Fréttatíminn - 01.10.2010, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 01.10.2010, Qupperneq 34
En lánið lék við Jónínu. Hún var at- vinnulaus í örfáar klukkustundir. „Það kom frétt um uppsagnirnar í kvöld- fréttum Sjónvarpsins og strax eftir fréttatímann fékk ég upphringingu frá Gullveigu Sæmundsdóttur, ritstjóra Nýs lífs. Hún bauð mér að leysa sig af í nokkra mánuði. Ég var því vægast sagt heppin.“ Ertu bitur út í einhverja sem þarna komu að máli? „Auðvitað varð ég öskureið þegar okkur var sagt upp. En það væri nú meiri langræknin að vera bitur í tutt- ugu ár. Maður breytir ekki því sem orðið er og biturleiki tærir fólk bara upp. Þar að auki sá ég fljótlega að upp- sögnin reyndist mikil gæfa fyrir mig. Það átti margfalt betur við mig að vinna á Nýju lífi en á fréttablaði. Ég hefði ekki viljað missa af þeim fimm- tán árum sem ég var á Nýju lífi. Og líklega hefði Gullveig hringt í ein- hverja allt aðra konu ef ég hefði ekki verið rekin með svo miklum látum að það kom í sjónvarpsfréttunum.“ Dýrmætt að deila dramatískri lífsreynslu Hvað stendur upp úr frá blaðamanns- ferlinum? „Allt fólkið sem ég var svo heppin að fá að kynnast. Fólk sem treysti mér fyrir sínum innstu og dýrmætustu til- finningum. Ég sérhæfði mig snemma í viðtölum við fólk með erfiða lífs- reynslu að baki. Það kenndi mér mikið.“ Jónína gefur lítið fyrir gagnrýni á að greint sé frá harmsögum fólks í fjöl- miðlum. „Það skiptir öllu máli hvernig þetta er gert. Hvernig viðtalið er tekið, hvernig unnið er úr því og hvernig það er fram sett. Vitanlega eru ekki allir tilbúnir að opna sig í fjölmiðlum. Mér finnst það mjög skiljanlegt. En það er óendan- lega dýrmætt að til sé fólk sem vill deila dramatískri lífsreynslu sinni með öðrum. Enginn veit jú hver er næstur. Við fáum öll okkar skammt af áföllum í lífinu og þá getur verið mikill styrkur að lesa um manneskju sem hefur upplifað eitthvað svipað. Það var mikill lærdómur að kynnast öllu þessu fólki og ég er því innilega þakklát fyrir að treysta mér fyrir því allra viðkvæmasta í lífi sínu. Það var einstakt hvað fólk var oft einlægt, opið og tilbúið að gefa af sér.“ Var þetta aldrei niðurdrepandi? „Margir héldu það en mér fannst það alls ekki. Það þroskaði mig að standa ítrekað frammi fyrir fólki sem hafði upplifað erfiðleika sem við hin höldum að við myndum aldrei afbera. Foreldrum sem höfðu gefið líffæri úr nýlátnum börnum sínum, manni sem hafði misst eiginkonu og dóttur með nokkurra mánaða millibili, rúmlega fimmtugri konu sem hafði fylgt þrem- ur eiginmönnum til grafar. Bara svo ég taki örfá dæmi. Sumir vilja ekkert af svona lífs- reynslu vita. Mér finnst það bera vott um ákveðinn veruleikaflótta. Það minnir mig á strút með hausinn í sandi að sjá fólk lifa og hrærast í yfirborðslegum hlutum þar sem allt á helst að vera svo flott, skemmtilegt og smart. Auðvitað er lífið líka fullt af gleði og hún verður að vera með. En kannski kann maður betur að meta gleðina eftir því sem maður er með- vitaðri um að lífið er ekki bara dans á rósum. Margir forðast að tala um viðkvæma hluti af ótta við tilfinningar og tár, ann- aðhvort hjá sjálfum sér eða öðrum. Sumir forða sér jafnvel yfir götu eða út úr verslun ef þeir sjá kunningja sem hefur orðið fyrir alvarlegu áfalli. Það hefðu allir gott af að yfirvinna slíkan ótta. Vera ekki feimnir við að tala um dauðann, veikindi eða aðra erfiðleika, jafnvel þótt það kosti nokkur tár. Geta talað um allt.