Læknablaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 20
Bricanyl®
PULMICORT®
Turbuhaler®
Pulmicort Turbuhalcr
Innúðaduft: Hver úðastaukur inniheldur 200 úðaskammta. Hver
úðaskammtur inniheldur: Budesonidum INN 200 mikróg eða 400
míkróg. Eiginleikar: Lyfið er afbrigði af prednisólóni (sykursteri).
Það brotnar hratt niður í óvirt umbrotsefni og hefur því litlar al-
mennar steraverkanir. Ábendingar: Asthma bronchiale. Frábend-
ingar: Lungnaberklar án meðferðar. Lyfið hefur í dýratilraunum á
meðgöngutíma valdið klofnum góm og beinbreytingum hjá fóstr-
um, en óvíst er hvort þetta á við um menn. Aukaverkanir: Þrusku-
sýkingar í munni og koki. Til að draga úr þeim er ráðlagt að skola
lyfið vel með vatni úr munni og koki strax eftir notkun. Hæsi getur
komið fyrir. Skammtar stærri en 1.600 míkróg á dag geta valdið al-
mennum steraverkunum. Varúð: Gæta þarf varúðar, þegar lyfið er
notað til að venja sjúkling, sem er orðinn háður barksterum til inn-
töku, af slíkum lyfjum. Þá hafa nýrnahettur rýrnað og tekur langan
tíma fyrir þær að ná upp fyrri starfsemi. Þessir sjúklingar þurfa að
vera í tiltölulega góðu ástandi og óráðlegt er að byrja að minnka
steraskammta til inntöku fyrr en lyfið hefur verið gefið að minnsta
kosti í 10 daga. Venjulega tekur nokkra mánuði að losa sjúklinginn
við stera, sem teknir eru inn og við skyndilega
versnun er nauðsynlegt að gefa stutta stera-
kúra. Algengt er að þessir sjúklingar kvarti
um þreytu, höfuðverk, vöðva- og liðverki í
nokkrar vikur eftir að gjöf til inntöku hefur
verið hætt. Skammtastærðir handa fullorðn-
um: í byrjun meðferðar á astma eða þegar
verið er að reyna að ná astmasjúklingi af
barksterum gefnum til inntöku, er dag-
skammtur 400-1600 míkróg á sólarhring.
Skipt í 2-4 skammta. Viðhaldsskammtur er
einstaklingsbundinn og reynt að finna þann
skammt sem heldur einkennum alveg niðri.
Oftast er þó nóg að gefa lyfið kvölds og
morgna. Fullverkun fæst oftast ekki fyrr en
eftir 10 daga. Sé mikil slímsöfnun í berkjum
kann að vera, að lyfið nái ekki til berkjuslím-
húðar og er þá ráðlagt að gefa sterakúr til inn-
töku í stuttan tíma (ca. 2 vikur) samhliða
notkun lyfsins. Skammtastærðir handa börn-
um: Börn 6-12 ára: Sömu skammtar og handa
fullorðnum sbr. hér að framan. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri
en 6 ára. Sólarhringsskammtur skal ekki vera hærri en 400-800
míkróg. Pakkningar: Innúðaduft 200 míkróg/úðaskammt: 200
skammta úðastaukur. Innúðaduft 400 míkróg/úðaskammt: 200
skammta úðastaukur.
Bricanyl Turbuhaler
Innúðaduft: Hver úðastaukur inniheldur 200 úðaskammta. Hver
úðaskammtur inniheldur: Terbutalinum INN, súlfat, 0.5 mg. Eigin-
leikar: Lyfið örvar beta2-viðtæki sérhæft og veldur þannig berkju-
víkkun. Verkun lyfsins hefst npkkrum mínútum eftir innúðun og
getur staðið í allt að 6 klst. Ábendingar: Berkjuþrenging vegna
asthma bronchiale, bronchitis chronica, emphysema og annarra
lungnasjúkdóma. Frábendingar: Ofstarfsemi skjaldkirtils. Þungun.
Hjartasjúkdómar. Varúð skal gæta við háþrýsting og hjá sjúkling-
um með sykursýki. Aukaverkanir: Skjálfti. Óþægilegur hjartslátt-
ur. Eftir háa skammta hefur komið fram höfuðverkur, æðaútvíkk-
un og aukinn hjartsláttarhraði. Milliverkanir: Ósérhæfð beta-blokk-
andi lyf draga úr áhrifum lyfsins. Eiturverk-
anir: Ekki þekktar. Skammtastærðir handa
fullorðnum: Venjulegur skammtur er 1 úða-
skammtur á 4 klst. fresti. í erfiðum tilvikum
getur þurft að nota allt að 3 úðaskammta í
senn. Hámarksskammturer 12 úðaskammtar
á sólarhring. Skammtastærðir handa börn-
um: Börn eldri en 12 ára: Sömu skammtar og
handa fullorðnum sbr. hér að framan. Börn
5-12 ára: 1 úðaskammtur á4 klst. fresti. íerf-
iðum tilvikum getur þurft að nota 2 úða-
skammta. Hámarksskammtur er 8 úða-
skammtar á sólarhring. Lyfið er ekki ætlað
börnum yngri en 5 ára. Pakkningar: 200 úða-
skammtar í Turbuhaler úðatæki. Framleið-
andi: Draco. Einkaumboð: Pharmaco hf.
DRRCO
Pharmaco
200dOMT/aMM>
Bricanyf
Turbuhafer'
0,5mgÆí»
roodoM
Pulmicort*
Turtxihalef
400 mikrog/dos
BudMonid