Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 26
útskýrir hún. „En þessi litlu kríli
eru svo næm. Litla stelpan mín
hljóp alltaf að mér vinstra megin,
því meinið var hægra megin.
Drengurinn var líka farinn að
passa að kjá ekkert í mér.“
Með þykkildi á maganum
„Þetta byrjaði með því að ég fann
þykkildi á stærð við vínber þegar
ég strauk niður með kviðnum.
Það var hart, ég gat tekið um það
og kreist. Ég leitaði fyrst til lækn
is í maí í fyrra. Mér var sagt að ég
þyrfti ekki að hafa áhyggjur, þetta
væri að öllum líkindum stíflaður
fitukirtill. Ég trúði því og treysti í
fyrstu,“ segir Þórunn en eitthvað
togaði í hana og hún fór aftur til
læknis.
„Ég fékk sömu greiningu og
fann að þetta sat í mér. Ég ræddi
þetta við mömmu því ég var farin
að finna seyðing niður í fætur,
svona eins og náladofa. Hún
hvatti mig áfram og sagði mér
að panta tíma hjá heimilislækni.
Hann myndi vísa mér á réttan
stað.“ Það gerði hann þrátt fyrir
að vera á sömu skoðun og lækn
arnir tveir á undan.
„Ég var heilsuhraust; var að
æfa og með fulla starfsorku en þó
með þennan hnúð og seyðing.“
Þórunn fór í kjölfarið til lýtalækn
is og sagði honum sögu sína, en
hún greindist með sortuæxli fyrir
níu árum og þá þurfti að skera úr
kálfanum á henni inn að beini.
Einnig hefur hún látið fjarlægja
yfir eitt hundrað fæðingarbletti
og greindust frumubreytingar í
nokkrum þeirra. Hún vissi því
að hún gæti ekki setið kyrr fyrr
en þetta væri rannsakað. „Hann
skildi því áhyggjur mínar og
hræðslu,“ segir Þórunn sem
fékk tíma í aðgerð 14. desember,
sjö mánuðum eftir að hún leitaði
fyrst til læknis.
Pússluðu saman fréttunum
„Aumingja læknirinn var miður
sín yfir því að hringja í mig á Þor
láksmessu. Þegar ég hitti hann
síðar um daginn með mömmu
og systur minni útskýrði hann
að æxlið væri illkynja.“ Þær þrjár
pússluðu síðan saman því sem
sagt var á fundinum. Áfallið hafði
verið það mikið að ítarlegar upp
lýsingar læknisins síuðust ekki
allar inn. „Þarna sagði hann mér
að ég væri tifandi tímasprengja.“
Jólin liðu í óvissu um framhaldið
en Þórunn var innrituð á Land
spítalann 5. janúar og skorin upp
daginn eftir. Fjölskyldan stóð
við bakið á henni og var til taks
þegar stöðugt nýjar upplýsingar
bárust frá læknum.
Erfitt er að lýsa áverkunum á
Þórunni eftir aðgerðina. Helst
mætti ímynda sér að stólpi hafi
verið keyrður í magann á henni
og skilið eftir sig holu. Um
þriggja til fimm sentimetra djúp
ur hringur, tíu sentimetrar í þver
mál, blasir við. Ekki er hægt að
laga útlit hans endanlega fyrr en
eftir þrjú til fimm ár. En verði það
gert tekur Þórunn áhættu því þá
er ekki hægt að sjá hvort meinið
myndast að nýju.
„Maður gerir sér enga grein
fyrir stærðum. Ég hikaði ekki
einu sinni þegar mér var sagt að
sárið yrði tíu sentimetrar í þver
mál. Ég fékk því rosalegt sjokk
þegar umbúðirnar voru teknar
af sárinu.“ Hún lýsir því hvernig
húðin af lærinu á henni hafi verið
skorin af, rétt eins og með osta
skera.
„Ég gat ekki ímyndað mér
hvað biði mín þegar læknirinn
lýsti aðgerðinni. Í huga mínum
var ekkert alvarlegt að mér. Ég
fann jú fyrir slappleika en ekki
gat ég merkt að ég væri með
krabbamein.“ Eftir mesta sjokkið
hugsaði hún að þar sem sárið
væri á maganum ætti hún auðvelt
með að fela það. „Fólk hefur
greinst með svona æxli í andliti
og þá þarf að skera stykki þar úr.“
Var varnarlaus og lífhrædd
Eftir að æxlið var skorið burt
tók við erfiður tími á meðan hún
beið eftir niðurstöðunum um það
hvort krabbameinið hefði borist
í eitla og aðra líkamsparta. „Ég
var og er lífhrædd og biðin var
það erfiðasta í öllu ferlinu. Ég
var varnarlaus. Fannst ég ekkert
geta gert.“ Æxlið var sent til Bos
ton í Bandaríkjunum í rannsókn.
Skoðað var hvort brúnirnar sem
skornar voru burt væru hreinar.
Ljóst var að komist hafði verið
fyrir meinið.
„Ég get ekki lýst tilfinning
unum öðruvísi en að ég grét af
létti. Ég hafði verið svo sjúklega
hrædd.“
Þórunn segir algengt að fólk
leiti til læknis með stíflaða fituk
irtla. Hún hafi því fengið að heyra
að hún væri góð áminning fyrir
læknana; að þeir slái engu föstu
án þess að rýna í málið. Hún
ákvað því að panta sér tíma hjá
læknunum tveimur sem sendu
hana heim með krabbameinið
sem stíflaðan fitukirtil og sýna
þeim sárið.
