Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Blaðsíða 27
Ilmur frá
Aguilera
Söngkonan Christina Aguilera setur
á markað ilmvatn á næstunni og ber
það heit-
ið Simply
Christina
Aguilera.
Slæst þá
söngkonan í
hóp kvenna
á borð við
Britney
Spears og
Mariah
Carey, en
báðar hafa
þær mark-
aðssett ilm
undir eigin
nafni. Það
er Proct-
er & Gamble sem kemur ilmvatinu á
markað sem mun án nokkurs vafa slá
í gegn meðal ungra kvenna í Banda-
ríkjunum. Þá er ilmvatnið auglýst með
orðunum: „Stundum það eina sem þú
þarft að klæðast.“
Nýjasta myndband Manson við lagið Heart Shaped Glasses hefst á atriði þar sem söngv-
arinn og nítján ára kærastan sjást stunda samfarir.
Marilyn Manson heldur áfram að sjokkera
„Það var ljóst í fyrradag að þetta
væri dottið uppfyrir,“ sagði Kári
Sturluson í viðtali við DV á þriðju-
daginn var um þær fregnir að Ísland
verði ekki hluti af Live Earth - tón-
leikunum eins og stóð til. Kári sem er
sendiherra Live Earth á Íslandi bað
blaðamann DV um að bíða með birt-
ingu greinarinnar þar sem aftur væri
komin hreyfing á málið en engar
fregnir hafa borist af þróun mála.
Live Earth eru gríðarstórir tón-
leikar sem verða haldnir um allan
heim 7. júlí í sumar eða 07.07.07.
Tónleikarnir eru skipulagðir af sömu
aðilum og héldu Live8 - tónleikana
árið 2005. Live Earth - tónleikarnir
standa yfir í sólarhring í sjö borgum,
í sjö löndum og átti Ísland að vera
áttunda borgin í áttunda landinu.
Yfir 150 af þekktustu tónlistarmönn-
um og hljómsveitum heims munu
troða upp og er gert ráð fyrir að um
tveir milljarðar muni fylgjast með
tónleikunum.
Ríkið svaraði ekki
„Okkur hefur staðið þetta til boða
síðan í desember á síðasta ári,“ seg-
ir Kári um tónleikana en þeir eru
haldnir til þess að vekja fólk til um-
hugsunar um þann umhverfisvanda
sem blasir við mannkyninu og áhrif
hans. „Ísland átti að koma inn sem
áttunda landið og átti að vera ákveð-
inn bónus.“
Kári segir að tónleikarnir hafi í
raun staðið og fallið með því hvort að
íslenska ríkið hefði verið tilbúið að
leggja til fé eða um 15 milljónir. Kári
segir að aldrei hafi komið almenni-
leg svör frá íslenskum stjórnvöldum.
„Maður þakkar þó Guði að fólkið sem
sá um þetta mál fyrir ríkisstjórnina sé
ekki að vinna á bráðamóttökunni því
þá væri maður dauður mundi maður
enda þar inni,“ segir Kári glettinn um
vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Misstum af risatónleikum
„Það hefði allavega verið eitt risa-
stórt atriði á tónleikunum,“ segir Kári
um þá tónlistarmenn sem hefðu
hugsanlega spilað á Live Earth á Ís-
landi. „Á listann hjá Live Earth vant-
ar listamenn eins og Radiohead, U2,
Pearl Jam, Neil Young, System of a
Down og Green Day. Þessar hljóm-
sveitir höfðu allar verið líklegir
kandidatar eins og önnur bönd sem
eru þarna inni,“ segir Kári um þær
sveitir sem hefðu hugsanlega spilað
á tónleikunum hefðu þeir orðið að
raunveruleika.
Stórtónlistarmenn á borð við
Madonnu, Beastie Boys, Genesis,
Smashing Pumpkins og The Police
munu spila á tónleikunum svo fátt
eitt sé nefnt. Fjöldi stórsveita leika
á hverjum stað og því á hreinu að
um stórtónleika hefði verið að ræða
hefði Ísland bæst í hópinn sem átt-
unda landið.
