Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Side 59

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2007, Side 59
Naomi Watts eykur hróður sinn Leikkonan Naomi Watts er nú í viðræðum við kvikmyndafyrirtækið Bureau of Moving Pictures um að leika í kvikmynd, sem byggð er á bók Nightline- fréttaritarans Jims Wooten. Bókin fjallar um Gail Johnsons, suðurafríska konu sem ættleiddi barn með eyðni og ferðaðist út um allan heim með það til þess að vekja athygli á sjúkdómnum. Það er Keir Person, sem meðal annars átti hlut í handritinu að Hotel Rwanda sem ætlar að breyta bókinni í kvikmyndahandrit. Naomi Watts sést næst í kvikmyndinni Eastern Promises, eftir David Cronenberg, en hún hefur verið lítið í sviðsljósinu eftir kvikmyndina King Kong. Í dag er myndin Hostel 2 eftir leik- stjórann og Íslandsvininn mikla Eli Roth heimsfrumsýnd. Skiptar skoð- anir voru um fyrri myndina sem náði nokkuð óvænt mun meiri vinsældum en spáð var fyrir um. Gagnrýnendur skiptust nokkurn veginn í tvo hópa varðandi myndina. Annað hvort var hún dæmd sem enn ein hrollvekjan sem gerði bara út á viðbjóð á meðan aðrir sáu framhjá viðbjóðnum og töl- uðu um snilli Elis sem leikstjóra. Yfirþyrmandi viðbjóður Það er ljóst að Hostel 2 mun ekki gefa fyrri myndinni neitt eftir þeg- ar kemur að viðbjóði og hrottalegum pyntingarsenum. Eli hefur meira að segja lofað því í viðtölum að hún sé mun átakanlegri en fyrri myndin. Það virðist þó vera af þeim kvik- myndagagnrýnum sem er þegar hægt að finna um myndina á netinu að þarna sé á ferðinni mynd sem hafi upp á mun meira að bjóða heldur en bara viðbjóð. Margir hafa farið svo langt að segja að Hostel 2 sé hæglega ein besta hryllingsmynd seinni ára og betri en sú fyrri. Þá segir í nokkrum dómum að um sé að ræða einn besta leik sem sést hefur í hrollvekju af þessu tagi fyrr og síðar. Þetta er auðvitað mat fárra aðila og á almenningur eftir að leggja mat sitt á myndina enda besti dómstóllinn. Stelpurnar fá fyrir ferðina Í fyrstu Hostel-myndinni voru það þrír ungir karlmenn sem fóru með aðalhlutverkin og þar á meðal Eyþór Guðjónsson sem lék svo eftirminni- lega hinn alíslenska Óla. Allir fengu þeir hrottalega að kenna á því og að- eins einn lifði af en þess má til gamans geta að Eyþór er meðal framleiðenda Hostel 2. Í Hostel 2 eru það hins vegar þrjár stúlkur sem fara með aðalhlutverkin. Þrjár amerískar stúlkur eru saman í listnámi í Róm. Þær ákveða að skella sér í helgarferð til þess að dreifa hug- anum og slaka á. Þær hitta óvænt gull- fallega fyrirsætu úr einu af námskeið- unum þeirra sem er einnig á leið í ferðalag. Hún sannfærir amerísku vin- konurnar þrjár um að slást í för með sér í það sem hún segir vera draum- aferð. En eins og búast má við kemur allt annað á daginn. Eli Roth hefur heitið því að hann muni ekki gera Hostel 3 til þess að reyna að græða peninga eins og gerist því miður svo oft í kvikmyndabrans- anum. Þvert á móti hefur hann sagt að allt púðrið hafi farið í Hostel 2 og má því búast við öllu því besta sem þessi snjalli leikstjóri hefur fram að færa. asgeir@dv.is Segir Knocked Up stolna Kanadíski blaðamaðurinn Rebecca Eckler hefur farið í mál við Universal Studios og sakar fyrirtækið um brot á höfundarrétti. Segir Rebecca að nýjasta kvikmynd fyrirtækisins, Knocked Up sé byggð á bók hennar, Knocked Up: Confessions of a Hip Mother to Be. En í bókinni fjallar Rebecca um þegar hún var skemmt- anaóð ung kona, sem varð óvænt ólétt. „Bæði bókin og kvikmyndin fjalla um eitt ástríðufullt kvöld og þá níu mánuði sem á eftir fylgja. En það er ekki það eina. Í myndinni er stúlkan sjónvarps- fréttamaður, en blaðamaður í bókinni,“ segir Rebecca handviss í sinni sök Leikur blaða- mann í Írak Leikarinn Matt Damon hefur ákveðið að slást enn á ný í för með leikstjóranum Paul Greengrass. Greengrass hefur í hyggju að leikstýra kvikmynd byggðri á bókinni Imperial Life in the Emerald City. Bókin fjallar um ástandið í Írak og er skrifuð af blaðamanni Washington Post, Rajiv Chandrasekar- an. Damon leikur aðalhlutverkið í myndinni, en um þessar mundir er verið að yfirfæra bókina í kvikmynda- handrit. Greengrass hefur áður leikstýrt Damon í kvikmyndunum um njósnarann Jason Bourne. SAMEINAST GEGN NÝJUM ANDSTÆÐINGI Kvikmyndin Hostel 2 eftir Íslandsvininn Eli Roth er frumsýnd um helgina í Smárabíói, Laugarásbíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. föStUDaGUR 8. JúNÍ 2007DV Bíó 59 Leikur ein- mana t.A.T.u- aðdáanda Leikkonan Mischa Barton hefur verið fengin til þess að leika í næstu kvikmynd Rolands Joffes, Finding t.A.T.u og hefjast tökur á myndinni í Moskvu í lok mánað- arins. Það er fagtímaritið The Variety sem greinir frá þessu, en kvikmyndin fjallar um einmana unga stúlku í Moskvu sem eign- ast vinkonu í borginni út frá sameiginleg- um áhuga þeirra á rússnesku stúlknasveit- inni t.A.T.u. Kvikmyndin er byggð á bók rússneska rithöfundarins A. Mitrfanov, t.A.T.u. come back. Ásamt Barton leika í kvikmyndinni Shantel VanSanten, Anton Yelchin og Alex Kaluzhsky. Bjargaði lífi Kvikmyndastjarnan Cuba Gooding Jr. sýndi það og sannaði að honum væri meira til lista lagt en leiklistin þegar hann bjargaði manns- lífi í síðustu viku. Cuba var staddur á bílastæði við veitingastað í Hollywood, þegar alblóðug- ur maður kom að honum og tilkynnti honum að hann hefði verið skotinn. Cuba hljóp þá til og náði í handklæði frá veitingastaðnum til þess að leggja á sár mannsins og í framhaldi af því veifaði hann til sín lögreglubíl sem átti leið framhjá. Þá beið hann ásamt lögreglufólki eftir að sjúkrabíll mætti á svæðið. Það voru vitni að atburðunum sem sögðu blaðamanni New York Daily News frá málinu en sjálfur hefur Gooding ekkert tjáð sig um það. Blaðafulltrúi hans hefur hins vegar staðfest frásögn þeirra sem voru á svæðinu. Fórnarlambið var skotið í hálsinn og bíður nú bata á sjúkrahúsi í Los Angeles. EKKI BARA VIÐBJÓÐUR Stelpur í aðalhlutverki Í fyrri myndinni fengu strákarnir að kenna á því en nú er komið að stelpunum. Eli Roth á tökustað Er sagður fá það allra besta út úr leikurum í myndinni. Richard Burgi Þykir standa sig vel í hlutverki todds.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.