Fréttatíminn - 01.10.2010, Síða 1

Fréttatíminn - 01.10.2010, Síða 1
Eltur af níu aðilum Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson þarf að verjast níu aðilum sem vilja ýmist rukka hann, rannsaka eða sækja til saka. Leggur töffarastílinn til hliðar Fanney Ingvarsdóttir fegurðar- drottning heldur til Kína til að taka þátt í keppninni Ungfrú Heimur. Síðkjólar taka við af gallabuxum í mánuð. Allt eru þetta stór og mikilvæg skref þó víða sé pottur enn brotinn. D ómsmál sem slitastjórnir Glitnis og Landsbankans standa í þessa dagana gætu haft mikla þýðingu fyrir íslensku þjóðina. Um er að ræða túlkun á því hvort svokölluð heildsölulán og peningamarkaðs- lán séu forgangskröfur í þrotabú bankanna. Verði áðurnefnd lán dæmd sem almennar kröfur minnka forgangskröfur í bú bankanna, sem gerir það til að mynda að verkum að Lands- bankinn ætti auðveldlega að geta staðið undir skuldbindingum sínum vegna Icesave miðað við núverandi áætlanir um endur- heimt eigna bankans. Það myndi þýða að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gæti hætt að reyna að semja um Icesave og íslenska ríkið slyppi við hundraða milljarða vaxtagreiðslur. Slitastjórn Glitnis telur lánin ekki falla undir skilgreiningu um innistæður og séu því ekki forgangskröfur en Landsbankinn túlkar þau sem forgangskröfur. Slitastjórn Glitnis hefur vísað ágreiningi við nokkra kröfuhafa til dómstóla til að fá úr því skorið hvort túlkun slitastjórnarinnar sé rétt, en í tilfelli bús Landsbankans hafa eigendur almennra krafna vísað ágreiningi sínum við slita- stjórnina til dómstóla. Kristinn Bjarnason hjá slit- astjórn Landsbanka Íslands segir í samtali við Fréttatímann að afleiðingin af því að þessar kröfur yrðu metnar almennar væri að forgangskröfur lækkuðu sem því næmi, um u.þ.b. 200 milljarða. „Þá verður meira til upp í forgangskröfur, sem flestir vita hverjar eru, og líkur aukast á því að til greiðslu komi fyrir almennar kröfur.“ Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra. oskar@frettatiminn.is Ég hef aldrei skilgreint mig út frá því að vera maki einhvers hvorki nú né áður . Ljósmynd/hari 68 44 hallgrímur helgason rithöfundur Þjóð í nammiskál Að meðaltali borðar hver Íslendingur 671 gramm af fersku grænmeti í viku hverri. Á sama tíma borðar meðal- maðurinn 364 grömm af sælgæti. Vikuskammtur sama manns er tæpir þrír lítrar af gosi. Það þarf því engan að undra að Íslendingar eru orðnir akfeitir. Þeir hafa skipað sér í flokk með enskumælandi þjóðum þegar kemur að offitu. Góð leið til að meta neyslubrag Íslendinga er að stika hillumetra í stórmörkuðum. Gunnar Smári Egilsson og Þór Bergsson stikuðu hillurnar í Hagkaupum á Eiðistorgi í vikunni. Þeir komust að því að sú verslun er ekki frábrugðin öðrum matvöruverslunum landsins, tæp- lega 40% hillumetranna eru lögð undir sætindaflokkinn. Sætindi, fita, kaffi og te eru með öðrum orðum grunnurinn í mataræði við- skiptavina – og vega þar sætindin langþyngst. Ofan á þennan grunn kemur kornið þar sem sykrað morkunkorn og kex eru veigamest. Matur 60 jónína Leósdóttir nýtt líf sem forsætisráðherrafrú síða 32 Akfeit sælgætisþjóð á eftir að fitna enn meira 5 dress – 5 dagar Fegrunarráð og fatatíska götunnar 64 22 Dómsmál gæti þurrkað út Icesave-skuld þjóðarinnar Horfst í augu við dauðann Þórunn Helga Kristjánsdóttir spurði lækninn hvort hún væri að deyja þegar henni var tilkynnt að hún væri með illkynja æxli. 25 18 H E LGA R BL A Ð HELGARBLAÐ 1.- 3. október 2010 1. tölublað 1. árgangur E LGA R BL A Ð Jón Gnarr borgarstjóri hugsaði oft um að hætta fyrstu dagana sem borgarstjóri Lokaði sig inn á klósetti

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.