Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Page 4
föstudagur 8. júní 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Oftúlkaði
orð ráðherra
„Hannes er mikill baráttu-
maður og hann vill sjá veginn
tvöfaldaðan. Ég held hins vegar
að hann hafi aðeins oftúlkað orð
mín,“ segir Kristján Möller sam-
gönguráðherra.
Hannes Kristmundsson,
garðyrkjubóndi í Hveragerði,
er mikill baráttumaður þess að
Suðurlandsvegur verði breikkað-
ur í 2+2. Í samtali við blaðið lýsti
hann því yfir að samgönguráð-
herra hafi lofað sér því að ráðist
verði í tvöföldun Suðurlandsveg-
ar strax. Kristján segir ekki rétt
að hann hafi lofað þessu og telur
að Hannes hafi lagt of mikinn
þunga í orð sín.
Braut ekki gegn
jafnræðisreglu
Bogi Nilsson ríkissaksóknari
hefur komist að þeirri niður-
stöðu að ekki sé ástæða til að
rannsaka embættisfærslur Har-
aldar Johannessen ríkislögreglu-
stjóra vegna meðferðar ákæru-
valdsins gegn Jóhannesi Jónssyni
í Bónus vegna Baugsmálsins.
Jóhannes taldi að starfsmenn
ríkislögreglustjóra hefðu brotið
gegn jafnræðisreglu þegar hann
var ákærður en ekki Jón Gerald
Sullenberger þegar ákærur voru
upphaflega gefnar út í Baugs-
málinu. Bogi Nilsson segir að
staða þeirra tveggja hefði verið
ólík og því ekki brotið gegn jafn-
ræðisreglu. Settur saksóknari
sem tók við málinu ákærði Jón
Gerald síðar, ákærunni var vísað
frá í Héraðsdómi Reykjavíkur en
Hæstiréttur vísaði henni aftur
þangað til efnislegrar meðferðar.
Ráðgjafinn þekkti
ekki breytingarnar
Ráðgjafakerfið sem Strætó bs.
býður notendum sínum að nota
til að finna hagkvæmustu leiðir
til að komast á milli staða gaf upp
úreltar niðurstöður í einhverjum
tilfellum eftir að nýja leiðakerfið
tók gildi í byrjun vikunnar. Var þá
í nokkrum tilfellum bent á leið
sem var hætt að ganga.
Óánægður notandi stræt-
isvagna hafði samband við
blaðið eftir breytingarnar þar
sem leiðaráðgjöf fyrirtækisins á
netinu hafði ekki verið breytt til
samræmis við nýtt leiðakerfi. Sá
sagðist vera orðinn alveg átta-
villtur á þessum tíðu breytingum
hjá strætó. Þar var honum bent
á að taka þá leið sem hann var
vanur að taka en hafði þá verið
lögð niður. Eftir að hann komst
að því hvaða leiðum væri best að
ferðast með kom í ljós að hann
þyrfti að taka þrjá vagna í stað
tveggja sem dugðu til að komast
á leiðarenda áður.
Íslensk heimili borga fjórfalt hærra verð fyrir raforku en fyrirhugað álver í Helguvík.
Að sögn Sigurðar Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, ætti notkunin að duga
170 þúsund heimilum fyrir raforku á ársgrundvelli. Árni Finnsson, formaður Náttúru-
verndarsamtaka Íslands, gagnrýnir menn fyrir að koma ekki hreint fram í fyrirhuguð-
um álversframkvæmdum.
En vegna eðlis raforkuframleiðsl-
unnar þá er mjög eðlilegt að talsverð-
ur munur sé á verði til stóriðju og al-
mennings.
„Hinn almenni notandi er að
greiða um átta krónur fyrir kílóvatts-
stundina,“ segir Sigurður Friðleifsson,
framkvæmdastjóri Orkuseturs, þegar
hann er spurður um verð á raforku til
heimila landsins. Fram hefur komið í
fjölmiðlum að Norðurál greiði Orku-
veitu Reykjavíkur 2,1 krónu á kíló-
vattsverð á meðan grænmetisbænd-
ur greiða um fjórar krónur. Heimilin
borga svo fjórfalt hærra verð fyrir raf-
orkuna en Norðurál fyrir orkuna til
álversins.
