Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 30
Ráðamenn eru í sviðs-ljósi þjóðar sinnar hverju sinni. Það er því ávísun á það ljós að setjast á þing
eða í borgarstjórn Reykjavíkur, svo
nefndar séu kunnar valdastofnanir.
Menn berjast hart fyrir að ná kjöri,
vinna í flokkum sínum og ganga
gegnum prófkjör eða forval með
allri þeirri kynningu sem slíku fylgir.
Náist markmiðið, þ.e. að komast á
þing eða í borgarstjórn, ættu þeir
sem hnossið hljóta því að komast á
hvers manns varir, ekki síst í litlu
samfélagi.
En er víst að svo sé? Að sönnu
geta flestir tilgreint þá sem sitja í rík-
isstjórn eða hver skipar sæti borgar-
stjóra, að minnsta kosti ef kunnasti
grínari landsins sest í þann stól.
Formenn flokka, hvort heldur er
innan eða utan stjórnar, njóta stöðu
sinnar og sama gildir um formenn
þingflokkanna. Jóhanna Sigurðar-
dóttir og Steingrímur J. Sigfússon
þurfa því ekki að kynna sig á manna-
mótum. Sama gildir um Sigmund
Davíð Gunnlaugsson og Bjarna
Benediktsson. Aðrir þurfa hvorki
ráðherra- né formannstitla til þess
að ná athygli. Það á t.d. við um þing-
menn eins og Pétur Blöndal, Mörð
Árnason, Árna Johnsen, Þór Saari
og Lilju Mósesdóttur, svo fáeinir
séu taldir.
Aðrir þingmenn eru fremur lands-
kunnir af fyrri störfum sínum en
þingmennskunni, t.d. Sigmundur
Ernir Rúnarsson og Þráinn Bertels-
son, og hið sama á við um borgar-
fulltrúana Einar Örn Benediktsson
og Óttarr Ólaf Proppé, að ógleymd-
um sjálfum Jóni Gnarr.
Á hverjum tíma eru samt nokkrir
sem tæpast ná landsfrægð, þrátt fyr-
ir setu á Alþingi eða í borgarstjórn
Reykjavíkur. Þar með er ekki sagt
að viðkomandi sinni starfi sínu illa,
fjarri því. Umræður í þingsal eða sal
borgarstjórnar segja ekki alla sögu.
Vinna alþingismanna og borgarfull-
trúa fer ekki síst fram í nefndum.
Lítt þekkt ráðherraefni
Hver er þessi Oddný? Svo var spurt
þegar hrókeringar í ríkisstjórn stóðu
fyrir dyrum fyrir skemmstu. Þá var
nafn Oddnýjar G. Harðardóttur, 5.
þingmanns Suðurkjördæmis, nefnt
sem hugsanlegs ráðherraefnis. Af
spurningunni mátti merkja að Oddný
væri ekki landskunn þrátt fyrir þing-
setuna. Það, að Oddný kom sterk-
lega til greina sem ráðherra, sýndi
hins vegar styrk hennar sem þing-
manns. Þótt hún fengi ekki sæti við
ríkisstjórnarborðið, þegar til kom,
var vinna hennar á þinginu talin vega
þungt. Halda má því fram að Oddný
hafi ekki verið landskunn áður en til
ráðherraumræðunnar kom.
Oddný er fráleitt ein í þessari stöðu
og til eru þeir þingmenn sem halda
má fram með nokkurri vissu að séu
ekki landskunnir. Með sama hætti
og í tilviki Oddnýjar má spyrja: Hver
er þessi Jónína Rós? Það er ekki víst
að meirihluti þjóðarinnar geti svarað
því. Jónína Rós Guðmundsdóttir
er engu að síður 10. þingmaður
Norðausturkjördæmis fyrir hönd
Samfylkingarinnar. Lilja Rafney
Magnúsdóttir er 6. þingmaður
Norðvesturkjördæmis, fyrir hönd
Vinstri grænna. Hún hefur ekki
verið áberandi þótt það segi ekkert
um vinnusemi hennar. Sama gildir
um Sigurð Inga Jóhannsson, 3. þing-
mann Suðurkjördæmis, sem situr
fyrir hönd Framsóknarflokksins og
6. þingmann sama kjördæmis, Unni
Brá Konráðsdóttur, fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins.
Anna Margrét Guðjónsdóttir
kom inn sem 1. þingmaður Suður-
kjördæmis fyrir hönd Samfylk-
ingarinnar, í fjarveru Björgvins G.
Sigurðssonar sem sest nú á þing að
nýju. Hún var trauðla áberandi þann
tíma sem hún vermdi þingsætið.
Sama gildir um þá þingmenn sem að
undanförnu hafa setið á þingi fyrir
Vinstri græn, í orlofi Guðfríðar Lilju
Grétarsdóttur, þriðja þingmanns
Suðvesturkjördæmis, þau Ólaf Þór
Gunnarsson og Margréti Péturs-
dóttur.
Ofangreindir þingmenn eru flestir
á svipuðum aldri, sitt hvorum megin
við fimmtugt. Jónína Rós er fædd
árið 1958, kennari. Hún kenndi við
Menntaskólann á Egilsstöðum áður
en hún settist á þing og þar áður við
Hallormsstaðarskóla. Lilja Rafney
er fædd 1957, verkalýðsfrömuður
að vestan. Sigurður Ingi er fæddur
1962, dýralæknir á Suðurlandi, Anna
Margrét er fædd 1961, forstöðumað-
ur skrifstofu Sambands íslenskra
sveitarfélaga í Brussel. Unnur Brá
er yngri, fædd 1974, lögfræðingur að
mennt og var sveitarstjóri Rangár-
þings áður en hún var kjörin á þing.
