Fréttatíminn - 01.10.2010, Side 69
68 dægurmál dægurmál 69 Helgin 1.-3. október 2010 Helgin 1.-3. október 2010
HUGSAÐU VEL
UM HÚÐINA
ÞÚ FÆRÐ DECUBAL
Í NÆSTA APÓTEKI
• Húðin okkar er viðkvæm og veðráttan á
Íslandi getur verið húðinni erfið.
• Decubal viðheldur heilbrigði og ferskleika
húðarinnar – allt árið um kring.
• Kynntu þér eiginleika Decubal og kveddu
þurra húð.
Fanney fegurðardís á ferð og flugi
Ungfrú Ísland er
mjög spennt fyrir
Miss World en gerir
ráð fyrir að stressið
fari að gera vart
við sig þegar nær
dregur keppni.
Mynd/66 Hari
“Við hitum alltaf upp með svona
frumbyggjadönsum,” segir Álfrún
og tekur nokkur spor til útskýr-
ingar.
Söngleikurinn er glænýr, eftir Pál
Baldvin Baldvinsson sem jafnframt
leikstýrir fjörinu. Efnið sækir hann
í söguna um Dísu ljósálf sem hefur
heillað íslenska lesendur kynslóð
eftir kynslóð. Ævintýrið um Dísu
hefur komið út í þúsundum eintaka,
verið í sjónvarpi og á snældum en
er nú fyrst að rata á svið.
Tónlistin er líka öll ný. Það er
meistari Gunnar Þórðarson sem
sér um lagasmíðarnar. Diskur með
lögunum úr sýningunni kemur út
15. október og líka er von á endur-
prentun á bókinni með sögunni, en
hún hefur verið uppseld um árabil.
Sjö leikarar fara með tólf hlutverk
í söngleiknum og að auki koma
fram sjö dansarar sem músabörn,
froskar, skuggaverur og vatnadísir.
Álfrún og Steinn segja að sýningin
sé fyrir alla fjölskylduna; börnin,
mömmur, pabba, afa og ömmur.
Og Steinn hlakkar augsýnilega
mikið til frumsýningardagsins.
,,Ég verð í svona leðurbuxum, eins
og Ross klæddist í Friends. Þær
eru alveg níðþröngar,” segir hann
og hlær.
Það er María Ólafsdóttir sem sér
um búninga, en auk Álfrúnar og
Steins koma fram í sýningunni þau
María Þórðardóttir, Kári Viðars-
son, Þórir Sæmundsson, Sólveig
Arnarsdóttir og Esther Maria Ca-
sey ásamt dönsurum og hljómsveit.
-kp
plötuhorn
Dr. Gunna
Sing for me Sandra
Apollo’s Parade
70%
Kvintettinn Sing For Me Sandra hefur verið
starfandi síðan árið 2006. nokkur lög hafa
heyrst og vakið athygli á bandinu, en þetta
er fyrsta platan. Þetta er háklassa popprokk,
músík sem smellpassar á hillu mitt á milli Togga
og diktu. Bandið er feikna vel spilandi og lögin
grípa stíft við ítrekaðar hlustanir. Bandið þarf
þó að finna sinn eigin hljóm. Það kemur.
Háklassa popprokk
Enn virðist ekki sjá fyrir endann á kynlífs- og kvennamálaklandri golfarans
Tiger Woods þar sem nú hefur bandaríska
klámstjarnan Devon James stigið fram og sagst
eiga „eldfimt“ myndband með hvílubrögðum
hennar og Woods. Hún segir hið myndbandið
vera 62 mínútna langt og þar af fari 37 mínútur
í kynlíf hennar og golfkappans.
Devon, sem er 29 ára gömul og heldur því
fram að Tiger sé faðir níu ára sonar hennar,
segir að myndbandið hafi verið tekið upp árið
2008 og „verði alger sprengja“. Hún er sögð
vera að reyna að selja klámmyndaframleiðanda
í Los Angeles myndbandið en talsmaður
Vivid-klámframleiðandans segist ekki geta
tjáð sig um málið að svo stöddu af lagalegum
ástæðum. -þþ
Klámsprengja hangir yfir Tiger
Vandræðin halda
áfram að hlaðast
upp í kringum
Tiger Woods.