Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 62
Góðar ferðatöskur
geta gert
gæfumuninn!
Skólavörðustíg 7 • www.th.is
S tíllinn minn er svona frekar kósí og þægilegur og ég klæði mig mest eftir veðri,” segir Erna og hlær. Hún segist ekki eiga sér neina sérstaka
fyrirmynd sem hún líti upp til og helst séu það flott og
ódýr föt sem hún leiti í. ,,Mest kaupi ég föt eftir íslenska
hönnuði hérna heima en ég er líka dugleg að skreppa
til útlanda og missa mig í fatakaupum þar,” bætir Erna
Guðrún við. – kp
5
dagar
dress
Mánudagur Skór: Álnavöru-búðin Hveragerði Bolur: Topshop
Jakki: River Island Taska: H&M Buxur: Aftur
Erna Guðrún Fritzdóttir er tvítug dans-
mær á lokaárinu sínu í Kvennaskóla Reykja-
víkur. Hún hefur brennandi áhuga á tísku
og elskar að finna sér föt sem eiga vel við
hennar stíl.
Klæðir sig
eftir veðri
Þriðjudagur Jakki: Vero Moda Hálsmen: Nostalgia Peysa: Gina Tricot
Undirkjóll: Nostalgia Leggings: Aftur
Föstudagur Peysa: Nostalgia Samfestingur: H&M Sokkabuxur: H&M
Hálsmen: H&M Skór: River Island Taska: GS skór
Lj
ó
SM
yN
d
IR
/
H
A
R
I
Miðvikudagur Peysa: Aftur Sokkabuxur: H&M Skór: Message
Fimmtudagur Jakki: Gina Tricot Kjóll: H&M Korselett: Nostalgia
Leggings: Gina Tricot Skór: Einvera
Ómissandi í
fataskápinn
Stjörnurnar í
Hollywood velja sér
ekki alltaf vörur eftir
verðlagi og margar
eru vanafastar í
sínum merkjum. Þær
velja einungis það
besta. Oft er gaman
að kíkja í snyrti-
töskuna hjá fræga
fólkinu og sjá hvaða
snyrtivörur þær eru
að nota.
Í takt við
tÍmann
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
É g ætla ekki að alhæfa neitt en ég gef mér það bessaleyfi og segja að nánast hvaða kona sem er, elskar að fjárfesta í skóm.
Þetta er yfirleitt ekki ódýr fjárfesting en þessi
kaup eru þau sem við sjáum líklega minnst eftir.
Skótískan fer í hringi og bylgjurnar ganga mis-
lengi yfir. Nú í ár eru það fylltu hælarnir sem eru
gjörsamlega að berja sér leið um tískuheiminn
og eru þeir algjörlega ómissandi í fataskápinn.
Það er eitt skópar sem mér finnst hafa verið mest
áberandi núna í haust. Jeffrey Campell. Þeir eru
mega flottir, þæginlegir og passa nánast við allt.
Campbell eru nýkomnir á Íslandsmarkað og ekki
svo dýrir.
Fylltu hælarnir eru svo sannarlega að koma í
staðin fyrir klassísku pinnahælana. Meira jafn-
vægi og mun þæginlegri.
Svona er tískan sem kemur og fer eftir hentisemi
og það erum við sem reynum að fylgja henni
eftir. Þetta hugtak, tíska, er orðið svo sveigjan-
legt, fjölbreytt og vítt að allir finna eitthvað við
sitt hæfi. Stíllinn einkennir okkur
og er stór partur af því
hver við erum og
endurspeglast í
persónleika okkar,
býr til karakter og
breytist í takt við
tímann.
Fegrunarráð
Siennu Miller
Hún notar fallega rauðan varalit
frá MAC til að hressa upp á náttúru-
legt útlit sitt. Fæst í MAC Kringlunni
og Smáralind, verð.
Sienna notar steinefnapúður
frá MAC fæst í MAC Kringlunni
og Smáralind.
Hún er andlit ilmvatnsins
Orange frá Hugo Boss, sem
fæst í snyrtivörudeild Hagkaupa
og fríhöfninni.
Hún notar naglalakk frá OPI, Nail
Lacquer til að halda náttúrulegu og fal-
legu „lúkki“ fyr ir neglunar. Hún notar Lemon
Body milk frá Body Shop, til að viðhalda
góðum raka í húðinni. Fæst í verslunum Body
Shop Kringlunni, Smáralind og Akureyri.
Sienna Miller gefur förðunarráð! Settu
bronzlitað sólarpúður undir kinnbeinin. Það
ýkir útlínur og eykur dýpt í andlitinu.
Fegrunarleyndarmálið
afhjúpað
EGF húðdropar er nýjasta afurð
íslenskra vísindamanna. Þeir eru
endurnærandi og örvandi fyrir húðina.
EGF er prótein sem örvar endurnýjun
húðfrumna og hindrar áhrif öldrunar
á náttúrulegan hátt með því að gefa
húðinni aftur það sem tapast með aldri
og árum. Með notkun á þessum undra-
dropum verður húðin fallegri og áferðin
verður jafnari. Rakamyndun eykst og
vinnur þannig á þurrkublettum. Þessi
frábæra vara er án lyktar- eða litarefna
og hentar öllum húðgerðum og er ekki
síður fyrir karlmenn sem og konur.
62 tíska Helgin 1.-3. október 2010