Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 72
HELGARBLAÐ
Missti af Spaug-
stofunni en undrast
ekki áhorf
Spaugstofan var sýnd í fyrsta sinn
síðastliðinn laugardag á Stöð 2.
Þátturinn var sýndur í opinni
dagskrá og fékk um 50% áhorf.
Hjá Stöð 2 í Skaftahlíðinni ríkir
mikil ánægja með áhorfið en
Páll Magnússon útvarpsstjóri
segir að það hafi ekki komið sér
á óvart. „Ég missti reyndar af
þættinum en áhorfið kemur ekki
á óvart. Það er svipað og það
var hjá okkur í fyrra og árin á
undan,“ segir Páll sem
lofar því að hann
horfi þáttinn.
„Ég verð mér
úti um þátt-
inn. Ég vil sjá
hvernig strák-
arnir pluma sig á
nýjum stað.“
Árituðu bækur í
einn og hálfan tíma
Handboltakappinn Logi Geirs-
son og blaðamaðurinn Henry
Birgir Gunnarsson, sem
skrifuðu í sameiningu atvinnu-
mannssögu Loga, 10.10.10, fengu
fljúgandi start á fyrsta söludegi
bókarinnar á sunnudag. Þeir sátu
sveittir í einn og hálfan tíma og
árituðu bækur af miklum móð.
Eftir því sem næst verður komist
ljúka höfundar venjulega áritun
á hálftíma. Logi og Henry munu
leggja land undir fót um helgina
og árita bækur bæði í Eymunds-
son á Akureyri og á Húsavík.
Hrósið…
... fær Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður
íslenska U-21 árs landsliðsins, fyrir tvö
frábær mörk gegn Skotum á mánudag
sem tryggðu íslenska liðinu sæti í úrslita-
keppninni í Danmörku næsta sumar.Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Á siminn.is sérðu hvort þitt heimili hefur aðgang að Sjónvarpi Símans.
Til að ná Sjónvarpi Símans þarf að hafa ADSL tengingu hjá Símanum.
Mesta úrval landsins
heima í stofu
Það er
Fyrir aðeins 790 kr. á mánuði færðu opnu, íslensku stöðvarnar og þrjár
erlendar. Einnig færðu SkjáBíó þar sem þú getur leigt þér þúsundir
bíómynda og auk þess séð sjónvarpsþætti og úrval efnis á 0 kr.
Fáðu þér Sjónvarp Símans í 800 7000, á siminn.is eða í næstu verslun.
Sjónvarp Símans:
Sími
Netið
Sjónvarp
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
5
5
Sá svalasti í
myndlistinni
Hann lítur út eins og söngvari
í rokkhljómsveit en undir öllu
húðflúrinu og svölu yfirborðinu
leynist ein mesta myndlistar-
stjarna Norðurlandanna.
Norðmað-
urinn Gar-
dar Eide
Einarsson
opnar stóra
sýningu í
Hafnarhús-
inu í næstu
viku og mun sýna þar skúlptúra,
ljósmyndir, skjáverk og fleira,
sem unnið er undir áhrifum frá
götulist og pönktónlist.
Gardar er af íslenskum ættum.
Faðir hans er virtur bókaútgef-
andi í Ósló en sjálfur býr hann og
starfar jöfnum höndum í Tókýó,
New York og Ósló.