HJARTABILUN
Hver tafla inniheldur: Enalaprilum INN, maleat,5mgeöa20mg. Eiginleikar: Lyfið hamlar
hvata, sem breytir angiotensin I I angiotensin II. Angiotensin II er kröftugasta æða-
samdráttarefni llkamans. Lyfiö er forjyf (pro-drug). U.þ.b. 60% frásogast, umbrotnar I lif-
ur I enalaprilat, sem er hið virkaefni. Áhrif lyfsins ná hámarki eftir 4-6 klst. og geta haldist
I 24 klst. Helmingunartlmi er um 11 klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er skert.
Lyfiö útskilst í þvagi. Ábendingar: Hár blóöþrýstingur. Hjartabilun. Frábendingar: Of-
næmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Varúð: Gæta þarf varúóar við gjöf lyfsins
handa sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi. Lyfiö getur valdiö of mikilli blóðþrýst-
ingslækkun, ef sjúklingar hafa misst vökva vegna undanfarandi meðferöar með þvag-
ræsilyfjum. Aukaverkanir: Algengar: Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur. Sjaldgæfari:
Þreyta, slen. Lágur blóðþrýstingur og yfirliö. Ógleði, niðurgangur. Húðútþot, angio-
nevrotiskt ödem. Vöðvakrampar. Brengluö nýrnastarfsemi. Kreatlnln, urea, lifrarenzým
og bilirúbln geta hækkað, en komast I fyrra horf, ef lyfjagjöf er hætt. Milliverkanir: Blóð-
þrýstingslækkandi verkun lyfsins eykst, ef hýdróklórtlazíð er gefiö samtlmis. Hyper-
kalaemia getur myndast, ef lyfiö er gefið samtlmis lyfjum, sem draga úr kalíumútskiln-
aöi. Ofskömmtun: Gefa saltvatnslausn eða angiotensin II. Skammtastærðir handa full-
orðnum: Við hækkaðan blóðþrýsting: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag.
Við hjartabilun: Upphafsskammturer2,5-5 mg, en venjulegur viöhaldsskammtur er 10-20
mg á dag, gefinn I einum eða tveimur skömmtum. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið
er ekki ætlað börnum.
Pakkningar: Töflur 5 mg: 30 stk., 100 stk. Töflur 20 mg: 30 stk., 100 stk.