„Þetta er nefnilega ekkert grín og ég
vona bara að seinagangur Íslendinga í
þessu máli komi ekki niður á okkur í
framtíðinni,“ segir Kári að lokum.
asgeir@dv.is
Rokkarinn Marilyn Manson þrífst
á því að sjokkera fólk eins og greini-
lega kemur fram í myndbandinu
við nýjasta lag hans, Heart Shaped
Glasses af plötunni Eat me, Drink
me. Myndbandið hefst á atriði þar
sem Manson og nítján ára gömul
kærasta hans eru í sveittum sam-
förum. Það lítur út fyrir það að Evan
Rachel sé að fá fullnægingu þar sem
hún liggur nakin með varir Man-
sons límdar við líkama sinn. Áður
en sjálft myndbandið fer í gang birt-
ist viðvörun þar sem varað er við
því að myndbandið sé ekki við hæfi
fólks undir sextán ára aldri. Í kjöl-
farið kemur svo sjokkerandi atriði
þar sem Wood og Manson keyra um
á ofsahraða í blæjubíl, á meðan tek-
ur söngvarinn klámfengnar mynd-
ir af leikkonunni og leikur sér með
hárbeittan útskurðarhníf. Því næst
sést til svartmálaða söngvarans og
nýju elskunnar þar sem þau veltast
um á rúmi sem er þakið gerviblóði. Í
lokin keyrir undarlega parið logandi
blæjubíl sín út af veginum og hrapar
til dauða. Það er því augljóst að hér
er um að ræða gríðarlega dramatíska
ástarsögu sem endar með hremm-
ingum og eins og Manson einum er
lagið hefur honum greinilega tekist
ætlunarverk sitt, að fara aðeins yfir
strikið og hneyksla áhorfendur.
krista@dv.is
Ætlar ekki
í fangelsi
Rapparinn Busta Rhymes fór nýlega
fyrir rétt, en hann var kærður fyrir
tvær líkamsárásir og að keyra undir
áhrifum áfengis. Rapparanum var
boðið að sitja ár í fangelsi fyrir glæp-
ina og borga 1500 dollara sekt, en
hafnaði hann því tilboði saksóknara.
Lögmaður rapparans Scott Leemon
hefur sagt opinberlega að kærurnar á
hendur Busta séu ekkert nema hefnd
af hálfu lögreglunnar, þar sem Busta
hafi verið ósamvinnuþýður við rann-
sókn á skotárás í fyrra, þar sem lífvörð-
ur hans var myrtur.
Stærstu tónleikar
Íslandssögunnar fyrir bí
Reykjavík verður
ekki í hópi þeirra
borga sem munu
hýsa risatónleikana
Live Earth. Kári
Sturluson sendi-
herra Live Earth á
Íslandi segir að
hljómsveitir á borð
við U2, Readiohead
og Pearl Jam hefðu
jafnvel spilað á
tónleikunum.
Kári Sturluson sendiherra Live
Earth á Íslandi Furðar sig á seinlegum
og slökum vinnubrögðum ríkisstjórnar-
innar varðandi málið.
Stórtónleikar
Ætli stemmingin á Klambratúni
hefði orðið eitthvað í þessum dúr.
Tom Yorke og Bono Kári segir jafn
líklegt að annað hvor þeirra hefði komið
eins og aðrir listamenn.
Marilyn Manson
Veltir sér uppúr blóði í myndbandinu.
Einungis nítján ára
Evan Rachel sést fá fullnægingu
í upphafsatriðinu.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Á
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STÆRSTA ORRUSTAN ER INNRI BARÁTTAN
Fyrsta stórmynd sumarsins
HEIMSFRUMSÝNING
SPIDERMAN 3 kl. 6 - 8 - 10.40
NEXT kl. 6 - 9 - 11
B.I. 10 ÁRA
B.I. 14 ÁRA
SPIDERMAN 3 kl. 5 - 8 - 11
SPIDERMAN 3 SÝND Í LÚXUS kl. 5 - 8 - 11
NEXT kl. 5.45 - 8 - 10.15
PATHFINDER kl. 5.45 - 8 - 10.15
HILLS HAVE EYES 2 kl. 10.30
PERFECT STRANGER kl. 8
TMNT kl. 4 - 6
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45
B.I. 10 ÁRA
B.I. 14 ÁRA
B.I. 16 ÁRA
B.I. 18 ÁRA
B.I. 16 ÁRA
B.I. 7 ÁRA
SPIDERMAN 3 kl. 5.30 - 8.30 - 11.20
PATHFINDER kl. 8 - 10.15
INLAND EMPIRE kl. 5.45 - 9
HILLS HAVE EYES 2 kl. 6 - 8 - 10
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
B.I. 10 ÁRA
B.I. 16 ÁRA
B.I. 16 ÁRA
B.I. 18 ÁRA