„Þeir tóku mér vel. Ég ber ekki
kala til þeirra og ég treysti heil
brigðiskerfinu. Maður verður að
gera það. Enda upplifði ég það
þegar ég lá inni á spítalanum að
þar vinna englar í mannsmynd.“
Þakkar fyrir lífið og heldur
áfram
Skinnið yfir sárinu hefur tekið
sama lit og húðin í kring. Þórunn
er komin á fullt í vinnu og rækt
inni. „Það er ekki langt síðan ég
fór að geta komið við þetta svæði.
Tilfinningin er öðruvísi og ég get
ekki sagt að mér finnist hún þægi
leg. Ég verð nú að viðurkenna að
ég er hrædd við þetta þunna húð
lag sem liggur yfir vöðvanum og
hlífi mér,“ segir hún.
„Núna þykir mér orðið vænt um
þetta gat. Ef það væri ekki þarna
væri ég hugsanlega ekki hér. Ég
finn fyrir svo miklu þakklæti og
tek það að vera á lífi, geta sinnt
börnunum mínum og verið heil
brigð fram yfir útlitið. En hefði ég
beðið lengur, mánuði, jafnvel ár,
hefði hugsanlega ekki verið hægt
að bjarga mér. Í óheppninni er ég
heppin.“
E
ftir sjö mánaða
þrautagöngu milli
lækna með hnúð á
kviðnum fékk hún
hugboð sitt staðfest.
Í byrjun árs lá Þórunn á spítala
með tíu sentimetra gat á mag
anum. Allt daglegt amstur var
henni um megn og hún gat ekki
sinnt grunnþörfum sínum eða
barna sinna, eins og að baða sig
og borða. Hún þurfti hjálp og
gekk við göngugrind. Börnin
hennar tvö áttuðu sig ekki á
alvarleika sjúkdómsins, enda
sonurinn aðeins eins árs og dótt
irin fjögurra ára.
„Þarna sá ég hversu mikill for
réttindapúki ég hafði verið. Ég
var komin í aðstæður sem ég
hafði aldrei hugsað út í og átt
aði mig á því að ég gerði ekkert
heilsulaus,“ segir hún en þegar
hún greindist var hún í topp
formi. „Ég er langt komin með
að koma skrokknum í samt lag
en andlega hliðin er rifin og tætt
eftir þessa reynslu. Ég finn að
ég hugsa um það hvað verður
um börnin mín, verði ég ekki
til staðar þegar þau stækka. Ég
hef fundið til mikillar vanlíðanar
en svo ríf ég mig upp. Maður
kemst alltaf á lappirnar aftur.
Það hefur komið mér á óvart hve
mikið andlega álagið er og stutt í
grátinn. Ég er meyr og má ekki
við neinu – og það breytist ekki
nema ég vinni í því. Það ætla ég
að gera enda óttast ég að takist
ég ekki á við þetta fái ég það ein
hvern veginn í hausinn,“ segir
hún og viðurkennir að reynslan
hafi breytt henni.
„Ég er meðvituð um hversu
stutt er á milli þess að allt gangi í
haginn og svo að berjast fyrir lífi
sínu – eða upplifa sorg. Það er
ekki hægt að útskýra þakklætið
sem ég upplifi fyrir að fá að sofna
á kvöldin og vakna á morgnana
og þækklætið fyrir að fá að fylgja
börnunum mínum í leik.“
Úr leik í upphafi árs
Þórunn er 33 ára, dóttir Sigríðar
Báru Hermannsdóttur og Krist
jáns Einarssonar. Hún ólst upp í
Breiðholti ásamt þremur systk
inum og vinnur í Rekstrarvörum,
sem er í eigu foreldra hennar.
„Ég fanga því að hafa haft skiln
ingsríka vinnuveitendur,“ segir
hún hressilega. Hún er full orku
og erfitt að sjá að hún hafi verið
dæmd úr leik í upphafi árs. Eftir
hálfsmánaðardvöl á spítala gekk
hún með magabelti sem hún
reyrði að sér og var á verkjalyfj
um á meðan sárið greri. Það tók
sinn tíma því skinnið sem skorið
var af lærinu á henni og sett í sár
ið greri ekki vel á nýja staðnum.
„Ég gat ekki haldið á syni
mínum í nokkra mánuði á eftir.
Hann var ekki sáttur við mig,“
„Ég var tifandi tímasprengja“
Þórunn Helga
Kristjánsdóttir
Þórunn er komin
á fullt í vinnu og
ræktina eftir að
hafa greinst með
illkynja krabbamein
seint á síðasta ári.
Hún verður nú í
reglulegu eftirliti
næstu tíu árin; er
í gjörgæsluhópi.
Ljósmynd/TeiTur
jónasson
Er ég að deyja?“ spurði
Þórunn Helga Kristjáns-
dóttir lækninn þegar hann
hringdi í hana á Þorláks-
messu fyrir tæpu ári og
sagði henni að hún væri
með illkynja æxli í húð á
maga. Hún stóð þá inni í
verslun og var að kaupa síð-
ustu merkimiðana og kortin
fyrir jólin. „Það komst ekk-
ert annað að; krabbamein
samasem dauði.“
Hér má sjá kviðinn á Þórunni fyrir aðgerð
og eftir. myndirnar hér fyrir neðan tók hún
á símann sinn. Búið er að loka sárinu með
skinni af lærinu. efst má sjá hvernig sárið
greri og hvernig það verður til næstu ára.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Aumingja læknirinn var miður sín yfir því að hringja í mig á Þorláksmessu.
Þegar ég hitti hann síðar um daginn með mömmu og systur minni útskýrði
hann að æxlið væri illkynja.
26 viðtal Helgin 1.-3. október 2010