Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Side 16
fimmtudagur 10. maí 200716 Sport DV
Teitur Örlygsson er tekinn við þjálfun körfuboltaliðs Njarðvíkur:
Ætlar að taka bikarana frá Reykjavík
Teitur Örlygsson hefur skrif-
að undir samning við körfuknatt-
leiksdeild Njarðvíkur og mun hann
taka við þjálfun liðsins. Einar Árni
Jóhannsson sem var þjálfari Njarð-
víkinga lét af störfum fyrir stuttu
eftir að hafa haldið um stjórnar-
taumana hjá liðinu í þrjú ár. Teit-
ur lýsti fljótt yfir áhuga sínum á að
taka starfið að sér og má segja að
hann hafi fengið ósk sína uppfyllta.
„Ég er mjög spenntur fyrir starf-
inu enda mikill metnaður í Njarð-
vík,“ sagði Teitur við DV en hann
varð tíu sinnum Íslandsmeistari
með Njarðvík sem leikmaður. Hann
segir að einhverjar breytingar muni
að sjálfsögðu fylgja þjálfaraskipt-
unum en þær verði ekki mjög stór-
vægilegar.
„Þetta verður nú ósköp hefð-
bundið en ég mun að sjálfsögðu
koma inn með mínar áherslur. Það
verða alltaf vissar breytingar með
þjálfaraskiptum. Það verður lagt
kapp á að halda sama mannskap
og í framhaldi af því verður skoðað
með Bandaríkjamann og hvort við
styrkjum okkur með Evrópumanni.
Ég er svo nýtekinn við að maður
getur lítið sagt núna. Það verða sjö
strákar í landsliðsverkefnum í sum-
ar svo ég þarf ekki að hafa miklar
áhyggjur af forminu á leikmönn-
um.“
Samningur Teits er til tveggja
ára. Íslenski körfuboltinn er á mik-
illi uppleið og nýliðið tímabil var
eitt það skemmtilegasta í manna
minnum. Njarðvík keppti við KR
um Íslandsmeistaratitilinn í vetur
en Reykjavíkurliðið hafði þar bet-
ur. „Það er virkilega spennandi að
koma inn í þetta núna eftir þennan
frábæra vetur. Báðir bikararnir eru
í Reykjavík og það er viss áskorun
fyrir okkur á Suðurnesjunum. Það
er svo langt síðan bikararnir voru
báðir í bænum að ég bara man
ekki hvenær það var,“ sagði Teitur
Örlygsson, ákveðinn í að endur-
heimta Íslandsmeistaratitilinn til
Njarðvíkur.
elvargeir@dv.is
Teitur tekinn við
teitur Örlygsson er
mjög spenntur fyrir
nýja starfinu.
enska úrvalsdeildin
Chelsea - Man. United 0-0
Staðan
Lið L U J T M S
Man.Utd. 37 28 5 4 83:26 89
Chelsea 37 24 10 3 63:23 82
Liverpool 37 20 7 10 55:25 67
Arsenal 37 19 10 8 63:35 67
Everton 37 15 12 10 51:35 57
----------------------------------------------
Sheff. Utd. 37 10 8 19 31:53 38
West Ham 37 11 5 21 34:59 38
Wigan 37 9 8 20 35:58 35
Charlton 37 8 9 20 32:58 33
Watford 37 5 12 20 28:58 27
Ítalski bikarinn
Roma - Inter Milan 6-2
1-0 (1.) Totti, 2-0 (5.) Rossi, 3-0 (16.)
Perrotta, 3-1 (20.) Crespo, 4-1 (31.)
Mancini, 5-1 (54.) Panucci, 5-2 (56.)
Crespo, 6-2 (89.) Panucci.
Úrslit helgarinnar
deildarbikar karla Í handbolta
HK - Stjarnan 29-28
Markahæstu menn HK:
Augustas Strasdas 8
Valdimar Þór Þórsson 8
Varin skot: Egidius Pektevisius 18
Markahæsti maður Stjörnunnar:
Guðmundur Guðmundsson 6
Varin skot: Roland Eradze 22
Meistarakeppni ksÍ - kvenna
Valur - Breiðablik 8-1
Mörk Vals: Margrét Lára Viðarsdóttir
5, Vanja Stefanovic, Rakel Logadóttir
og Guðný Óðinsdóttir.
