Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 72

Fréttatíminn - 01.10.2010, Page 72
Sveigjanleg GSM áskrift með eitt mínútuverð óháð kerfi F Y R I R T Æ K I SKIPTU REIKNINGN UM milli fyrirtæ kis og starfsmann s 15,5 KR MíNúTaNóháð kerfi Það er 800 4000 • siminn.is GSM Samband er sveigjanleg áskriftarlei› sem sameinar hagsmuni fyrirtækja og starfsfólks. Fyrirtæki› kaupir Grunnáskrift á 499 kr. á mánu›i* og bætir sí›an vi› mismunandi pökkum, allt eftir flörfum hvers og eins, sem anna›hvort fyrirtæki› e›a starfsmenn grei›a fyrir. Lægra mínútuver› og sveigjanlegar áskriftarlei›ir geta lækka› símakostna› fyrirtækisins og starfsfólks. GSM Samband fyrir fyrirtæki E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 8 0 6 *U pp ha fs gj al d 6, 50 k r. H E LGA R BL A Ð Ólafur biskup vinsæll Orð dagsins úr Biblíunni, kver með tilvitnunum úr Biblíunni völdum af Ólafi Skúlasyni biskup, selst nú eins og heitar lummur á rýmingarsölu bókaútgefenda í Borgartúni. Bókin var nánast uppseld á fimmtudag og á starfsfólki þar mátti heyra að vinsældir bókarinnar hefðu komið verulega á óvart. Nokkuð er um að fólk kaupi bókina í gríni, sem þykir skýra vinsældirnar að nokkru leyti, en bókin þykir einnig á mjög góðu verði og kostar ekki nema litlar 490 krónur. Hörpuútgáfan gaf bókina út árið 1995 og í inngangsorðum segir Ólafur heitinn að verði bókin til að laða fólk til lestrar á „Bók bókanna“ sé tilgangi útgáfunnar náð. Vinsældir Orða dagsins úr Biblíunni eftir Ólaf Skúlason virðast sanna að illt umtal er betra en ekkert. Hrósið ... fær Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, sem stýrði sínum mönnum til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins í skugga fráfalls bróður síns Hrafnkels sem lést í fyrravetur í bílslysi. Reynir hjólar í Svein Andra Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og Reynir Traustason, ritstjóri DV, tóku hressilega snerru á Facebook-síðu þess fyrrnefnda í gær. Tilefnið var leiðari Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur í DV þar sem Sveinn Andri kom nokkuð við sögu. Eftir að Sveinn Andri lét í það skína að Ingibjörg tæki því persónulega að hann hefði fengið hana dæmda fyrir meiðyrði, kom Reynir henni til varnar og sagði Svein vera „endaþarm íslenskrar lögmennsku“. Sveini fannst Reynir vera fullbitur en vildi ekki útiloka að hann gæti einn daginn orðið alvöru blaðamaður. Reynir skaut á móti og sagði Svein vera „ræfil“ sem væri í mesta lagi „kvensterkur“ og mannorðslaus. Lögmaðurinn svaraði þá að mannorð væri „bara eitthvað“ sem Reynir þekkti af afspurn og „líklega ekki viss um hvað það þýðir“. -þþ Reynir tók slaginn við Svein Andra á Facebook. Ljósmynd/ DV

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.