Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 10
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Ú tibú íslensku bankanna í Lúxem-borg gegndu lykilhlutverki í því að flytja peninga úr félögum íslenskra
athafnamanna í þekktum skattaskjólum til
Íslands. Eftir því sem Fréttatíminn kemst
næst fluttu menn peningana í formi lána
frá bönkunum í Lúxemborg sem á móti
tóku veð í bankareikningum félaganna.
Með þessu móti var hægt að hylja erlenda
peningaeign en samt koma peningum í
umferð. Misjafnt var hvort peningarnir
voru lánaðir beint til eigenda eða
til eignarhaldsfélaga í þeirra
eigu.
Indriði H. Þorláksson,
fyrrverandi ríkisskatt-
stjóri , segir í samtali
við Fréttatímann
að helstu spurn-
ingarmerkin við
þessa gjörninga séu
hvernig peningarnir
í skattaskjólsfélög-
unum séu tilkomnir.
“Í einhverjum
tilfellum eru þetta
peningar sem hafa
orðið til erlendis
og þá er ekkert
ólöglegt við þetta.
Hins vegar höfum
við séð dæmi um
að íslenskir athafna-
menn, sem fengu
söluhagnað, frestuðu
skattgreiðslu með því
að fjárfesta í erlendu
skattaskjólsfélagi. Ef þeir
peningar hafa komið inn
til Íslands sem lán eru menn
auðvitað að koma sér undan
því að greiða skatt. Það er
augljóst,” segir Indriði.
Ómögulegt er að reyna
að gera sér í hugarlund
hversu mikið af peningum
hefur komið inn í landið frá
erlendum skattaskjólum, að
Fluttu skattaskjólspeninga
til Íslands í formi bankalána
Íslenskir athafnamenn fluttu milljarða til landsins með hjálp íslensku bankanna skattfrjálst.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
LandLæknir ofneysla rítalíns
sögn Indriða.
“Eftirlitið hefur auðvitað verið erfitt undan-
farin ár en með breytingum á skattalögum
í fyrra er búið að auðvelda skattayfir-
völdum að fylgjast með. Það er búið að
koma því í lög að það er ólöglegt að hylja
eign í félögum erlendis og jafnframt eru
bankastofnanir skyldaðar til að láta upp-
lýsingar um þessi félög af hendi. Þetta gerir
allt eftirlit skilvirkara,” segir Indriði.
Nýbýlavegi 2 | sími 570 5400 | www.lexus.is
Afgreiðslutími: mán. - föst. kl. 9 - 18. Lau. kl. 12-16.
lexus@lexus.is
Geir Gunnlaugsson landlæknir hefur
krafið ríflega eitt hundrað lækna skýringa
á því að nærri tvö hundruð fullorðnir ein-
staklingar fá þrefaldan skammt rítalín-lyfja
á dag. Sumir fá margfalt það magn og eru
dæmi um að margir læknar ávísi lyfjunum
til hluta þessara einstaklinga.
„Það er ljóst að fimmtán hundruð full-
orðnir einstaklingar taka methylfenidat
[sem er virka efnið í rítalíni og skyldum
lyfjum] og við óskuðum eftir upplýsingum
um þessa 187,“ segir Geir Gunnlaugsson
landlæknir. „Þetta er flókið mál og mjög
alvarlegt. Lyfið hefur verið misnotað í
einhverjum tilvikum sem fíkniefni og selt
sem slíkt og við viljum koma í veg fyrir
það.“
Landlæknir sendi læknunum 112
bréf í ábyrgðarpósti í byrjun september
og óskaði eftir skýringum á því að þeir
hefðu ávísað svo stórum skömmtum til
sjúklinganna. Einnig lét hann þá vita að
sjúklingar þeirra hefðu leitað til annarra
lækna eftir lyfjunum, en það sjá læknarnir
ekki. Hann óskaði eftir upplýsingum fyrir
17. september. Aðeins ríflega helmingur
varð við beiðninni og hefur hann ákveðið
að veita hinum frest.
Geir segir ekki gengið út frá því að
fólkið misnoti lyfin. Eðlilegar skýringar
geti fullvel reynst fyrir því að fólk þurfi að
taka svo mikið magn lyfjanna en ástæða
bréfsins er átak embættisins, Lyfjastofn-
unar og Sjúkratrygginga Íslands til að
sporna við mikilli notkun lyfja við ofvirkni
og athyglisbresti.
Kostnaður Sjúkratrygginga á þessu
ári stefnir í að þrefaldast frá árinu 2006
og setja Íslendingar heimsmet í notkun
þeirra miðað við hina margfrægu höfða-
tölu. „Já, mér er sagt það,“ segir Geir.
„Þess vegna grípum við nú til aðgerða.
Samtímis því að við viljum standa vörð um
þá sem þurfa að nota lyfið.“
Með margfalda rítalíndagskammta í vasanum
málaferli
Förum í mál ef við fáum
ekki upplýsingar
Aðalsteinn Hákonar-
son, forstöðumaður
eftirlitssviðs Ríkisskatt-
stjóra, segir í samtali
við Fréttatímann að
embættið skoði nú eitt
hundrað aflandsfélög
í eigu íslenskra aðila.
“Við höfum óskað eftir
gögnum frá þessum að-
ilum og erum að skoða
ársreikninga þessara
félaga í Lúxemborg. Ef
við fáum ekki þær upp-
lýsingar sem við teljum
okkur þurfa þá munum
við höfða mál gegn eig-
endum þessara félaga til
að fá upplýsingarnar,”
segir Aðalsteinn.
EHF
LánLibor + 5% Lán
Holding félag
svokallað BvI-félag
Kaupþing Lux
Landsbanki Lux
BankareIknIngur vextIr lIBor + 4%
Hvernig náðu atHafnamennirnir peningum fram Hjá skattayfirvöldum til íslands
Íslenskir athafnamenn
áttu félög í skatta-
skjólum (svokölluð
BVI-félög). Þessi félög
áttu bankareikninga í
íslensku bönkunum í
Lúxemborg. Bankarnir
í Lúxemborg lánuðu
athafnamönnum
eða félögum í þeirra
eigu peninga heim
til Íslands með veði í
bankareikningi BVI-
félagsins. Munurinn
á vöxtum lánsins og
vöxtum bankareikn-
ingsins var yfirleitt
1% bankanum í hag.
gunnhildur
arna
gunnarsdóttir
gag
@frettatiminn.is
10 fréttir Helgin 1.-3. október 2010
Sækja í sömu læknana
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir kannanir meðferðar-
stofnunarinnar sýna að sprautu-
fíklar sæki í rítalín. Hann segir
fíkla sækja í ákveðna lækna.
„Kannski er það vegna þess að
þeir eru þeir einu sem vilja sinna
fíklum,“ segir hann, en einnig sé
þekkt innan stéttarinnar að full-
orðnir læknar finni til með ungu
fólki sem sæki til þeirra.
„Fólk innan hóps sem mis-
notar svona lyf veitir hvað öðru
leiðbeiningar og ráð um hvernig
það eigi að koma fram gagnvart
læknum. Innan hópsins myndast
því þekking á því hvaða læknar
séu líklegir til að ávísa lyfjunum.“