Þingmaður í kyrrþey
Hið gríðarlega fylgi Besta flokksins í
borgarstjórnarkosningunum síðast-
liðið vor skilaði sex borgarfulltrú-
um. Leiðtoginn er að sönnu meðal
frægustu Íslendinga og í hópi borg-
arfulltrúa flokksins eru fyrrgreindir
Einar Örn og Óttarr, sem kunnir
voru áður en til stjórnmálaþátttöku
kom. Minna hefur borið á Elsu
Hrafnhildi Yeoman og Evu Einars-
dóttur en Karl Sigurðsson verður að
teljast þekktari en þau. Ósanngjarnt
er kannski að draga þá í þennan dilk
enda hafa þeir aðeins setið í borgar-
stjórninni frá liðnu vori, þar sem
sumarfrí borgarstjórnarinnar fylgdi
í kjölfar valdaskiptanna.
Þótt ekki sé kallað eftir gaspri,
þrasi eða orðagjálfri vita ráðamenn,
hvort heldur er á þingi eða í borgar-
stjórn, að þeir þurfa að láta bera
á sér. Dæmi eru samt um þunga-
vigtarmenn meðal þingmanna fyrr
á tíð sem sjaldan töluðu, vildu ekki
ráðherradóm en sátu engu að síður
lengi og nutu virðingar. Dæmi um
slíkt er Geir Gunnarsson sem lengi
var þingmaður Alþýðubandalagsins,
faðir Lúðvíks Geirssonar, fyrrum
bæjarstjóra í Hafnarfirði, og síðar
varasáttasemjari ríkisins.
Þá hefur því verið haldið fram,
þótt ekkert sé fullyrt um sannleiks-
gildi þess, að Þórarinn Sigurjónsson
hafi aðeins einu sinni tjáð sig í þing-
sal, stuttlega þó, þegar hann bað
kollega að loka glugga í salnum.
Hann sat engu að síður lengi á þingi
fyrir Framsóknarflokkinn á síðari
hluta liðinnar aldar, en sinnti störf-
um sínum í kyrrþey.
Á slóð óþekkta stjórnmálamannsins
Treystir þú þér til að þekkja alla þingmenn þjóðarinnar með nafni? Örlög sumra eru að ná lítt eða ekki í sviðsljósið
Hver er þessi
Oddný? Svo
var spurt um
hugsanlegt
ráðherra-
efni fyrir
skemmstu.
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
Þekktir og minna þekktir
þingmenn. Guðlaugur
Þór Þórðarson stendur en
fyrir framan hann er Jónína
Rós Guðmundsdóttir. Við
hlið Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur situr yngsti
þingmaður Alþingis, Víðir
Smári Petersen.
Ljósmynd/Hari
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Oddný G.
Harðardóttir
Jónína Rós Guð-
mundsdóttir
Anna Margrét
Guðjónsdóttir
Þjóðkunnur þingmaður eður ei – það
er mat blaðamanns. Það mat þarfnast
staðfestingar fleiri. Því var ekki um
annað að ræða en að spyrja háttvirta
kjósendur, sýna þeim myndir af þeim
þingmönnum sem síst voru taldir
þekktir meðal þjóðar sinnar í framhaldi
spurningarinnar: Hver er þessi Oddný?
Oddný G. Harðardóttir, sem nefnd var
sem ráðherraefni, var því einn þeirra
þingmanna. Hinir voru Jónína Rós
Guðmundsdóttir, Anna
Margrét Guðjóns-
dóttir, Lilja Rafney
Magnúsdóttir,
Sigurður Ingi
Jóhannsson
og Unnur Brá
Konráðsdóttir.
Tíu einstaklingar
á förnum vegi
fengu að spreyta
sig á myndunum,
fimm konur
og fimm
karlar,
allir fullorðnir, þ.e. með kosningarétt.
Myndirnar eru hin opinbera ásjóna,
eins og þær eru sýndar á vef Alþingis.
Athugunin er að sönnu ekki vísindaleg
en gefur væntanlega nokkra mynd.
Skemmst er frá því að segja að
þessir þingmenn voru fyrrgreindum
kjósendum gersamlega ókunnir. Fólkið
hafði ekki hugmynd um hverjir þetta
voru utan hvað ein kona þekkti Unni
Brá. „Ég hef aldrei séð þetta fólk,“
sagði kona á miðjum aldri. „Þekki
engan,“ sagði önnur heldur yngri. Karl
Berndsen, tísku- og útlitsfrömuður, var
meðal aðspurðra í Kringlunni. Hann er
vanur andlitum fólks en þekkti þessa
kjörnu fulltrúa ekki fremur en aðrir.
Raunar taldi hann að andlit Sigurðar
Inga gæti verið samsett úr andlitum
tveggja manna.
Karl gæti hugsanlega skerpt ímynd
þessara þingmanna ef hann „tæki þá í
gegn“, eins og hann er kunnur fyrir úr
sjónvarpi. Óhætt er að minnsta kosti að
halda því fram að Karl sé þekktari en
ofangreindir ráðamenn þjóðarinnar.
Ég hef aldrei séð þetta fólk
Jónas
Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
30 alþingi Helgin 1.-3. október 2010