Mikill munur er á verði á raforku
til heimila og til stórnotenda eins og
álvera og grænmetisbænda og segir
Sigurður að munurinn sé varla sam-
anburðarhæfur einfaldlega vegna
þess að notkun heimilanna er mjög
óstöðug.
Munurinn eðlilegur
„Heimili landsins nota að meðal-
tali 4,5 megavött á ári en notkunin er
hins vegar alls ekki jöfn. Á nóttunni er
notkunin lítil sem engin en í hámarki
um eftirmiðdaginn. Þar sem rafmagn
er ekki hægt að geyma þá þarf fram-
leiðslan að geta annað hámarksnotk-
un en ekki bara meðalnotkun. Þess
vegna þyrfti miklu stærri virkjun til
að skaffa rafmagn í þessi 170 þúsund
hús og nýtingin yrði því talsvert slak-
ari,“ segir Sigurður.
Stór samningur
Sigurður vill meina að fráleitt sé að
tala um að heimili niðurgreiði raforku
til stóriðju. „Raforkuverð til almenn-
ings hefur farið lækkandi að raunvirði
undanfarin ár samhliða stóriðjuvæð-
ingu. Ef heimili og álver yrðu keyrð á
olíu væri kannski óeðlilegt að stóriðja
fengi hagstæðara verð. En vegna eðl-
is raforkuframleiðslunnar þá er mjög
eðlilegt að talsverður munur sé á
verði til stóriðju og almennings. Það
er varla hægt að tala um sambærileg-
an markað,“ segir Sigurður og bætir
við að ekki megi gleyma því að í svona
fámennu landi með dreifða byggð þá
sé stóriðja forsenda fyrir byggingu á
stórum og hagkvæmum virkjunum.
„Fyrir vikið verður raforkukerfið öfl-
ugra og traustara og allir njóta góðs
af því,“ segir Sigurður.
Sigurður segir að samningurinn
sem Orkuveitan gerði við Norður-
ál sé gríðarlega stór. Til samanburð-
ar segir hann að raforkan gæti séð
170 þúsund heimilum fyrir raforku
á hverju ári en á Íslandi eru einung-
is 110 þúsund heimili. „Þetta er ekki
gígantískt magn ef það er borið sam-
an við Kárahnjúkavirkjun sem þarf
690 megavött. Ef þetta er borið sam-
an við Blönduvirkjun er þetta 3/4 af
heildarframleiðslu hennar, en hún
hefur framleiðslugetu upp á 150 þús-
und megavött.“
Álverið hlýtur að stækka
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, segist
hafa áhyggjur af þeirri óvissu sem
ríkir í álversframkvæmdum á Ís-
landi. „Þetta álver sem fyrirhugað er
í Helguvík mun þurfa mikla orku og
segir Árni að ekki sé ljóst hvaðan ork-
an eigi að koma, en gert er ráð fyrir
að framleiðslugeta álversins verði
250.000 tonn. „Svona lítið álver mun
líklega þurfa að stækka og hvert ætla
menn að sækja orkuna þá?“ spyr Árni
og bendir á að framleiðslugeta álvera
megi helst ekki vera undir 500.000
tonnum á ári, eigi það að borga sig.
Árni kveðst undrast það af hverju
ekki sé hægt að koma hreint fram við
almenning og vill meina að verið sé
að koma aftan að fólki, því þessi álver
þurfi að vera miklu stærri heldur en
sagt er.
