Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 20
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200720 Fréttir DV HÓRDÓMUR EÐA HUNGURSNEYÐ Einn helsti andstæðingur Roberts Mugabe forseta Simbave hefur í ríkisfjölmiðlum verið bendlaður við kynlífshneyksli. Um er að ræða Pius Ncube erkibiskup rómversk- kaþólsku kirkjunnar í Bulawayo í Simbabve. Ncube hefur verið ötull við að gagnrýna Mugabe forseta og stjórnarhætti hans. Myndir hafa verið birtar í ríkisfjölmiðlum af Ncube í félagsskap konu. Fylg- ir sögunni að þær hafi verið tekn- ar með leynd á hótelherbergi þar sem Ncube dvaldi. Stjórnarandstaðan í Simbabve er í uppnámi vegna málsins og dagblaðið The Chronicle, mál- gagn stjórnarinnar í Bulawayo, birti níu myndir af meintu broti erkibiskupsins. Efasemdir um trúverðugheit Gæði myndanna sem birt- ar voru gefa ekki tilefni til trú- verðugheita og einu myndirnar sem eru óumdeilanlega af Ncubo sýna hann einan. Hinar eru svo ógreinilegar að ekki er með góðu móti hægt að fullyrða um hvern er að ræða. Myndirnar hafa fengið mikla dreifingu og birting þeirra hefur verið vel skipulögð. Þrátt fyrir að áhöld séu um áreiðanleika þeirra er talið að upp gætu vakn- að spurningar meðal stuðnings- manna hans varðandi framhald á stöðu hans sem eins helsta og óttalausasta gagnrýnanda Roberts Mugabe forseta. Vel skipulögð atlaga Pius Ncube var afhent stefna þar sem hann var sakaður um hór- dóm og því haldið fram að hann hefði átt í kynferðislegu sambandi við einkaritara á skrifstofu bisk- upsdæmisins. Stefnan var afhent af fulltrúa lögreglustjórans í Bula- wayo og með honum í för var hóp- ur blaðamanna og ljósmyndara frá ríkisfjölmiðlunum. Lögfræð- ingur Ncubes sagði að erkibiskup- inn myndi neita ásökunum. Alþjóðlegt orðspor Pius Ncube nýtur mikillar virð- ingar á alþjóðavettvangi. Hann hefur verið óþreytandi við að for- dæma Mugabe og ríkisstjórn hans fyrir mannréttindabrot og fyrir vikið hefur hann verið undir smá- sjá leyniþjónustu landsins og verið fórnarlamb ofsókna. Einnig hefur aldraðri móður hans verið hót- að. Ncube hefur lýst Mugabe sem illum og spilltum einræðisherra og haft á orði að hann bæði fyrir dauða hans, því það sé eina leiðin til að binda enda á harðstjórnina. Í huga margra skipar hann sama sess í Simbave og Desmond Tutu erkibiskup gerir í Suður-Afríku og margir álíta að hann sé sá eini sem hugsanlega gæti leitt landsmenn í andstöðu við ríkisstjórnina. Ekki nýtt af nálinni Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Robert Mugabe forseti svertir andstæðinga sína með þessum hætti. Leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, Morgan Tsvangirai, lenti í svipaðri aðstöðu árið 2003. Þá tók leyniþjónustan upp á laun, fund þar sem hann var ítrekað ginntur til að láta falla ummæli sem hægt væri að túlka sem landráð. Dóm- arinn í réttarhöldunum, sem tóku tvö ár, komst loks að þeirri niður- stöðu að sönnunargögnin væru fölsuð. Í huga margra dregur þetta mál nú dám af því tilfelli. Öll meðul notuð Málið allt ber skýr merki leyni- þjónustunnar og sagði Dav- id Coltart, þingmaður stjórnar- andstöðunnar, að markmiðið sé að þagga niður í fremsta gagnrýn- anda Mugabes. „Þeir hafa ekki get- að þaggað niður í honum með öðr- um meðulum. Þeir vita að þeir geta hvorki ráðið hann af dögum né sett hann í varðhald, svo þeir reyna að koma honum í vandræðalega stöðu,“ sagði Coltart. Lögmenn segja að það sé vafasamt að tala um hórdóm, jafnvel þótt ásakan- irnar séu réttar. Að sögn konunn- ar sem á að eiga hlut að máli, hafa hún og Ncube haft kynmök einu sinni á þriggja til fjögurra mánaða fresti undanfarin tvö ár. Hvort er alvarlegra Þegar horft er til ástandsins í Simbabve má velta fyrir sér alvar- leika málsins. „Ef við setjum ástand- ið í Simbabve inn í þetta samhengi, hvort er þá alvarlegra: leiðtogi sem fremur þjóðarmorð á þegnum