Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Síða 28
Í
slensku leiklistar-
verðlaunin, Grím-
an, voru fyrst veitt
sumarið 2003. Þau
hafa síðan verið veitt
árlega. Næstkom-
andi föstudag verð-
ur Gríman því veitt í
fimmta sinn en her-
legheitin fara að þessu sinni
fram í Íslensku óperunni. For-
vitnilegt er að skoða hverjir hafa
oftast orðið fyrir valinu undan-
farin fjögur ár, en nokkrir hafa
hlotið þessa viðurkenningu oft-
ar en einu sinni. Þeirra á meðal
eru Baltasar Kormákur og Hilmir
Snær sem hafa hlotið verðlaunin
í tvígang. Þegar verðlaunahafar
þessara fjögurra ára eru skoðað-
ir kemur í ljós að leikarar og leik-
konur ársins koma oftast úr sýn-
ingum á vegum Þjóðleikhússins.
• Sýning ársins: Athygli vekur að
undanfarin þrjú ár hefur sýning
ársins komið frá Þjóðleikhúsinu.
Leiksýningin Pétur Gautur vann í
fyrra en í ár eru eftirfarandi sýn-
ingar tilnefndar: Dagur vonar,
Killer Joe, Leg, Mr. Skallagríms-
son og Ófagra veröld. Forvitnilegt
verður að sjá hvort leiksýningin
Leg hlýtur verðlaunin og þar með
Þjóðleikhúsið, fjórða árið í röð.
• Leikstjóri ársins: Baltasar Kor-
mákur hlaut Grímuna sem besti
leikstjórinn árin 2004 og 2006.
Stefán Jónsson og Benedikt Er-
lingsson fengu Grímuna 2003 og
2005 en þeir eru báðir tilnefndir
í ár ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni,
Jóni Páli Eyjólfssyni og Stefáni
Baldurssyni.
• Leikari ársins í aðalhlutverki:
Hilmir Snær hefur orðið þess
heiðurs aðnjótandi að hafa
hlotið Grímuna tvisvar í þess-
um flokki; 2003 og 2006. Hann
verður einnig að teljast líkleg-
ur handhafi Grímunnar í ár en
hann er tilnefndur fyrir tvö hlut-
verk; annars vegar fyrir hlutverk í
leiksýningunni Amadeus og hins
vegar fyrir hlutverk sitt í Hjóna-
bandsglæpum.
• Leikkona ársins í aðalhlutverki:
Ljóst er að nýr handhafi Grím-
unnar verður krýndur í þessum
flokki því engin af þeim leikkon-
um sem tilnefndar eru hafa unn-
ið Grímuna áður. Ólafía Hrönn
Jónsdóttir hlaut hana í fyrra en
sigurvegarar í þessum flokki hafa
í þrígang komið af fjölum Þjóð-
leikhússins. Elva Ósk Ólafsdótt-
ir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ilm-
ur Kristjánsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir og Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir eru tilnefndar í ár.
• Leikari ársins í aukahlutverki:
Ingvar E. Sigurðsson hlaut Grím-
una í fyrra en Þröstur Leó Gunn-
arsson árið þar á undan. Þröstur
Leó gæti fengið Grímuna aftur í
ár fyrir aukahlutverk sitt í leik-
sýningunni Killer Joe. Aðrir til-
nefndir hafa ekki hlotið Grímuna
áður en þrisvar hafa Grímuhafar
í þessum flokki komið úr Þjóð-
leikhúsinu.
• Leikkona ársins í aukahlut-
verki: Brynhildur Guðjónsdóttir
hlaut verðlaun í þessum flokki í
fyrra, en hún hefur einnig feng-
ið Grímuna fyrir aðalhlutverk
í Edith Piaf árið 2004. Líkt og í
karlaflokki hafa verðlaunahaf-
ar í þessum flokki þrisvar kom-
ið af fjölum Þjóðleikhússins. Nýr
handhafi verður krýndur í ár, en
engin af þeim leikkonum sem til-
nefndar eru í ár, hafa unnið þessi
verðlaun áður.
Þegar aðrir verðlaunaflokkar eru
skoðaðir má sjá að Björn Berg-
steinn Guðmundsson hefur þri-
svar sinnum hlotið Grímuna fyr-
ir lýsingu, en það voru árin 2003,
2005 og 2006. Hann er einnig til-
nefndur í ár. Þá hefur Filippía I.
Elísdóttir í tvígang hlotið Grím-
una fyrir búninga ársins en hún
er líka tilnefnd að þessu sinni.
Erna Ómarsdóttir hefur fengið
dansverðlaun ársins og þá hefur
Grétar Reynisson tvisvar hlotið
verðlaun fyrir bestu leikmynd-
ina en þau eru bæði meðal til-
nefndra nú.
baldur@dv.is
föstudagur 8. júní 200728 Helgarblað DV
Fá Grímuna
aftur og aftur
Gríman, uppskeruhátíð leiklistarfólks, verður haldin í Íslensku óperunni um helgina. Margir eru tilnefndir
en fáir útvaldir. Þó nokkrir hafa ýmist verið tilnefndir áður, eða hlotið viðurkenninguna oftar en einu sinni.
Ilmur Kristjánsdóttir
Er tilnefnd til verðlauna
sem besta leikkona í
aðalhlutverki.
Gríman
eftirsótta
Verður
brátt veitt í
5. skiptið.
Baltasar Kormákur
Hefur verið valinn besti
leikstjórinn tvisvar sinnum
Hilmir Snær
Var valinn besti leikarinn 2003 og 2006.