Árni segist hafa áhyggjur af því að
fara eigi út í frekari virkjun á Hellis-
heiði. „Samkvæmt þessum drögum
að samningi á að gjörnýta orkuna á
Hellisheiði og okkur líst illa á það, því
þar er búið að virkja mjög mikið. Við
höfum verið andvíg þessari stóriðju-
stefnu því smám saman er verið að
eyðileggja íslenska náttúru. Þetta á
ekki einungis við um álverið í Helgu-
vík því álverið á Húsavík á einnig að
vera 250 þúsund tonn,“ segir Árni
og vill meina að mikið kapphlaup sé
um nýtingu náttúruauðlinda. „Það
virðist ekki einungis vera kapphlaup
um orku heldur er einnig kapphlaup
um mengunarkvótann. Kapphlaup-
ið virðist vera á milli Alcan, Alcoa og
Norðuráls í þeim efnum. Til dæm-
is er Alcan að leggja inn pöntun fyr-
ir Þorlákshöfn án þess að hafa nokk-
uð annað en óljósar áætlanir um að
byggja álver,“ segir Árni.
Einar Þór SigurðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Heimilin BORga
fjóRfalt HæRRa veRð
raforka
sigurður segir að hátt verð á rafmagni
megi skýra með óreglulegri notkun á því.
orkuveita reykjavíkur
íslendingar greiða um átta krónur fyrir hverja kílóvattsstund.
Ferðaskrifstofur hafa grætt á vindi og rigningu að undanförnu:
Allar öfgar í veðri eru góðar
„Allar öfgar í veðri eru góðar,“
segir Hildur Gylfadóttir, sölustjóri
Terra Nova. „Við finnum vel fyrir
auknum áhuga fólks þegar veðrið er
ekki eins og helst væri á kosið. Und-
anfarna daga hefur rigningin greini-
lega spilað inn í og við fáum mun
fleiri bókanir en áður. Fólk vill þá
komast í sólina. En svo er það líka
þannig að þegar sólin er komin æs-
ist fólk upp og vill enn meiri sól.“
„Við seljum miklu meiri ís þeg-
ar það er sól,“ segir Elísabet Heiða
Stefánsdóttir sem vinnur í Snælandi
við Laugaveg. „Það var alveg yndis-
legt veður á hvítasunnunni og röð
út á götu. Það er sjaldan röð þegar
rignir. Við finnum alveg fyrir því að
það er meira að gera þegar það er
gott veður.“
Dagný Lind Jakobsdóttir, starfs-
stúlka í ísbúðinni við Ingjólfstorg,
segist finna mikinn mun á sölunni
eftir því hvernig viðrar. „Það verð-
ur allt brjálað þegar það er gott veð-
ur og alveg endalaus biðröð. Það
koma samt alltaf einhverjir, jafnvel
þótt veðrið sé vont. Flestir kaupa
bragðaref eða sjeik.“
Jakob Ómarsson og Una Gunn-
arsdóttir sátu á Ingólfstorgi um há-
degisbilið í gær. Jakob var í hádeg-
ishléi í vinnunni en Una nýkomin
frá tannlækni. Þau koma og setjast
niður ef það er gott veður. „Ég kaupi
frekar ís þegar það er gott veður.
Það er samt svolítið skemmtilegt að
Íslendingar virðast láta fátt stoppa
sig,“ segir Jakob. Una bætir við: „Já,
maður klæðir sig bara eftir veðri.“
Guðlaug Jónsdóttir segir að veðrið
sé ekkert til að kippa sér upp við. „Ef
það rignir ekki!“ skýtur sessunautur
hennar inn í en Guðlaug mótmæl-
ir: „Maður getur þá bara verið með
hettuna á sér.“
„Ég reyni að fara á staði þar
sem er hlýrra en hér og til að stytta
skammdegið,“ segir Jóhanna Þor-
steinsdóttir og segist halda að veðrið
hafi áhrif á ferðaval þeirra sem ætla
til útlanda. Oftast fer hún til Egypta-
lands með manninum sínum enda
er hann þaðan. „Yfirleitt förum við
út á veturna og erum heima þegar
veðrið er einna skást. Í ágúst ætlum
við síðan að fara til Kanaríeyja.“
erla@dv.is
Dagný Lind Jakobsdóttir
Það verður allt brjálað í ísbúðinni hjá dagnýju þegar sólin skín.