Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Side 30
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálf-
ari var ekki sáttur við einbeitingarleysi
sinna manna í föstum leikatriðum.
„Þetta er bara einbeitingarleysi. Það
er alveg á hreinu hverjir eiga að dekka
menn í þessum leikatriðum. Það eru
bara menn sem eru að gleyma sér,“
sagði Eyjólfur eftir leikinn.
„Svo til að kóróna þetta þá var
fjórða markið þeirra rangstaða og
þetta er ekki að falla okkar megin
eins og er. Markið í lokin, svona til að
kóróna allt saman, fer væntanlega í
sögubækurnar. Þeir heyrðu flaut og
enginn vissi neitt, ekki einu sinni
framherjinn þeirra.“
Eyjólfur sagðist reikna með því
að hann yrði áfram landsliðsþjálfari
þrátt fyrir dapurt gengi að undan-
förnu. „Já, ég reikna fastlega með því
og eins og ég sagði þá er mikið verk
fram undan. Það eru þrír máttar-
stólpar sem verða tilbúnir í haust og
það munar um minna.
Ef ég á að taka eitthvað jákvætt
út úr þessum leik þá vorum við með
marga unga leikmenn sem voru að
stíga sín fyrstu skref og voru spræk-
ir og voru að standa sig með prýði,“
sagði Eyjólfur að lokum.
Theodór maður leiksins
Theodór Elmar Bjarnason var
kosinn maður leiksins af Svíum og
fékk að launum forláta kristalsvasa.
„Það er náttúrulega gaman en það
fer lítið fyrir hamingju eftir svona
leik. Við vorum sprækir og mik-
ið með boltann en þetta voru mik-
il varnarhlaup og svo kom kafli þar
sem við fáum á okkur þrjú eða fjög-
ur mörk og það drap algjörlega leik-
inn fyrir okkur. Emil skapaði sér gott
færi og Isakson varði vel frá Brynj-
ari þannig við fengum færi og ef við
hefðum jafnað þá hefði þetta ver-
ið allt annað. Þetta var vissulega
svekkjandi og leiðinlegt.
Við ætluðum að liggja til baka og
leyfa þeim að spila, við vissum að
Melberg og fleiri eru ekki rosalega ör-
uggir á boltanum en við gáfum þeim
alltof mikinn tíma þannig að þeir
gátu fundið framherjana sína bak við
okkar varnarmenn og þetta var alltof
auðvelt fyrir þá,“ sagði Theodór eftir
leikinn.
Verð að taka þetta á mig
Ívar Ingimarsson var heiðarleg-
ur í sínum svörum þegar hann var
spurður um fimmta markið sem fer
trúlega á spjöld sögunnar sem eitt
skrýtnasta mark sem skorað hefur
verið í landsleik.
„Ég get bara sagt eins og ég sá
þetta, ég vinn boltann og svo heyri
ég ekki neitt. Það standa allir kyrr-
ir þegar ég lít upp, dómarinn gerði
einhverja bendingu og labbaði nið-
ur eins og það sé verið að taka auka-
spyrnu og ég gaf bara inn í teiginn til
að taka aukaspyrnu.
Við klúðruðum því, ég lít á sjálf-
an mig og verð að taka stóra sök af
þessu. Annað markið er eftir horn.
Boltinn fer yfir einhvern, lendir í
brjóstinu á mér og skoppar út í teig
og þeir skora. Fjórða markið taldi ég
mig leika hann rangstæðan og svo
fimmta markið.
Fyrir mig þá er þetta það erf-
iðasta og versta sem ég hef lent í á
mínum fótboltaferli svo ég segi al-
veg eins og er. Maður verður bara
að reyna að koma út úr þessu eins
og maður. Ég get ekki einu sinni séð
broslegu hliðina á fimmta markinu,“
sagði niðurlútur Ívar Ingimarsson
eftir leikinn.
Aginn var alltaf til staðar
Grétar Rafn Steinsson var ekki
sáttur í leikslok og lái honum hver
sem vill. „Ég er vanur að spila á þess-
um hraða en þetta er miklu erfiðara
en fólk gerir sér grein fyrir. Það vant-
ar þrjá til fjóra sterka leikmenn og þá
verður þetta alltaf erfitt. Við fengum
klaufamörk á okkur, gerðum mistök
og þeir refsuðu. Þá er þetta orðið svo
erfitt og á brattann að sækja.“
Grétar Rafn bætti við að Sví-
ar hefðu gert úti um leikinn á ell-
efu mínútna kafla. „Aginn var alltaf
til staðar, við vorum með leikmenn
þarna inni á með reynslu og við vit-
um að ef við ætlum að hleypa þessu
upp í vitleysu þá verður þetta vit-
leysa. En ellefu mínútna kafli drepur
þetta fyrir okkur.
Við vorum að fá pláss á vellinum
til þess að fá boltann, spila honum,
setja boltann upp í hornin fyrir aft-
an varnarmennina og eigum að nýta
okkur það betur. Það þarf færri snert-
ingar á boltann og spila boltanum
því við getum alveg spilað fótbolta.
Það er svo svekkjandi að þetta var
nánast eins og á laugardaginn.
Við erum ekki að láta boltann
ganga því við erum að sparka honum
frá okkur hvað eftir annað. Við þurf-
um að halda boltanum betur og vera
agaðri í varnarleiknum.
Sumir vilja fá boltann langan,
aðrir vilja halda honum. Þetta verð-
ur alltaf erfitt þegar slitnar svona
á milli varnarinnar og miðjunnar,
við drepum okkur á ellefu mínútna
kafla, annars fannst mér skipulag-
ið gott þess á milli, þó að það sé erf-
itt að segja það þegar við töpum 5-0
en samt sem áður erum við að gera
ágætishluti þannig að þetta er bara
sárt,“ sagði Grétar.
benni@dv.is
föstudagur 8. júní 200730 Sport DV
Íslensku leikmennirnir voru niðurlútir eftir
útreiðina á miðvikudaginn. Eyjólfur Sverr-
isson, landsliðsþjálfari var óánægður með
einbeitingarleysið í föstum leikatriðum.
EYJÓLFUR
ÆTLAR EKKI
AÐ SEGJA
AF SÉR
Maður leiksins theodór Elmar Bjarnason
var útnefndur maður leiksins af svíum og
fékk forláta kristalsvasa fyrir vikið.
Mátti sín lítils grétar rafn átti ekki sinn
besta landsleik gegn svíum og var
ósáttur við klaufamörkin sem íslenska
liðið fékk á sig.
Óánægður Eyjólfur
var ósáttur við
einbeitingarleysið í
föstum leikatriðum.
Hann ætlar þó að sitja
sem fastast þrátt fyrir
slakt gengi að
undanförnu.