“ Hefurðu sjálf orðið fyrir áföllum af einhverju tagi? „Já, það kemst enginn í gegnum 56 ár án þess að lenda í einhverju. Ég hef misst bæði ættingja og vini. Og ég hef átt við veikindi að stríða síðan ég var krakki. Ég er með astma og ofnæmi fyrir öllu mögulegu og ómögulegu og ónæmiskerfið í mér er handónýtt. Æskuminningar mínar eru því dálítið litaðar af því að ég mátti oft ekki fara út úr húsi dögum saman. Ég var alltaf lasin. Þessi veikindi mótuðu mig bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Það já- kvæða sem ég hafði upp úr þessu var ást á bókum og lestri. Þegar ég hékk inni var ég á kafi í bókum. Las og las og las. Það neikvæða er að ég sit uppi með hrikalega léleg lungu. Núna vita læknar það sem ekki lá fyrir þegar ég var lítil, að lungu eyði- leggjast smávegis í hverju astmakasti. Þess vegna er lögð áhersla á að fyrirbyggja þau. Ég er aðeins með um 40% af þeim krafti sem manneskja á mínum aldri ætti að hafa í lungunum. Ekki svo að skilja að mér sé einhver vorkunn. Það vildu örugglega margir skipta við mig. Þetta er algjört smá- mál miðað við ýmislegt sem aðrir standa frammi fyrir.“ Færeyingar miður sín Um daginn fór Jónína til Færeyja. Sem væri svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þetta var í fyrsta skipti sem hún fylgdi Jóhönnu í opinbera heimsókn. Völduð þið Færeyjar viljandi sem ykkar fyrsta sameiginlega, opinbera áfangastað? „Svona heimsóknir eiga sér langan aðdraganda. Lögmaður Færeyja kom í opinbera heimsókn til Íslands í fyrra- haust og fljótlega upp úr því var þessi ferð ákveðin. Ég hafði tvisvar áður komið til Færeyja, fyrst fyrir þrjátíu árum. Í fyrra fór ég svo til Þórshafnar að hitta hina 15 höfundana sem eiga sögur í norræna smásögusafninu. Þetta var eina utanlandsferðin mín árið 2009 og alveg ógleymanleg helgi. Það er fal- legt í Færeyjum og mér finnst fólkið sérlega alúðlegt og afslappað. Og þeir eiga stórkostlega listamenn; rithöf- unda, listmálara og tónlistarfólk.“ Mikla athygli vakti þegar leiðtogi færeyska Miðflokksins, Jenis av Rana, neitaði að mæta í kvöldverðarboð til heiðurs Jóhönnu en hann hefur lýst sig andvígan auknum réttindum sam- kynhneigðra. „Færeyingunum fannst þessi upp- Þótt ég þykist standa fyrir mínu er ekki hægt að horfa fram hjá því að þessi óvenju- mikli spenn- ingur fjölmiðla væri ekki til staðar nema vegna for- sætisráðherra- frúar-vinkilsins. Það er ekkert skemmtilegt fyrir sjálfstæða manneskju. Jónína hefur mikinn áhuga á andlegum málefnum en kynni hennar af spíritisma hófust strax á ungaaldri. „Heima voru til heilu hillurnar af bókum um spíritisma. Ég las þær upp til agna í þessum eilífu sóttkvíum mínum sem krakki. Áhuginn kviknaði síðan fyrir alvöru þegar ég skrifaði ævisögu séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar sem var prestur í Langholtskirkju. Hann var mikill spíritisti, náinn samstarfsmaður Einars á Einarsstöðum og sjálfur með mikla hæfileika á þessu sviði.“ Ertu trúuð? „Já, enda ætlaði ég að verða prestur! Annars finnst mér trú ekki snúast um kirkjusókn og bænir, heldur að reyna að vera almennileg manneskja. Fyrir mér er það einhver sem kemur fram við aðra eins og hann vill að komið sé fram við hann. En það er nú aldeilis hægara sagt en gert. Þetta er lífstíðarverkefni. En vonandi fáum við annað tækifæri á öðrum stað. Ég held ekki að lífið á jörðinni sé upphaf og endir alls. Ég trúi á fram- haldslíf. Eða réttara sagt: Ég veit að það er framhaldslíf. Þetta er vissa, ekki trú.“ Ertu næm sjálf? „Ég er þeirrar skoðunar að allir séu næmir. En það sama á við um þetta og aðra eiginleika. Fólk verður að leggja rækt við þá. Sjálf hef ég m.a. gert það með því að stunda hugleiðslu og taka þátt í bænahópum. Hugleiðsla er alveg frábært tæki til að slaka á og öðlast innri ró og rannsóknir sýna að hún bætir líkamlega heilsu. En ég hef ekki verið nógu dugleg að hugleiða að undan- förnu. Of önnum kafin við að skrifa. Svona er maður vitlaus! Frestar til morguns því sem best væri að gera í dag.“ „Ég veit að það er framhaldslíf“ Færeyjaheimsóknin á dögunum. Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Jónína Leósdóttir. Ljósmynd/Dimmalætting ákoma afar leiðinleg. Fólk baðst afsökun- ar og tók fram að svona hugsuðu Færey- ingar almennt ekki. Aðeins lítill hópur. En ég hitti aðeins elskulegt fólk og naut dvalarinnar til hins ýtrasta. Það eina sem ég hafði haft örlitlar áhyggjur af, svona fyrirfram, var að það myndi valda gestgjöfunum vandræðum að ég er grænmetisæta. En það eru greinilega flinkir matreiðslumenn í Fær- eyjum!“ Forvitnin meiri Norska forsætisráðherrafrúin, Ingrid Schulerud, hefur talað um að það sé helvíti að vera gift topppólitíkus. Geturðu tekið undir þessi orð? „Það er ekkert skemmtilegt að vera gift einhverjum sem er í starfi þar sem fylkingar takast á ... og það opinberlega. Starfi sem felur í sér rifrildi, átök og sterk orð. En maður lærir að brynja sig fyrir því,“ segir Jónína. „Ef ég tæki þetta inn á mig yrði ég bara að halda mig undir sæng. Það myndi ekkert þýða að fara fram úr því þetta skellur á manni um leið og dagblaði er flett eða maður hlustar á fréttatíma í útvarpi eða sjónvarpi. Póli- tíkin er alls staðar.“ Er mikill munur á því að vera maki for- sætisráðherra eða maki félags- og trygg- ingamálaráðherra? „Ég hef aldrei skilgreint mig út frá því að vera maki einhvers, hvorki nú né áður.“ Það hlýtur þó að hafa breytt þínu lífi töluvert? „Ætli það sé ekki aðallega að fólk er forvitnara um mann. Ég var ekki undir það búin. Hugsaði hreinlega ekki út í það.“ Stundum gengur forvitnin of langt, að mati Jónínu. „Þegar ég var hjá sjúkra- þjálfara í ársbyrjun spurði hann mig einu sinni: „Hvernig smakkaðist ístertan?“ Þá hafði komið „frétt“ um það í tímariti að ég hefði sést kaupa ístertu og sérstaklega var tiltekið í hvaða búð þetta var og hvaða tegund ég hefði keypt. Mér fannst þetta fáránlegt!“ Þú hlýtur samt að skilja áhugann, haf- andi starfað við blaðamennsku sjálf? „Já, ég skil hann. Ég fékk margoft neitun þegar ég bað fólk um viðtal. Oft var það alveg blóðugt því yfirleitt hafði viðkomandi áhugaverða sögu að segja. En ef manneskja sagði nei, þá þakkaði ég bara kurteislega fyrir, baðst afsökunar á ónæðinu og lét þar við sitja.“ Jónína segir álagið sem fylgi starfi for- sætisráðherra þó auðvitað setja mark sitt á heimilislífið. „Eins og ástandið í þjóðfélaginu er núna er þetta starf allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Það gefur augaleið að viðkomandi aðili er þá ekki að sinna neinu öðru á meðan. En ég er svo heppin að eiga nóg af áhugamálum og stóran vinahóp. Annars er ég hálfgerður vinnu- alki og get gleymt mér við tölvuna frá morgni og langt fram á kvöld. Og nú er að bresta á sá árstími þegar rithöfundar kynna bækurnar sínar út um víðan völl. Stundum er ég að lesa upp í skólum á morgnana og fyrir fullorðna á alls kyns samkundum á kvöldin. Þetta er mjög gaman. En á móti kemur að þá gefst ekki eins mikill tími til að skrifa og það getur verið mjög frústrerandi.“ Framtíðin er óskrifað blað. Hundruð óskrifaðra blaðsíðna, ef að líkum lætur. Jónína er rétt að byrja. „Ég er mjög flughrædd. Um daginn var ég eitthvað að væla yfir því í hópi fólks að bráðum þyrfti ég að fara í flug. Þá fékk ég þessa spurningu: „Hvað með það ef flugvélin færist og þú myndir deyja? Væri það ekki bara allt í lagi?“ Ég svaraði sam- stundis, algjörlega án umhugsunar: „Nei, ekki alveg strax. Ég er loksins komin í þá draumaaðstöðu að geta einbeitt mér að skriftunum. Aðstöðu sem mig hafði dreymt um áratugum saman. Þannig að ég er ekki tilbúin að lenda í neinu flug- slysi! Mig langar til að skrifa nokkrar bækur í viðbót.“ 34 viðtal Helgin 1.-3. október 2010 Heiðdís Lilja Magnúsdóttir hlm@frettatiminn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.