Mark Breiðabliks: Sjálfsmark.
spænska bikarinn - undanúrslit
Sevilla - Deportivo 2-0
1-0 (3.) Duda, 2-0 (34.) Chevanton.
holland - Meistaradeildarsæti
Heerenveen - Ajax 1-0
Twente - AZ Alkmaar 1-1
- Grétar Rafn Steinsson var ekki í
leikmannahóp AZ Alkmaar.
franska úrvalsdeildin
Sochaux - Monaco 2-1
Bordeaux - Nantes 0-1
Lille - Sedan 2-1
Lorient - Auxerre 2-1
Marseille - Nancy 2-1
Nice - PSG 1-0
Troyes - Rennes 2-2
Valenciennes - St. Etienne 1-0
Lyon - Lens 3-0
Staðan
Lið L U J T M S
Lyon 35 22 9 4 58:25 75
Lens 35 15 11 9 47:35 56
Bordeaux 35 16 8 11 37:30 56
Marseille 35 16 7 12 48:36 55
Sochaux 36 14 12 10 43:43 54
Toulouse 36 15 8 13 41:41 53
Rennes 35 13 13 9 31:26 52
St.Etienne 35 14 7 14 51:46 49
Auxerre 35 11 15 9 35:37 48
Lille 35 12 10 13 41:39 46
Lorient 35 11 13 11 30:34 46
Nancy 35 12 10 13 31:38 46
Monaco 36 11 12 13 42:38 45
Le Mans 35 10 14 11 40:42 44
PSG 36 10 13 13 39:40 43
Valencien. 35 10 9 16 33:44 39
Nice 35 8 14 13 30:37 38
Troyes 35 8 11 16 33:50 35
Sedan 35 7 13 15 44:54 34
Nantes 35 6 13 16 27:46 31
danska úrvalsdeildin
AaB - Nordsjælland 1-1
Bröndby - FC Köbenhavn 0-1
Randers - OB 1-2
Silkeborg - AC Horsens 1-1
- Bjarni Ólafur Eiríksson byrjaði inni
á hjá Silkeborg en var skipt út af á 77.
mínútu. Hólmar Örn Rúnarsson og
Hörður Sveinsson komu ekki við sögu.
Vejle - Esbjerg 3-0
Viborg - FC Midtjylland 0-1
Leikur HK og Stjörnunnar í Digra-
nesi var mögnuð skemmtun. Ljóst var
frá upphafi að leikmenn liðanna ætl-
uðu að leggja sig virkilega fram. Það
var vel mætt í Digranes og létu stuðn-
ingsmenn liðanna vel í sér heyra.
HK byrjaði leikinn betur og komst
í 5-3 þegar 10 mínútur voru búnar af
leiknum. Athygli vakti að Tite Kalad-
adze stórskytta Stjörnunnar byrjaði
á bekknum en var settur inn á þegar
staðan var 7-7 og korter búið.
Það hallaði verulega á Stjörnuna
nánast frá upphafi í dómgæslu í leikn-
um. Tite var rekinn í bað þegar fimm
mínútur voru eftir af fyrri hálfleikn-
um við dræmar undirtektir gestanna.
Tite fór vissulega óvarlega í Augustas
Strazdas og olnbogi hans rakst vissu-
lega í andlit Strazdas. En að segja að
þetta hafi verið vísvitandi var klárlega
rangur dómur.
Það sem eftir var af hálfleiknum
virtist sem leikurinn ætlaði að enda
í einni allsherjarvitleysu en mik-
il spenna var bæði í leikmönnum og
áhorfendum. Jafnt var á flestum töl-
um og varð sú raunin þegar gengið var
til leikhlés 16-16. Stjörnumenn fengu
lokatækifæri til að komast yfir úr
aukakasti þegar leiktíminn var liðinn
en Patrekur Jóhannesson tók auka-
kastið og þrumaði beint í andlit Ragn-
ars Njálssonar. Lá hann óvígur eftir í
töluverða stund en hann og Patrekur
skildu sáttir og tókust í hendur. Enda
þegar atvikið var skoðað að nýju, þökk
sé RÚV, mátti sjá að um algjört óvilja-
verk var að ræða.
Síðari hálfleikur var frábær skemmt-
un sem bauð upp á allt sem góður
handboltaleikur hefur upp á að bjóða.
Dramatík, spennu, umdeild atvik og
sigurmark skömmu fyrir leikslok.
Stjarnan skoraði fyrsta mark síðari
hálfleiks en HK jafnaði og þannig var
saga leiksins þangað til að 20 mínútur
voru eftir. Þá hrökk Roland Valur Er-
adze í gang og hreinlega lokaði mark-
inu.