sín- um, eða manneskja sem glímir við andartaks veikleika? Ef við vegum og metum syndina, í þessu landi sérstaklega, þá er mál Ncubes ekki alvarlegt,“ sagði Coltart. David Coltart sagði að hræsn- in væri yfirgengileg í ljósi þess að Mugabe hefði sjálfur verið bendl- aður við framhjáhald og það á meðan kona hans lá banaleguna. Þá hafði Mugabe staðið í ástar- sambandi við einkaritara sinn, Grace Marufu, á sama tíma og eiginkona hans glímdi við nýrna- sjúkdóm sem loks dró hana til dauða. Robert Mugabe þurfti sérstakt leyfi páfa til að kvænast Marufu. Enn sem komið er hefur Pius Ncube erkibiskup ekki látið frá sér fara opinbera tilkynningu. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Pius Alick Mvundla Ncube Pius Ncube fæddist árið 1946 í Gwanda. Fjölskyldan flutti árið 1952 til Bulawayo þar sem hann hlaut menntun í skóla heilags Patreks, sem rekinn var af jesúítum. Árið 1973 vígðist hann til prests og þjónaði í strjálbýli þar sem áður hét Ródesía. Ncube var prestur í Matabelelandi árið 1980, en það ár komst Robert Mugabe til valda. Sama ár hóf Mugabe aðgerðir gegn andstæðingum sínum í Matabelelandi. Aðgerðirnar kosta tuttuguþúsund manns lífið. Pius Ncube varð fyrsti þeldökki erkibiskupinn í Bulawayo árið 1998. Árið 2003 var Ncube veitt viðurkenning fyrir baráttu sína gegn ógnar- stjórn Roberts Mugabe og tveimur árum síðar skipulagði hann fjöldaaðgerðir sem miðuðu að því að koma Robert Mugabe frá völdum, vegna gruns um að niðurstöður þingkosninga yrðu falsaðar. Pius Ncube var veitt, árið 2006, viðurkenning alþjóðlegu mannúðarsamtaka Roberts Burns. Stjórnarandstaðan í Simbave er í upp- námi. Einn helsti andstæðingur Ro- berts Mugabe forseta landsins, Pius Ncube erkibiskup rómversk-kaþólsku kirkjunnar, hefur verið bendlaður við kynlífshneyksli. Birtar hafa verið myndir í ríkisfjölmiðlum sem eiga að sýna hann í félagsskap konu á hótelher- Kóngur og drottning, spil sem komist hafa í umferð í Simbabve Mugabe trjónir umsettur peningasekkjum og demöntum og kona hans er að koma úr verslunarferð. Hjartatían er lögreglan í Simbabve. Robert Gabriel Mugabe Robert Mugabe fæddist árið 1924. Hann hlaut uppeldi í anda rómversk-kaþólsku og stundaði meðal annars nám í jesúítaskól- um. Hann er kennaramenntaður og vann við kennslu á sínum yngri árum. Hann leiddi skæruhernað gegn stjórn hvítra í Ródesíu upp úr 1970. Hann var forsætisráðherra Simbabve frá 1980 til 1987, en þá var staðan lögð niður. Hefur verið einráður í Simbabve síðan þá og undir hans stjórn hefur efnahagur landsins hrunið. Mugabe beitti sér, árið 2000, fyrir eignarnámi á jörðum hvítra bænda með það fyrir augum að þeldökkir skyldu njóta ávaxta landsins. Í kjölfarið lagðist landbúnaður af að mestu leyti og Simbabve sem á árum áður hafði verið stór útflytjandi landbúnaðarafurða og verið kallað „brauðkarfa“ suðurhluta Afríku, varð háð matvælaaðstoð svo hægt væri að metta þegna landsins. Mugabe kvæntist Grace Marufu árið 1996. Marufu hefur verið gagnrýnd fyrir íburðarmik- inn lífsstíl og eyðslusemi. Talið er að verðbólgan í Simbabve sé nú um fimmþúsund prósent. Mugabe er einn sá leiðtogi í Afríku sem lengst hefur setið á valdastóli. Sökum aldurs hans og heilsufars hafa vaknað upp spurningar um eftirmann hans. Árið 2006 var kynnt áætlun þar sem sú hugmynd var viðruð að forsetakosningunum sem fram eiga að fara á næsta ári, yrði frestað og þær haldnar á sama tíma og þingkosningarnar 2010. Hefði það verið samþykkt hefði það lengt kjörtímabil Mugabes um tvö ár. Talið er að leiðtogar annarra Suður-Afríkuríkja séu ekki mjög hlynntir því að hann sitji á forsetastóli til ársins 2010. Robert Mugabe Forseti Simbabve beitir öllum ráðum gegn andstæðingum sínum. Pius Ncube erkibiskup Nýtur alþjóðlegrar virðingar fyrir opinbera gagnrýni sína á Mugabe.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.