Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 22
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200722 Fréttir DV Vel á fjórða hundrað milljóna króna sem búið er að leggja í Feygingar- verksmiðjuna í Þorlákshöfn virðist að mestum hluta glatað fé en allt út- lit er fyrir að hætt verði við að klára verksmiðjuna og hefja framleiðslu á líni eins og til stóð. Bændur hafa trú- lega ræktað nærri fimm þúsund tonn af hör sem gera átti að líni í verk- smiðjunni og gekk ræktunin vonum framar, var jafnvel talin betri en hjá ræktendum í Evrópu. Of dýrt að finna upp hjólið Að baki verksmiðjunni standa Orkuveita Reykjavíkur, Byggða- stofnun, Sveitarfélagið Ölfus, Eign- arhaldsfélag Suðurlands og fleiri og hafa þessir aðilar lagt hundruð millj- óna króna í hlutafé til verkefnisins en um ellefu ár eru frá því verkefnið hófst. 2.400 fermetra hús hefur ver- ið reist undir starfsemina í Þorláks- höfn og mest allt af vélbúnaðinum er til en að hluta ósamansettur. Sum- ir vilja meina að of margar stofnanir hafi komið að verkefninu og of mikill tími hafi farið í að finna upp hjólið og höfðu sumir á tilfinningunni að lítið væri gert annað en að funda. Reynt var að smíða vélasamstæðu sem þarf til að þurrka hörinn frá grunni svo hún tæki minna pláss og væri ódýrari og stóðu vonir til að þannig væri hægt að spara tugi milljóna króna. Jón Logi Þorsteinsson, bóndi á Garðsauka sem tók þátt fram- leiðsluferli hörsins, telur alltof lang- an tíma hafa farið í þróun þurrklín- unnar í stað þess að láta smíða hana að margreyndri fyrirmynd sem not- uð hefur verið víða um heim. Nýr yf- irmaður var ráðinn til Feygingar ehf. og ákvað sá að hætt yrði við frekari uppfinningavinnu og fékk vélsmiðju til þess að smíða venjulega þurrklínu fyrir verksmiðjuna. Heil skemma var byggð við Feygingarverksmiðjuna undir þurrklínuna sem aldrei var gangsett. Eyddu árum í að koma vinnsl- unni af stað Jón Logi og fleiri sem DV ræddi við segja að rekstur verkefnisins hafi alltaf verið tæpur, alltaf hafi vantað pening sem þó yfirleitt hafi bjargast á endanum eða þar til allt varð stopp. „Það er verst að örugglega níutíu prósent eru tilbúin og það vantar bara hænufet upp á að hægt sé að gangsetja framleiðsluna. Maður spyr sig hvort þessi nýsköpun hafi verið fórnarlamb virkjanaframkvæmda og tilrauna til þess að spyrna fótum við þenslu,“ segir Jón Logi. Hann segir ræktunina hér á landi hafa tekist með eindæmum vel. Jurt- in sé sérstaklega þægileg í ræktun og staðsetning Íslands er aldei þessu vant góð til slíks brúks. Þegar farið var af stað í ræktunina var land ódýrt á Íslandi þó það hafi breyst. Í Evr- ópu er hör helst ræktaður í Hollandi, Belgíu og í Frakklandi en svo er Kína nokkuð stór framleiðandi. Jón Logi bendir á að lífrænn textíll sé notað- ur í allt mögulegt, allt frá strigaskóm upp í bíla. Felstir bændanna fengu á end- anum greitt fyrir ræktunina eða þeir sem gengu nógu hart eftir því að fá greitt en það voru þó ekki allir. Rækt- unin var svo aldrei notuð nema hluti sem fór í landgræðslu og til þess að búa til stökkpalla á mótorhjólabraut fyrir utan Þorlákshöfn. Einhverjir fengu sérstök lán og styrki til þess að kaupa vélbúnað til þess að ná hörn- um af ökrunum en Jóni Loga tókst það ekki, var líklegast of seinn og því situr hann uppi með vélbúnað upp á um fimm milljónir króna sem hann getur ekki nýtt í neitt annað. Ræktuðu hör þó það væri of seint Þegar Nýsköpunarsjóður atvinnu- lífsins kom inn í verkefnið á síðasta ári voru að sögn Jóns Loga sett skil- yrði um að ræktun á hör hæfist að nýju en þá hafði ræktunin legið niðri um einhvern tíma. „Við fórum tveir í að koma ræktuninni af stað og sett- um um hundrað hektara undir hana þó við vissum að það væri alltof seint þar sem komið var fram í júní en hefj- ast hefði þurft handa tveimur mán- uðum fyrr,“ segir Jón Logi. Hann segir fagmann innan Feygingar hafa bar- ist á móti þessari ráðgerð án árang- urs. Uppskeran varð þó nærri því klár þrátt fyrir að hafa farið of seint af stað og Jón Logi og annar sem fór með honum í ræktunina fengu greitt fyrir. Við vinnslu umfjöllunarinnar var reynt að ná í forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur án árangurs. Guðmund- ur Þóroddsson forstjóri, Hjörleifur B. Kvaran aðstoðarforstjóri, Haukur Le- ósson stjórnarformaður og Þorleifur Finnsson sviðsstjóri reyndust allir vera í sumarfríi og svöruðu þeir ekki skilaboðum. Eins náðist ekki for- svarsmenn Byggðastofnunar. Feygingarverksmiðjan í Þorlákshöfn, sem enn hefur ekki tekið til starfa, mun líklega aldrei gera það þó lítið vanti upp á að framleiðsla á líni geti hafist. Verkefnið hófst fyrir um ellefu árum, síðan hafa farið í það nærri fjögur hundruð milljónir króna og hátt í fimm þúsund tonn af hör verið framleidd. Aðeins lítill hluti hörsins hefur verið notaður til stökkpallagerðar í mótorhjólabraut rétt við Þorlákshöfn. 2.400 fermetra verksmiðja, sérstaklega byggð til verksins, stendur ónotuð. FJÁRAUSTUR TIL EINSKIS „Það er verst að örugglega níutíu prósent eru tilbúin og það vantar bara hænufet upp á að hægt sé að gangsetja framleiðsluna. Maður spyr sig hvort þessi nýsköpun hafi verið fórnarlamb virkjanafram- kvæmda og tilrauna til þess að spyrna fótum við þenslu.“ HJÖRDÍS RUT SIGURJÓNSDÓTTIR blaðamaður skrifar: hrs@dv.is Feygingarverksmiðjan í Þorlákshöfn 2400 fermetra bygging stendur ónotuð. Hún var byggð sérstaklega til þess að vinna lín en framleiðslan hefur aldrei verið gangsett og verður líklega aldrei. Mótorhjólabraut skammt frá Þorlákshöfn Aðeins hluti af þúsund- um tonna af hör hefur verið nýttur, mest í þessa mótorkrossbraut til þess að binda sandinn og búa til stökkpalla. Hör rykkt upp af akrinum Mikið var framleitt af hör og gekk ræktunin vonum framar, svo vel að margir segja íslenska hörinn betri en þann sem framleiddur er í Evrópu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.