Stjarnan gekk á lagið og komst yfir,
fyrst einu marki, svo tveimur og loks
þremur 20-23 en þetta var í fyrsta sinn
sem liðin slitu sig eitthvað hvort frá
öðru. HK-menn voru þó ekki á þeim
buxunum að játa sig sigraða. Með vilj-
ann að vopni náðu þeir að jafna í 25-25
og allt á suðupunkti í Digranesi.
Enn hallaði verulega á í dómgæsl-
unni og var kominn verulegur pirring-
ur í leikmenn og áhorfendur Stjörn-
unnar. Slík voru lætin að lögreglan lét
sjá sig minnug slagsmálanna sem urðu
í bikarúrslitaleiknum á milli Stjörn-
unnar og Fram.
Þegar ein mínúta var eftir var
Stjarnan með boltann og staðan 28-
28. David Kekelia fór þá á vörnina og
fékk dæmdan á sig ruðning sem þótti
skrítinn dómur. HK fékk boltann og
rúmri hálfri mínútu fyrir leikslok fór
Tomas Eitutis inn og fékk víti. Atvik-
ið var keimlíkt því sem Stjarnan fékk á
sig ruðning fyrir og nú fyrst urðu Garð-
bæingar reiðir. „Jesús minn góður, að
leggja allt þetta erfiði á sig og fá svona
dómgæslu í andlitið,“ mátti heyra frá
bekk Stjörnunnar.
Valdimar Þórsson fór á vítalínuna
og skoraði af miklu öryggi framhjá Rol-
and 29-28.
Kristján Halldórsson þjálfari Stjörn-
unnar tók leikhlé og menn þar á bæ
lögðu á ráðin. Hart var barist þessar
síðustu sekúndur en það kom í hlut
Arnars Theódórssonar að taka loka-
skotið fyrir Stjörnuna sem fór framhjá
og fögnuðu HK-menn gríðarlega þegar
lokaflautið gall skömmu síðar.
Sigur þeirra var ótrúlegur og liðið
hengdi aldrei haus þrátt fyrir að lenda
þremur mörkum undir. Það býr gríðar-
legur karakter í þessu liði og verður for-
vitnilegt að sjá það næsta vetur.
Það er í raun ótrúlegt að Stjarnan
hafi átt möguleika á að vinna leikinn.
Þeir fengu varla dóm með sér og voru
þeir afar ósáttir í lokin með störf þeirra
Gísla Hlyns Jóhannssonar og Hafsteins
Ingibergssonar. Það verður þó ekki tek-
ið af HK að það vann leikinn og fagnaði
deildarbikarmeistaratitlinum.
Valdimar Þórsson og Augustas
Strazdas voru markahæstir í liði HK
með 8 mörk. Egidius Pektevisius varði
18 skot í marki HK.
Guðmundur Guðmundsson skor-
aði 6 mörk fyrir Stjörnuna og Elías Már
Halldórsson bætti 4 mörkum við. Rol-
and Eradze varði 22 skot.
„Þetta var svakalegt og karakterinn
í lokin er ólýsanlegur,“ sagði glaður og
ánægður Gunnar Magnússon, aðstoð-
arþjálfari HK eftir leikinn. „Í hvert ein-
asta skipti sem við höfum tapað leik
eða stigi þá höfum við komið til baka
og unnið. Þetta er ótrúlegur karakter
og við höfum aldrei tapað tveimur stig-
um í röð í allan vetur. Roland var okk-
ur erfiður en við gáfumst aldrei upp og
þetta er frábær endir á frábæru tíma-
bili. Þetta er annar titill HK frá upphafi
og fyrir félagið er þetta gríðarlega mik-
ilvægur titill. Menn ætluðu sér þessa
dollu.“
Þeir dæma ruðning hér í restina
en dæma síðan víti við alveg eins að-
stæður,“ sagði ósáttur Kristján Hall-
dórsson, þjálfari Stjörnunnar. Að-
spurður hvort dómararnir hefðu
tapað leiknum fyrir Stjörnuna sagði
Kristján svo ekki vera.
„Við erum rosalega uppteknir af
dómgæslunni núna en nei. Við áttum
að vinna þennan leik í restina en þetta
féll ekki okkar megin.Ég óska bara HK
til hamingju með dolluna.“
benni@dv.is
HK fagnaði sigri í deildarbikarnum eftir magnþrunginn sigur á Stjörnunni 29-28. Dóm-
arar leiksins komu mikið við sögu
stÁltaUgar ValDiMars
trYggÐU hK sigUr
Lagana verðir Lögreglan lét sjá sig
og var við öllu búin.
Í borgaralegum klæðum tite
Kaladadze fékk rautt spjald í fyrri
hálfleik og horfði á síðari hálfleik í
borgaralegum klæðum.