Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Qupperneq 45
Meistarinn
Sigurlaug M. Jónasdóttir Matgæðingurinn
DV Helgarblað föstudagur 8. júní 2007 45
„Þetta er matur fyrir stelpukvöld:
góð salöt, andlitsmaski, hvítvín og
ljúft spjall með hlátrasköllum á
milli,“ segir Sigurlaug M. Jónasdótt-
ir dagskrárgerðarkona og matgæð-
ingurinn að þessu sinni. Þar tal-
ar óneitanlega kona með reynslu
því hún hefur starfað sem matar-
blaðamaður í gegnum árin. „Ég
man ekki nákvæmlega hvar ég fékk
þessar uppskriftir. Melónusalatið
fann ég einhvers staðar fyrir ein-
hverjum árum en aprikósusalatið
fann ég í einhverjum af þessum 170
matreiðslubókum sem ég á,“ seg-
ir matgæðingurinn sem auk bók-
anna á nokkuð af uppskriftum sem
hún hefur viðað að sér, til dæmis
með því að klippa þær út úr blöð-
um. „Ég hef samt ekkert gert mikið
af því en mæli náttúrlega með því
að fólk klippi þessar uppskriftir út,“
segir Sigurlaug og hlær. Hún segist
oft hafa gert þessi salöt og ekki ein-
ungis fyrir stelpukvöldin. „Ég ber
þau líka á borð fyrir fjölskylduna.
Melónusalatið með kjúklingnum er
til dæmis mjög barnvænt,“ segir Sig-
urlaug. Og hún fær gesti oft í mat.
„Þetta er svolítil árátta hjá mér. Mér
finnst svo ofboðslega gaman að fá
fólk í mat og áður en ég veit af er ég
búin að búa til veislu.“
Aprikósusalat
500 gr ferskar aprikósur
Ólífuolía til að steikja upp úr
2 msk hvítt balsamikedik.
Skerið aprikósurnar í báta. Hellið
olíu á pönnu
Og hitið vel. Svissið aprikósurnar í
nokkrar sekúntur
Og bætið balsamedikinu út í . Lát-
ið malla þar til safinn er gufaður upp.
Leggið apríkósurnar ofan á salat.
Mæli með salatblöðum, vorlauki,
góðum svörtum ólífum, fetaosti og
basil.
Melónusalat með kjúkling
100 gr spínat
500 gr kjúklingabringa, steikt
skinnlaus
100 gr parmesanostur
100 gr parmaskinku
200 gr vatnsmelóna
50 gr furuhnetur
199 gr fetaost
Handfylli af basil
Dressing
1 msk dijonsinnep
1 msk hunang
1 msk sítrónusafi
2 msk ólífuolía
salt og pipar
Hreinsið salatblöðin og leggið á
stórt fat. Skerið kjúklingakjötið og
melónuna í teninga, leggið á spínatið
ásmat parmaskinku.
Ristið furuhneturnar á þurri
pönnu.
Blandið dressinguna og hellið
yfir salatið og stráið furuhnetum yfir
ásamt basil.
Svo er hér að lokum andlitsmaski
með ferskum kryddjurtum (passar í
stelpuboðið)
2 msk hreint jógúrt
tsk af rósmaríni
tsk af steinselju
tsk af mintu
1-2 tsk haframjöl(..mmmmm)
Hrærið saman jógúrti og jurtum,
bætið haframjöli út í og hafið mauk-
ið þétt og blautt, svo það sé auðvelt að
bera það á andlitið.
Ég skora á Hlyn Sigurðsson,
framleiðanda „Fyrstu skref-
anna“ á Skjá einum, að vera
næsti matgæðingur. Hann hef-
ur sérstakt dálæti á frönskum
mat.
Chardonnay
Chardonnay þrúgan er upp-runnin í Búrgúndí í frakk-landi en hefur farið sigur-för um heiminn á undanförnum misserum.
Þetta er þrúgan í hvítu Búrgúndar-
vínunum og undirstaðan í kampa-
vínum. fyrir utan frakkland hafa vín-
gerðarmenn í Kaliforníu og Ástralíu
náð hvað bestum tökum á þrúg-
unni en í raun eru gerð góð
vín úr þessari þrúgu alls
staðar í veröldinni. nægir
þar að nefna ítalíu, spán,
nýja-sjáland, suður-afr-
íku, Chile, argentínu og
ungverjaland. Þrúgan
kallast Morillon í austur-
ríki.
Ástæður þessara miklu
vinsælda eru margvís-
legar. Þrúgan hefur
einstaka aðlögunar-
hæfni og hentar því
nánast hvar sem er.
Það er auðvelt að
rækta hana, hún gefur
vel af sér og víngerð-
armenn segja auðvelt
að vinna með hana.
Hún virðist henta í flestan jarðveg og
veðurfar og sjúkdómar bíta lítt á
henni. almenningur hefur líka
tekið henni fagnandi enda vín
úr Chardonnay afar aðgengi-
leg. smjör og hunang er ein-
kennandi fyrir Chardonnay vín
sem oft minna einnig á perur,
epli og sítrusávexti. Það er
óhætt að segja að
hagsmunir fram-
leiðanda og neyt-
enda fari vel sam-
an í Chardonnay
þrúgunni sem
hlýtur að teljast
vinsælasta hvíta
þrúgan.
Mjög algengt er
að vín úr Chard-
onnay þrúgunni
séu látin þroskast
og gerjast í eikart-
unnum sem hentar
þessari þrúgu einstak-
lega vel. Þannig má
nálgast „Búrgúndar-
bragðið“.
Ég prófaði 3 vín af handa-
hófi úr Chardonnay þrúg-
unni. PálMi jónAsson
vínsérfræðingur DV
Wolf Blass Yellow Label 2005
Þetta víngerðarhús var stofnað árið 1966 og er kennt
við stofnandann. Wolf Blass vínin hafa reynst mér
ágætlega undanfarin ár og þetta er engin undantekn-
ing. Liturinn eins og á fljótandi akaciu hunangi. talverð
angan af smjöri, perum, ferskjum og sítrusávexti. smá
vanillukeimur sem minnir á rjómakarmellu. Þroskaðir
ávextir í munni, ananas í bland við léttan sítrusávöxt
og gæn epli. jafnvel hunangsmelóna. frekar sætt vín,
þykkt með miklu bragði og lykt. Ljómandi gott vín sem
fær góð þrjú glös. Ekki skemmir verðið
fyrir. 1390 krónur.
Torres Gran Vina Sol 2005
torres fjölskyldan hefur komið að víngerð í
Penedés í norðausturhorni spánar síðan á 18. öld.
Þetta vín er úr Chardonnay (85%) og Parellada
(15%) og þroskast í frönskum eikartunnum í 5
mánuði. fölgult á lit með blómaangan og lykt af
smjöri, ferskjum og eikarvanillu. Bragð af sítrusá-
vöxtum, þroskuðu ástaraldini og
jafnvel ananas. frísklegt og ferskt,
sumarlegt og svalandi á góðu
verði. 1390 krónur
Patriarche Bourgogne 2003
Hafa framleitt vín í Búrgúndí frá árinu 1780.
smjör og ferskjur áberandi í nefi en í munni
perur, ferskjur og sítrusávextir. Ekki mjög flókið
en þægilegt og gott Chardonnay vín frá
Búrgúndí. 1590 krónur.
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt
Sigurlaug M.
Jónasdóttir
Salöt, spjall
og hlátrasköll