Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 19
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 19 Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra Vill að fólk fái annað tækifæri eftir gjaldþrot. Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins og lögmaður, ætlar að leggja fram frumvarp um breytingu á gjaldþrotalögunum verði ríkisstjórnin ekki fyrri til. Honum finnst ótækt hvernig fólk er neytt út úr samfélaginu við gjaldþrot, hann segir ekki betra þegar fólk er þrælar lánardrottna og lifir langt undir fátæktarmörkum. „Fólk getur lent í vandræðum af ýmsum ástæðum og verði það gjald- þrota er það neytt út úr þjóðfélaginu. Ég tel því nauðsynlegt að breyta gjald- þrotalögunum,“ segir Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins og lögmaður. Jón telur eins konar greiðsluað- lögun eiga að vera möguleika fyrir þá sem lenda í alvarlegum greiðslu- erfiðleikum. Þannig myndi dómstóll geta farið yfir stöðu viðkomandi og kveðið upp úrskurð um hvað hann er gjaldfær fyrir miklu af skuldunum. Jón segir þetta bæði hagsmuni þeirra sem lent hafa í erfiðleikum og þjóð- félagsins í heild. Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra lagði oft- ar en einu sinn fram frumvarp, sem óbreyttur þingmaður, um breytingu á gjaldþrotalögunum sem fela í sér greiðsluaðlögun og er það eitthvað sem Neytendasamtökin hafa bar- ist fyrir. „Ef ríkisstjórnin leggur ekki fram frumvarp um þetta efni ætla ég að gera það í haust. Það græðir eng- inn á því að kreista blóð undan nögl- um þegar búið er að kreista allt blóð í burtu,“ segir Jón. Hann segir að það verði að gera fólki kleift að rísa aftur á fætur án þess að ganga í gegnum þá niðurlægingu sem gjaldþrot er. „Áður fyrr var gjaldþrot hugsað til þess að menn gætu slétt úr vandræðunum og byrjað aftur.“ Jón minnir á að fólk geti auðveld- lega farið í gjaldþrot af ýmsum ástæð- um. Stundum þurfi ekki meira til en að fólk selji hlut sem það fær svo aldrei greitt fyrir en þurfi síðan að greiða af honum virðisaukaskatt sem það á ekki fyrir. Eins getur fólk farið út af sporinu vegna tímabundinna fé- lagslegra erfiðleika. Rjúfa fyrninguna auðveldlega Tíu ára fyrningartíma á dómkröf- um og skuldabréfakröfum segir Jón auðveldlega hægt að rjúfa, kröfuhaf- inn þurfi ekki annað en að hefja inn- heimtuaðgerðir að nýju. „Viðkomandi losnar aldrei úr vandanum ef kröfu- hafar vilja halda málunum áfram og rjúfa fyrninguna sem annars miðast við tíu ár,“ segir Jón. Jón segir furðulegt að íslensk stjórnvöld hafi staðið gegn greiðslu- aðlögun. „Það geta margir lögmenn staðfest að sá kröfuhafi sem erfiðast er að eiga við er ríkissjóður Íslands. Lög- menn og einstaklingar gefa eftir mik- ið af fjármunum en ríkisvaldið er ekki tilbúið að gefa neitt eftir jafnvel þó að skattar sem það er að innheimta séu ekkert nema pappírslegar tilfærslur,“ segir Jón og má þar til dæmis nefna skattaáætlanir sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum. Langt undir fátæktarmörkum Jón segir misjafnt hversu illa gjald- þrota einstaklingar eru settir í þjóð- félaginu. Sumir þeirra geta ekki átt nein kortaviðskipti, ekki einu sinni átt debetkort, en mismunandi sé hvern- ig lánastofnanir taki á málunum. Iðu- lega eru þeir sem gjaldþrota eru úr öll- um bankaviðskiptum. Jón bendir á að það sem geti þó verið öllu verra en að vera gjaldþrota sé að reyna að halda sig frá gjaldþroti og vinna fyrir skuldum sem sé algjör- lega glórulaust að vinna nokkurn tíma á. „Það eru oft einstaklingar í einka- rekstri sem engan veginn stendur undir sér og þeir eru komnir út í það að vinna bara fyrir lánardrottnana og á meðan gerir staðan ekkert annað en að versna. Þannig lifir fólk langt und- ir fátæktarmörkum, allt sem kemur inn fer til lánardrottna og í skattinn en það er enginn peningur eftir til að kaupa svo mikið sem hjól fyrir barn- ið á heimilinu,“ segir Jón. Í þessu sam- hengi bendir Jón á að í Danmörku hafi könnun sýnt að lífskjörin voru verst hjá þeim sem ráku einkafyrirtæki sem báru sig ekki, kjör þeirra hafi verið langt undir öllum viðmiðunarmörk- um um fátækt. „Það er alltaf betra fyr- ir fólk að gefast bara upp en að vinna launalaust eða fyrir lítið fyrir lánar- drottna.“ Gjaldþrota einstaklingar geta ekki átt neitt og verða helst að vinna svart, því að öðrum kosti getur ríkisvaldið tekið stóran hluta af laununum. Þeir sem reyna að vera á hinum almenna launamarkaði gefast oftast upp þeg- ar ríkisvaldið finnur þá og staldra því stutt við á hverjum vinnustað. hrs@dv.is FASTIR Í VIÐJUM SKULDA Félagsmálaráðherra vill úrræði hér á landi eins og þekkjast á hinum Norðurlöndunum: MARGFLUTT FRUMVARP UM GREIÐSLUAÐLÖGUN „Ég hef örugglega flutt í tíu skipti á þinginu frumvarp um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti svo fólk eigi þess kost að vinna sig út úr fjár- hagserfiðleikum,“ segir Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra. Aðspurð segist Jóhanna enn sömu skoðunar, hún vilji að hér á landi verði komið á sambærilegum úrræð- um og á hinum Norðurlöndunum þar sem boðið er upp á greiðsluað- lögun. Jóhanna telur nauðsynlegt að fólk fái leið til þess að vinna sig úr fjárhagsvandræðum, án þess að missa allar eignir sínar, þegar ekk- ert blasi við nema greiðsluþrot. Hún segir greiðsluaðlögun hafa gef- ist vel í löndunum í kringum okkur en hún snýst um að gera nokkurra ára greiðsluáætlun sem skuldara er gert að standa við gagnvart lánar- drottnum. „Þannig væri til dæmis hægt að fresta greiðslu skulda eða hluta þeirra eða fella niður vexti ef greiðandi hefur staðið sig í einhvern ákveðinn tíma. Hér hafa verið reynd- ar aðrar leiðir en á Norðurlöndunum en þær hafa dugað skammt, eins og frestun skattgreiðslna, því löggjöf- in hefur verið of þröng og nýst því of fáum,“ segir Jóhanna. Jóhanna telur áhuga fyrir greiðsluaðlögun vera að kvikna hér á landi og það metur hún meðal annars af samtölum við bankamenn af nýlegri ráðstefnu sem hún sat hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimil- anna. Eins telur hún viðskiptaráð- herra áhugasaman um málið. Hún telur hægt að hafa tvenns konar leið að greiðsluaðlögun, það er frjálsa þar sem samkomulag næst við lána- drottna en ef það gengur ekki eftir þyrfti að hafa aðlögunina þvingaða þar sem héraðsdómur skæri úr um greiðslugetu skuldara eftir gagngera endurskipulagningu á fjármálum þeirra. „Við þurfum úrræði fyrir fólk utan atvinnurekstrar, sem lendir í fjár- hagserfiðleikum, sem eru sanngjörn og réttlát. Það þurfa þó að vera ströng skilyrði um þetta og meta þarf hvert tilvik fyrir sig,“ segir Jóhanna aðspurð um hvort ekki sé hætta á að slík að- stoð yrði misnotuð. hrs@dv.is Jóhanna Sigurðardóttir Ef á yrði komið greiðsluaðlögun fyrir fólk í alvarlegum fjárhagserfiðleikum telur Jóhanna að meta þurfi vandlega hvert tilvik fyrir sig svo hjálpin yrði ekki misnotuð. „Hann segist gjarnan vilja fá tækifæri til þess að sitja í fangelsi í eitt ár ef hann fengi möguleika til þess að byrja upp á nýtt eftir það.“ „Ef ríkisstjórnin leggur ekki fram frumvarp um þetta efni ætla ég að gera það í haust. Það græð- ir enginn á því að kreista blóð und- an nöglum þegar búið er að kreista allt blóð í burtu.“ Jón Magnússon Segir danska könnun hafa sýnt að lífskjörin væru verst hjá þeim sem ættu einkafyrirtæki sem bæru sig ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.